I. alþjóðamótið


I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Síða 24

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Síða 24
an lét ekki á sér standa. Ungmennin flykktust að skákborðinu rétt einu sinni og úr hópi þeirra eru margir af okkar mestu afreksmönnum í dag. En nú var einnig búið að undirbúa jarðveginn enn frekar. Taflfélögin fóru að gea sér þess ljósa grein, að efla yrði æskulýðsstarfið til mikilla muna ef skáklistin ætti að eiga von um eflingu og endurnýjun. Rúman síðasta áratug hefur æskulýðsstarfið í skákfélögunum verið í öndvegi í fé- lagsstarfsemi margra þeirra og vona ég að á engan sé hallað þótt greinar- höfundur telji, að þar beri hæst starf Taflfélags Reykjavíkur og Ólafs H. Ólafssonar, æskulýðsfulltrúa félags- ins, en hann hefur löngum átt ást- konu eina, skákgyðjuna Caissu, og kropið að altari hennar. Hefur þeirra ástúðarríka samþand borið geysi- lega mikinn ávöxt. Fyrir allmörgum árum var hafizt handa um að virkja skákorkuna í landinu við uppsprettulindirnar. Það var þegar skipulögð var skóla- skákin. Þar var farið inn á þá braut að gefa æskunni kost á tafli, að skipuleggja skólamót, þjálfun og keppni og laða á þann hátt sem allra- flesta unglinga til skákarinnar. Ár- angurinn af þessu starfi hefur verið einstaklega ánægjulegur. Er ástæðu- laust að tíunda hann hér, en sýnt er að skólaskákin og þróttmikið æsku- lýðsstarf taflfélaganna felur í sér vaxtarbrodd sem nær að skjóta rót- um og verða að voldugum og lauf- skrýddum meiði. Þá er vert að minnast þess, að mörg hin síðustu ár hafa íslenskir skákmenn fengið tækifæri til þess að etja kappi við ýmsa fremstu skák- meistara heims í vaxandi mæli. Þátt- taka okkar í Olympíumótum í skák á sér langa sögu og í ýmsu öðru al- þjóðlegu skáksamstarfi hafa íslend- ingar verið virkir um langan tíma, og má þar nefna Norðurlandamótið, stúdentamótin, sexlandakeppni og margt fleira. Þó er það ekki fyrr en síðasta áratuginn eða svo sem mark- visst hefur verið unnið að því að gefa ungum skákmönnum færi á að vera keppendur á alþjóðamótum ung- linga í ýmsum aldursflokkum. Hef- ur skákhreyfingin verið ötul að afla sér fjár til þess starfs og það borið ríkulegan ávöxt. Hæst ber að sjálf- sögðu heimsmeistaratign Jóns L. Árnasonar og Karls Þorsteins. Ungu skákmeistaranir hafa fengið mikla þjálfun og keppnisreynslu í þessum ferðum sem komið hefur þeim til góða og aukið þroska þeirra og getu í skáklistinni. Árangurinn af þessu hefur orðið sá, að komin er fram harðsnúin sveit ungra íslenskra skákmeistara sem færir eru um að takast á við hverja sem vera skal eins og frammistaða þeirra í Chicago og nú í Reykjavík sýnir mjög áþreifanlega, svo aðeins sé minnst á það sem ferskast er í huga. Því má bæta við, að auk þeirra sem standa i efstu þrepum skákstig- ans er fjöldi ungra skákmeistara á hraðri uppleið eins og árangurinn á skólaskákmóti Norðurlanda á dög- unum er gott dæmi um. Þetta sýnir að skákhreyfingin hef- ur verið á réttri braut og henni hefur tekist að virkja getu og hæfileika ungra manna þrátt fyrir mikla erfið- leika og mikinn tilkostnað sem oft hefur kostað blóð, svita og tár að standa undir. Hér hafa verið rakin nokkur atriði er varða skáklíf og skákgetu íslend- inga. Margs er ógetið og mörgu mætti bæta við, og er þá ekki sízt að geta elju og atorku þeirra fjölmörgu karla og kvenna sem lagt hafa skák- InnRömmun SuBunnesun Vatnsnesvegi 12 - Keflavík Sími 3598 Alhliða innrömmun Opið 1—6 virka daga og 10—12 laugardaga. Mikið úrval af, HOLLENSKUM MYNDARÖMMUM, hringlaga og sporöskjulaga. Vönduð vara. Mikiö úrval af hinum sívinsælu GRAFÍKMYNDUM. ROSENTHAL-GJAFAVÖRUR í úrvali. — Aöeins þaö besta. Höfum alls konar pípur úr eir, plasti og járni, ásamt tengistykkjum. Ennfremur hreinlætistæki. Einnig hin heimsþekktu GROHE-blöndunartæki. Byggingavöruverslun J.Á. Baldursgötu 14 — Keflavík — Sími 1212 S________________________________y 24 l

x

I. alþjóðamótið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.