Bautasteinn - 01.05.2018, Side 7

Bautasteinn - 01.05.2018, Side 7
7 Í sumar verða 70 ár liðin frá því fyrsta líkbrennsla fór fram hér á landi en jarðneskar leifar dr. Gunnlaugs Claessen voru brenndar þann 31. júlí 1948 í nýjum líkbrennsluofnum sem höfðu verið settir upp við Foss- vogskapellu. Af þessu tilefni rennum við yfir sögu bálfara hér á landi og rifjum upp eitt og annað sem snertir þennan útfararsið sem verður æ vinsælli. Áður en lengra er haldið má geta þess að fyrsti Íslend- ingurinn sem fékk bálför, fyrir utan þá sem brenndir voru til forna, mun hafa verið læknir í Kaupmannahöfn að nafni Edvald Johnsen sem lést 25. apríl 1893 þar í borg. Hann mun hafa kosið að lík hans yrði brennt en ekki jarðað og þótti það auðvitað fréttaefni hér á landi. Í blaðinu Ísafold 24. maí 1893 segir: „Lík Edvalds Johnsens læknis var eigi jarðað á venjulegan hátt, heldur brennt í líkbrennsluofni. Það er hinn fyrsti Íslendingur, er þá frægð hreppir.“ Málinu fyrst hreyft 1905 Bálfarir voru alsiða meðal heiðinna til forna en langur tími átti eftir að líða þangað til þær náðu útbreiðslu á Vesturlöndum á nýjan leik. Af heilbrigðisástæðum fóru læknar að hvetja til líkbrennslu þegar kom fram á 19. öldina og á heimssýningunni í Vín árið 1873 var kynntur nýr líkbrennsluofn er þótti framúrskarandi til slíkra nota. Ári síðar var Bálfararfélag Englands (Cremation Society of England) stofnað og fyrsta bálstofan í Evrópu byggð árið 1878 í borginni Woking þar í landi. Á þeim tíma var með vaxandi þéttbýli farið að þrengja verulega að kirkjugörðum auk þess sem æ fleiri töldu að eina leiðin til að tryggja viðunandi hreinlætis- og heilbrigðisaðgæslu við útfarir væri að brenna líkin. Hér á Íslandi varð það raunin, eins og á Englandi, að læknar gerðust baráttumenn fyrir bálförum. Læknarnir Steingrímur Matthíasson og Guðmundur Björnsson hreyfðu fyrstir manna líkbrennslumálinu hér á landi þegar þeir skrifuðu um það mál í Skírni árið 1905 og raunar aftur 1913. Fljótlega tók Gunnlaugur Claessen læknir málið einnig upp á sína arma og inn á Alþingi rataði málið þegar baráttubróðir hans í þessu, Sveinn Björnsson alþingismaður og síðar forseti Íslands, flutti frumvarp til laga um líkbrennslu er varð að lögum árið 1915. Allmörg ár áttu þó eftir að líða þar til skriður komst á málið á nýjan leik. Árið 1930 skipaði bæjarstjórn Reykja- víkur þó nefnd til að gera tillögur um bálstofu og voru kosnir í hana þeir Einar Arnórsson, Ágúst Jósefsson og sr. Bjarni Jónsson. Tók Jón Þorláksson borgarstjóri málið í sínar hendur og var bent á tvo staði undir bálstofu; fyrir sunnan Hólavallakirkjugarð eða á svokölluðu Sunnu- hvolstúni í Norðurmýri. Leyst þeim bálfararmönnum betur á seinni kostinn. Ekkert varð úr þessum fyrirætl- unum að sinni. Spegillinn gerði óspart grín að þeim Bálfararfélagsmönnum og forvígirmenn félagsins urðu bitbein í pólitískri orðræðu millistríðsáranna.

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.