Bautasteinn - 01.05.2018, Page 29

Bautasteinn - 01.05.2018, Page 29
29 Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri sig andvígan staðsetning- unni og taldi eðlilegra að það risi við Landakirkju. Rök hans voru m.a. þau að ekki væri fýsilegt að hafa þetta „merki dauðans“ fyrir sjónum fólks í önnum dagsins heldur væri eðlilegri staðsetning við guðshúsið í bænum. Varð það og niðurstaðan. Minnismerkið er af sjómanni í stakk og er hann 2,55 metrar á hæð en með fótstalli 4,65 metrar. Styttan er steypt í kopar svo og skreyting á stalli en hann sjálfur gerður úr blágrýti úr fjöllum eyjanna. Afhjúpun minnismerkisins við Landakirkju fór fram í blíðskaparveðri sunnudaginn 21. október 1951 eftir messu í Landakirkju þar sem sóknarpresturinn, séra Halldór Kolbeins prédikaði. Að lokinni messu sneru kirkjugestir, og raunar ýmsir fleiri, sér að minnismerkinu utan kirkjudyra þar sem fulltrúar sjómannasamtakanna í bænum stóðu heiðursvörð. Páll Oddgeirsson hafði skipulagt athöfnina og að sjálfsögðu flutti hann aðal- ræðuna. Þórdís Guðjónsdóttir á Svanhóli afhjúpaði merkið. Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri flutti einnig ávarp og gat þess sérstaklega að hér væri um að ræða fyrsta minnismerkið í Vestmannaeyjum og það því mikilsverður minnisvarði hinna föllnu auk þess að vera mikil bæjar- prýði. Og það er hún svo sannarlega enn þann dag í dag. Í verki Harðar var gert ráð fyrir grafarstalli og minninga- töflum innandyra. Svona sá Hörður Björnsson húsasmíðameistari minningar- kapelluna fyrir sér. FALLEGIR LEGSTEINAR Á GÓÐU VERÐI Innifalið: áletrun og uppsetning á höfuðborgarsvæðinu Frír sendingarkostnaður í stað uppsetningar út á land Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029 www.bergsteinar.is

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.