Bautasteinn - 01.05.2018, Síða 28

Bautasteinn - 01.05.2018, Síða 28
28 Í Vestmannaeyjum er varði við Landakirkju til minn- ingar um „drukknaða við Vestamannaeyjar – hrapaða í björgum – og þeirra sem látið hafa lífið í flugferðum millum Vestmannaeyja og Reykjavíkur“ eins og hann heitir formlega. Hver er saga þessa myndarlega líkneskis sem afhjúpað var í Eyjum haustið 1951? Ríflega 80 ára saga Það var á Þjóðhátíð Vestmannaeyja þann 2. ágúst árið 1935 sem Páll Oddgeirsson athafnamaður flutti minni sjómanna og vakti þar máls á því að reisa ætti drukkn- uðum sjómönnum við Vestmannaeyjar og hrapaðra í björgum, veglegan minnisvarða. Mætti þessi hugmynd hans fyrst í stað misjöfnum skilningi meðal almennings en Páll lét ekki standa við orðin ein heldur stofnaði hann strax sjóð sem hann nefndi „Minnismerkissjóð druknaðra sjómanna við Vestmannaeyjar“. Páll var frá byrjun formaður sjóðsstjórnar og með honum í stjórninni framan af þeir Þorsteinn Jónsson skipstjóri, Kr. Linnet bæjarfógeti og Gísli Wíum kaupmaður. Við brottför Kr. Linnets frá Vestmannaeyjum settist Runólfur Jóhannsson skipa- smíðameistari í hans stað í stjórn sjóðsins. Þrátt fyrir elju Páls Oddgeirssonar, sem alla tíð var forvígismaður þessa verkefnis, liðu 16 ár áður en draumsýn hans varð að veruleika. Páll andaðist 24. júlí 1971. Háleitar hugmyndir Sjóðsstjórn efndi haustið 1940 til hugmyndasankeppni um fyrirhugað minnismerki. Fimm tillögur bárust. Í apríl 1941 er kynnt verðlaunatillaga Harðar Björnssonar húsasmíðameistara að um 25 m2 minningarkapellu er væri um 9 m há að turni. Auk hans hlutu tveir aðrir þáttakendur viðurkenningar, arkitektarnir Þór Sandholt og Ágúst Pálsson. Tillaga Harðar gerði ráð fyrir hring- myndaðri byggingu með spísslaga turni. Ytra fleti hennar var skipt í 8 reiti og skyldu myndastyttur vera í fjórum þeirra en steindir gluggar og dyr í hinum fjórum. Hörður sá fyrir sér að stytturnar væru af sjómönnum í fullum sjóklæðum sem þar stæðu með drúpandi höfuð. Yfir dyrum gerði hann ráð fyrir krossmarki sem fest væri að neðan með tveim krosslögðum akkerum. Að baki þess risi upplýstur spísslaga turn, sleginn járnþynnum. Innandyra gerði hann ráð fyrir grafarstalli með kransa- og blóma- stæðum en á veggjum sá hann fyrir sér upphleyptar töflur milli glugga er nöfn hinna látnu manna skyldu letruð. Það er ljóst að hér hugsuðu menn stórt en mörg ljón reyndust í veginum. Eftir nokkurra ára vinnu við að halda hugmyndinni til streitu játuðu stjórnarmenn sig sigraða og viðurkenndu að minnismerkissjóðnum væri „ofvaxið fjárhagslega“ að reisa þetta minnismerki. Þess í stað var árið 1950 leitað til eins ástsælasta myndlistarmanns Íslendinga á þeirri tíð, Guðmundar Einarssonar frá Miðdal sem skilaði tillögu sem fékk einróma lof sjóðs- stjórnar og almenna viðurkenningu þeirra sem hlut áttu að máli. Ákveðið var að ganga til samninga við Guðmund og var minnismerkinu að lokum valinn staður andspænis kirkju bæjarins. En það hafði þó ekki verið upphaflega hugmyndin. Deilt um staðsetningu Þegar Guðmundi frá Miðdal hafði verið falið að vinna verkið ákvað sjóðsstjórnin að minnismerkinu skyldi valinn staður á Skansinum. Strax og þetta vitnaðist lýsti Til minningar um drukknaða og hrapaða Minnismerki Guðmundar frá Miðdal er af sjómanni í stakki, steypt í brons á háum stalli úr bergi Eyjanna. Minningarmarkið

x

Bautasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.