I. alþjóðamótið


I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Síða 38

I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Síða 38
"WF Hið glœsitega félagsheimili FESTI þar sem skákmótið fer fram. fiskveiðum og hefur svo haldist allt fram á 5. tug aldarinnar að dregið hefur verulega úr landbúnaði. Hann var þó umtalsverður fyrrum og er sagt frá því að árið 1779 fengu Grindvíkingar verðlaun fyrir garð- yrkju frá Danakonungi og hlutu þau 14 bændur. Allgóð skipalægi hafa verið í Grindavík frá upphafi að minnsta kosti í skaplegum veðrum. Munu kaupstefnur hafa hafist þar snemma. Á miðöldum sigldu þang- að bæði enskir og þýskir kaupmenn. Áttu þeir illt saman og er sagt frá því að 1532 dró til bardaga á milli þeirra. Eftir bardaga við enska réðu Ham- borgarkaupmenn öllu með verslun í Grindavík um hríð. Þegar einokunarverslun komst á árið 1602 varð Grindavík ein af lög- skipuðum verslunarhöfnum. Versl- unarsvæði hennar var lítið, náði að- eins yfir Grindavík og Krísuvík. Verslunin var í Járngerðarstaða- hverfi fram til ársins 1640 en þá hættu kaupmenn siglingum sínum þangað, töldu hana of hættulega. Urðu Grindvíkingar því að sækja verslun til Básenda uns verslun var tekin upp að nýju í Staðarhverfi árið 1664. Árið 1897 hóf Einar G. Einars- son, frá Garðhúsum að versla í húsi sem hann lét byggja ofan við lend- inguna í Járngerðastaðahverfi. Var það fyrsta fasta verslunin í Grinda- vík til ársins 1932, að þeim fjölgaði. Grindavík liggur fyrir opnu úthaf- inu þar sem brimaldan gengur næst- um óbrotin á land. Hafnarskilyrði voru þvi nánast engin frá náttúrunn- ar hendi. Sjósókn var því frá fyrstu tíð erfið og áhættusöm frá Grinda- vík, en þaðan var þó jafnan mikið útræði, meðal annars á vegum Skál- holtsstóls. Má enn sjá för í klettum fyrir ofan varnirnar þar sem skipin voru sett upp. Fram til ársins 1926 voru veiðar eingöngu stundaðar á árabátum, oftast teinæringum á vetrarvertíðum en á minni bátum annan tíma ársins. Eftir 1926 komu vélar í alla vertíðar- báta og þá komu þilfarsbátar til sög- unnar. Stærð bátanna miðaðist þó við að hægt væri að setja þá á land. Árið 1939 var ráðist í að grafa inn í Hópið. Var það gert með handverk- færum. Eftir það gátu bátarnir flot- ið inn rennuna í hálfföllnum sjó og fengið öruggt lægi í Hópinu. Árið 1945 voru innsiglingar og höfnin bætt mikið. Var þá farið að gera út stærri báta og má því með sanni segja að eftir það hefjist hið mikla framfaraskeið í Grindavík, sem stað- ið hefur óslitið síðan. Hafnarframkvæmdir voru geysi- miklar á árunum 1973—1976. Inn- siglingin dýpkuð og gerð öruggari, að frumkvæði ríkisins og með lánum frá Alþjóðabankanum vegna eld- gossins í Vestmannaeyjum. Voru Grindavík og Þorlákshöfn taldar best fallnar til þess að þjóna Vest- mannaeyjabátunum. Nú er höfnin í Grindavik sú fullkomnasta á Suður- nesjum, en innsiglingin er erfið þeg- ar vindátt er þannig að mikið brim- ar. Vegna nálægðar við miðin og góðra hafnarskilyrða, hefur Grinda- vík verið notuð sem uppskipunar- höfn fyrir báta frá öðrum útgerðar- stöðum SV-lands en aðallega af Suð- urnesjum. Niður við ströndina eru víða stór hús — fiskverkunarstöðvar sem fylgja miklu athafnalífi þar í byggð. Fyrsta hraðfrystihúsið í Grindavík var byggt árið 1941. Hraðfrystihús Grindavíkur hf. og má segja að það hafi risið fyrir sameiginlegt átak flestra hreppsbúa. Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. var stofnað 5 ár- um síðar. Nú starfa alls 9 aðrar fisk- vinnslustöðvar í Grindavík, og að auki ein fiskimjölsverksmiðja. Salt- fiskverkun er hlutfallslega meiri en annars staðar á landinu og stærstu saltfiskverkunarfyrirtækin Fiskanes hf. og Þorbjörn hf. eru stærst sinnar tegundar á landinu. Önnur fyrirtæki í Grindavík eru tengd byggingariðn- aði eða styðja útveginn. Meðal ann- ars trésmiðja, tvær vélsmiðjur, neta- og nótastöð. 38

x

I. alþjóðamótið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: I. alþjóðamótið
https://timarit.is/publication/2054

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.