Bautasteinn - 01.05.2018, Side 33

Bautasteinn - 01.05.2018, Side 33
33 Garðurinn teiknaður upp Haustið 1968, þegar þau hjónin fluttu heim frá Reykjavík var Hreinn kosinn í sóknarnefnd Bjarnanessóknar og hefur verið þar síðan, lengst af sem formaður. Í tvö ár vann Hreinn við lok kirkjubyggingarinnar í Bjarnanesi en kirkjan var vígð 1976. Þá hafði Hreinn verið meðhjálpari í nokkur ár og hélt því starfi áfram og allri umsjón með kirkjunni. Kvenfélagskonur í Vöku höfðu séð um hirðingu á kirkjugarðinum um nokkurra ára skeið, en þegar þær sáu sér ekki fært að annast það lengur tók Hreinn það starf að sér eða eins og hann segir, „þar til einhver annar fengist til þess“. Fór svo að Hreinn ílengdist í þessu starfi þar til fyrir nokkrum árum að honum fannst nóg komið. Árið 2001 spratt áhugi á að leita upplýsinga um ómerkt leiði og það varð fljótt markmiðið að merkja öll leiðin í garðinum. Hreinn teiknaði garðinn upp á stórt blað og þá kom sér vel að hægt var að skrifa nöfnin þar til að byrja með. Aðal upplýsingar um fólkið voru fengnar úr kirkjubókum, þar voru öll nöfn látinna skrifuð en ekki hvar þeir voru grafnir og jafnvel gátu þeir hafa verið jarðsettir í Hoffelli, Brunnhól eða Stafafelli. Sigurður Eiríksson, bróðir Hreins hafði einnig áhuga á þessu máli og hjálpaði til við verkið. En ómerktu leiðin voru milli 70 og 80 svo það tók langan tíma að staðsetja fólkið á réttum stað. Með því að spyrja nógu marga og skoða leiði og upp- lýsingar í hinum kirkjugörðunum kom þetta loksins allt heim og saman. Fá oft hrósyrði Árið 2003 var því hægt að gera fullkomna skrá, teikna varanlegt kort og númera leiðin á kortinu. Þetta hafði allt verið samstarfsverkefni þeirra hjóna, gert af miklum áhuga og svo tók Regína dóttir þeirra að sér að teikna upp tölvugerðu teikninguna og setja allar upplýsingarnar á gardur.is. Þau Kristín og Hreinn telja það afar ánægjulegt að ýmsir hafa eftir þetta fundið leiði vina sem þeir vissu ekkert hvar voru og ættingjar hafa merkt og prýtt mörg leiði síðan. Ótrúlega margir hafa vikið sér að þeim með hrósyrði, sem fólki er víst ekki mjög tamt hér um slóðir, en öllum þykir gott að fá. Guðmundur Rafn, umsjónarmaður kirkjugarða, var áhugasamur um þetta verk og þegar því var lokið, kom hann með fjóra stuðlabergsdranga sem eru sem inngönguhlið í garðinn á tveimur stöðum, sett var gangstétt inn í garðinn, fjögur ljós fram með stéttinni og unnin mikil jarðvegsvinna og komið upp geymsluskúr með bjöllu til að hringja við jarðarfarir. Að lokum má svo nefna það að gert var minnismerki um gömlu kirkjuna en það var unnið úr steini sem Hreini var eitt sinn gefinn með mynd af kirkjunni á. Öll leiði í Bjarnaneskirkjugarði hafa verið merkt. Kristín og Hreinn, glöð á góðri stundu fyrir fáeinum árum.

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.