I. alþjóðamótið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 23

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Qupperneq 23
Högni Torfason: Lítum á stöðuna Hvert skákmótið rekur annað — skáklífið blómstrar og að vanda fylgist þjóðin í ofvæni með fram- gangi íslenzku keppendanna í and- legri baráttu við ýmsa fremstu snill- inga skákheimsins á hvítu reitunum og svörtu eins og það heitir á sígildu skákmáli. Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlarnir verið ólatir að flytja fréttir af skákmótunum og þó að stundum sé sagt að engar fréttir séu góðar fréttir, þá fer ekki á milli mála, að fréttirnar af getu og snilld ís- lenzku skákmannanna verða að telj- ast góðar fréttir og ýta notalega und- ir þjóðarrembinginn og þjóðarstolt- ið. Að sjálfsögðu byggist skákgeta ekki á þjóðerni einu saman. Ein þjóð er ekki endilega annarri fremri í að skapa skáksnillinga. Þar kemur margt annað til greina. Fyrst er að telja hvernig unnið er að því að laða fram hæfileika ungmenna til skák- iðkunar og skákafreka. Á því sviði hafa Sovétmenn náð allra þjóða lengst. Látum liggja á milli hluta í þessu viðfangi, að þetta er hluti af þeirri stefnu þjóðfélagsformsins, að töfra fram afreksmenn til að sanna yfirburði kerfisins. Eftir stendur að þessi aðferð hefur skilað árangri. Samfara mikilli eðlisgreind og skák- hugsun var jarðvegur fyrir skáklist- ina gamalgróinn í þeim löndum sem nú mynda Sovétríkin. í þann jarðveg hefur verið sáð og uppskeran hefur orðið rikuleg. Óþarfi er að tíunda stórafrek Sovétmanna í skáklistinni á undanförnum áratugum, um allt slíkt vita þeir gjörla sem leggja á sig að Iesa þetta greinarkorn. En séu Sovétmenn færir um að sá í frjóan akur, á slíkt ekkert siður við um aðrar þjóðir. Þær eru ekkert síð- ur vel gefnar né verr í stakk búnar á sviði hugaríþrótta en Sovétríkin. Þar skilur á milli Teits og Siggu, að þær hafa einfaldlega ekki lagt sömu áherzlu á þjálfun og þróun afreks- manna á hinum ýmsum sviðum íþrótta. Þetta hefur þó verið að breytast. Á nokkrum síðustu áratugum hefur at- hygli manna á Vesturlöndum beinzt að þeim frábæra árangri sem ýmsar þjóðir Austur-Evrópu og Kína hafa náð á þessum sviðum, en meiri at- hygli hefur raunar vakið með hvaða aðferðum þeim árangri hefur verið náð. Menn hafa skilið það, að ein- ungis með markvissri þjálfun og ástundun allt frá unga aldri er árang- urs að vænta. Hlúa verður að frjó- öngum og vökva sprotana. Svo hald- ið sé áfram þessum samanburði við Sovétríkin, án þess að gera neina pólitiska úttekt á þessu, er athyglis- vert að þessi þróun þar eystra hefur komið að ofan. Stjórnvöld hafa ákveðið að svona skuli þetta vera og svona skuli þetta gert. Á Vesturlöndum horfir þetta öðruvísi við. Þar hefur nær öll við- leitni í þá átt að byggja upp afreks- menn í íþróttum komið að neðan, verið „grasrótarhreyfing" svo notað sé tízkuorð. Það eru ekki stjórnvöld sem hafa átt forystu, það eru samtök áhugamanna sem hafa barizt harðri og óeigingjarnri baráttu fyrir því, að draumur þeirra um að eignast af- reksmenn, hvert í sinni grein, nái að rætast. Vissulega hafa stjórnvöld sýnt þessari viðleitni skilning, þeirra stuðning ber ekki að vanþakka. Engu að síður ber allt að sama brunni, það eru áhugamennirnir og sjálfboðaliðarnir sem hafa undirbú- ið þann jarðveg sem gróðurinn gef- Högni Torjason. ur. Fleiri eiga hlut að máli. Þá ber hæst þann mikla fjölda fyrirtækja sem leggja skákhreyfingunni ómet- anlegt lið með öflugum stuðningi í fjárframlögum í ýmsum myndum. Án þeirra væru ekki haldin Reykja- víkurmót og forsenda fyrir þrótt- miklu skáklífi ekki fyrir hendi. Við íslendingar erum svo gæfu- samir að bera skákina í blóðinu, ef svo mætti að orði komast. Nauð- synjalaust er að vitna í fornsögurnar um iðkun skáklistarinnar, svo oft hefur sá söngur sunginn verið. En það hefur sýnt sig æ ofan í æ, að jafnskjótt og einhverjir hafa viljað leggja á sig að hlúa að skáklistinni, hefur áhugann ekki skort og unga fólkið hefur flykkzt að skákborðinu. Hver skákaldan af annarri hefur ris- ið og blómaskeið hafizt í skákinni. Vitanlega hafa komið þeir tímar, að áhugi hefur dofnað og öldudalurinn blasað við, en aldrei lengi í senn. Allt frá því að Friðrik Ólafsson stórmeistari hóf að gera garðinn frægan hefur verið linnulaus áhugi á skák hér á landi. Óteljandi eru þeir ungu menn sem hrifust af snilld og afrekum Friðriks þegar hann gat notið sín að fullu. Marga dreymdi um að feta í fótspor hans og hófu skákiðkun fullir áhuga og margir náðu langt. Fjörkippur kom í skák- lífið og skákáhugamenn vöknuðu til lífsins á nýju vori. Hlutur Friðriks verður seint ofmetinn. Næst rís aldan árið 1972. Skák- samband íslands undir forystu Guð- mundar G. Þórarinssonar ræðst í það óframkvæmanlega stórvirki að standa fyrir einvígi Spassky og Fischers um heimsmeistaratitilinn í skák. Sú saga er löngu kunn og verð- ur ekki frekar rakin hér. En uppsker- 23

x

I. alþjóðamótið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.