Bautasteinn - 01.05.2018, Side 22

Bautasteinn - 01.05.2018, Side 22
Þetta stúss mitt í kringum kirkjugarðana byrjaði á Bíldudal undir lok 7. áratugarins þegar ég tók mér það fyrir hendur að ráðast í endurgerð garðsins sem þá var í afar slæmu ásigkomulagi en til þess bær yfirvöld höfðu ekki haft döngun í sér til að gera eitthvað í málinu. Ég sá að við svo búið mátti ekki standa og vatt mér í verkefnið og í kjölfarið tók við sjálfboðaliðavinna í nokkur sumur við að koma garðinum í lag. Og ég sé ekki eftir einni einustu mínútu sem í þetta fór, það máttu vita.“ Prófsteinar á skyldur okkar Það er Bílddælingurinn Jón Kr. Ólafsson sem hefur orðið en Bautasteinn tók hús á kappanum fyrir skömmu. Jón Kristján, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur 22. ágúst 1940 og ólst upp og býr á Bíldudal. Jón Kr. hefur flutt fjölmörg dægurlög á hljómplötum sem vinsæl voru með þjóðinni en einnig klassík sönglög. Þá rekur hann stórmerkilegt tónlistarsafn á Bíldudal, Melódíur minn- inganna, sem byggist að mestu á söfnun hans á innrömm- uðum hljómplötum, plötuumslögum, myndum og munum sem áður voru í eigu landsþekktra listamanna. Jón Kr. er auðvitað fyrir löngu landsþekktur fyrir söng sinn en hann hóf að syngja með kirkjukór Bíldudalskirkju árið 1954 og hefur sungið við kirkjulegar athafnir þar sem og í öðrum kirkjum landsins. Færri vita hins vegar um hlut Jóns Kr. Ólafssonar við endurgerð kirkjugarða og áhuga hans á kirkjulegu starfi fyrir vestan. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að kirkjugarðar séu stórmerkilegt fyrirbæri og að í þeim sé að finna upp- lýsingar um gengið fólk sem allt á sér auðvitað sögu með einhverjum hætti. Þeir eru því í sjálfu sér sagnfræði. Þá Kirkjugarðar eru sagnfræði Rætt við Jón Kr. Ólafsson, söngvara, frumkvöðul og safnara á Bíldudal 22 Við minningamark Muggs í Hólavallagarði en Jón Kr. hefur sýnt minningu þess sveitunga síns margháttaða virðingu í gegnum tíðina. Frá vinstri Ásgeir Nikulás Ásgeirsson, sölustjóri S. Helgasonar, Jón Kr. Ólafsson og Brjánn Guðjónsson, forstjóri S. Helgasonar.  Ljósm. Anna Sigríður Einarsdóttir.

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.