I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Page 3
Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri Grindavíkur:
Velkomin
til
Grinda-
víkur
Jón Gunnar Srefánsson.
Grindvíkingar hafa nú í samvinnu
við tímaritið Skák og með stuðningi
félaga á Suðurnesjum stofnað til
meiriháttar skákmóts í Grindavík.
Skákmót þetta er fyrsta alþjóð-
lega skákmótið á íslandi, sem haldið
er utan Reykjavíkur og markar að
því leyti tímamót.
Skákíþróttin hefur lengi verið ís-
lendingum hugleikin, ekki síst meðal
sjómanna og verkamanna víðs vegar
um landið, en vegna einangrunar og
fjarlægðar frá vettvangi hafa menn
utan höfuðborgarsvæðisins átt erfitt
með þátttöku og það að fylgjast með
tafli innlcndra og erlendra meistara.
Með því að flytja mót með áhuga-
verðum keppendum nær alþýðu
manna við sjávarsíðuna geta fleiri
landsmenn notið taflsins og það aft-
ur leitt til þess að víðar komi fram
einstaklingar sem teljast hlutgengir
forystumenn í íþróttinni.
Uppeldisgildi skákiðkana ungs
fólks verður ekki dregið í efa og
væntum við þess að viðureignir
meistara í augsýn verði til þess að
hvetja ungmenni sem aðra til dáða.
í nafni Grindvíkinga býð ég mcist-
ara taflsins velkomna til keppni í
Grindavík og ennfremur þá sem eiga
eftir að njóta þess með okkur að sjá
þær viðureignir senr mótið býður
uppá.
3