Bautasteinn - 01.05.2018, Síða 27
27
Margt góðra muna
Bíldudalskirkja er úr steini með viðar innréttingu. Í
yfirborð útveggja eru grópaðar fúgur í líki steinhleðslu.
Kirkjuturninn er steyptur upp fyrir kórþak með átt-
strendum timburturni efst. Krossmarkið efst á turninum
er í 17,5 metra hæð. Fjórir víðir bogadregnir gluggar eru á
hvorri hlið hússins. Upphaflega var kirkjan með skorstein
á vestari enda gengt turni. Í kirkjunni er rúmgott söngloft
undir bogalaga hvelfingu, sett bláum reitum og gyllt
stjarna í hverjum reit. Bogi er yfir altari. Tæplega 200
manns fengu sæti innan kirkjumúranna þannig að vel fór
um þorpsbúa við guðsþjónustur.
Múrarar við kirkjuna voru Þorkell Ólafsson í Reykjavík og
Þorsteinn Guðmundsson og Finnbogi Jóhannsson, báðir
frá Bíldudal. Trésmiðir voru Björn Jónsson, Kristinn
Grímur Kjartansson og Valdimar Guðbjartsson, allir frá
Bíldudal.
Í Bíldudalskirkju eru ýmsir merkir gripir, m.a. prédikunar-
stóll frá 1699 og skírnarfontur með mynd af skírn Jesú.
Eins má nefna tvær altaristöflur. Sú eldri var í Otradals-
kirkju, gerð 1737 og sýnir heilaga kvöldmáltíð. Aðalalt-
aristaflan er frá 1916, máluð af Þórarni B. Þorlákssyni
listmálara og sýnir Maríu við gröfina. Taflan er gjöf frá
Hannesi B. Stephensen og bróður hans, Þórði Bjarnasyni
frá Reykhólum. Á 50 ára afmæli kirkjunnar árið 1956
gáfu börn prestshjónanna er fyrst þjónuðu á Bíldudal, sr.
Jóns Árnasonar og Jóhönnu Pálsdóttur, kirkjunni að gjöf
forkunnarfagra muni eftir Unni Ólafsdóttur kirkjulista-
mann; hökul og altiarsklæði úr hör sem ræktaður var á
Bessastöðum og hvort tveggja skreytt steinum er lista-
konan hafði týnt úr fjörusandinum í Glerhallavík.
Hér má sjá Jón Kr. Ólafsson og Þóru Kristjánsdóttur
listfræðing við minningamark frú Unnar Ólafsdóttur
listamanns. Hún vann einstaka muni er prýða Bíldudals-
kirkju. Unnur lést árið 1983 og er jarðsett í Gufuneskirkju-
garði.
LÍKKISTUR – HVÍTAR OG SPÓNLAGÐAR
Stígandi framleiðir vandaðar líkkistur, bæði hvítar og spónlagðar í þeirri
viðartegund sem kaupandi óskar eftir.
Stígandi framleiðir vandaðar
líkkistur, bæði hvítar og
spónlagðar í þeirri viðartegund
sem kaupandi óskar eftir.
Sendum hvert á land sem er. Húnabraut 29 - 540 Blönduósi - Sími 452 4123
gummi@stigandihf.is - www.stigandihf.is
/FAGMENN Í TRÉVERKI SÍÐAN 1947