I. alþjóðamótið


I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Síða 30

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Síða 30
Helgi Ólafsson. Ingvar Ásmundsson. Elvar Guðmundsson. bóginn hefur hann verið mjög virkur þátttakandi í Helgarmótum okkar hjá Tímaritinu SKÁK. Hefur hann borið sigur úr býtum í svo mörgum helgarmótum, að sumir hafa fremur viljað kalla þetta Helgamót. Jóhann Hjartarson er maður Búnaðarbankamótsins og Reykja- vikurmótsins. Frábær og markviss taflmennska hans hefur ekki komið þeim á óvart sem fylgzt hafa með skákferli þessa geðþekka unga meistara. Hann hefur nú 2415 ELO- stig, en ekki leikur vafi á þvi, að af- rek hans á þessum tveimur mótum lyfta honum verulega upp í skákstig- anum. Jóhann á mikla og glæsta Jóhann Hjartarson. framtíð í skákinni. Hann er furðu- lega vel lesinn í fræðunum, en skap- andi kraftur i taflmennsku hans hef- ur sprungið út eins og rós á vori í þessum tveimur síðustu mótum. Sprenging er í rauninni rétta orðið yfir hinn snögga þroska Jóhanns og reyndar á það við um ungu ljónin öll, eins og Helgi Ólafsson hefur rétti- lega bent á í viðtali við fjölmiðla. Næstur í þrepi er gömul en vígfús kempa í íslensku skáklífi, enginn annar en Ingvar Ásmundsson skóla- meistari með 2405 ELO-stig. Ingvar hefur aldrei látið deigan síga í skák- inni og enda þótt hann standi nú ekki lengur jafnfætis „strákunum“, Haukur Angantýsson. getur enginn þeirra „bókað“ vinning á aldursforsetann fyrirfram. Síðan kemur alþjóðameistarinn Haukur Angantýsson með 2395 stig. Haukur er hreint óútreiknanlegur sem skákmeistari. Á góðum degi gæti hann sigrað hvern sem vera skal ofantaldra. Hann hefur ekki lagt þá stund á skák sem ýmsir vinir hans hefðu kosið. Langar fjarvistir frá fósturjörðinni og brauðstritið hafa dregið úr setum hans við skákborð- ið. Að lokum koma tveir ungir og öfl- ugir meistarar, þeir Elvar Guð- mundsson með 2330 stig og Björgvin Björgvin Jónsson. 30

x

I. alþjóðamótið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.