V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 15

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 15
VESTMANNAEYJAR 1. Landslag og jarðsaga Vestmannaeyjar eru eyjaklasi viö suöurströnd íslands, í suövesturátt frá Eyjafjöllum og Eyjafjallajökli sem viö þær munu kennd. Hekla, Selfoss og Vestmannaeyjar mynda þríhyrning sem er nærri jafnhliða, og eru Vestmannaeyjar syösta hornið í honum. Aöeins ein eyjanna er í byggö, Heimaey, en alls eru eyjarnar 15 og auk þeirra fjöldi skerja og dranga. Heimaey er stærsta eyjan, hún er um 16 ferkílómetrar aö flatarmáli, um 6 km aö lengd en um 3 km á breidd þar sem hún er breiðust. Næst Heimaey aö stærö er Surtsey sem er um 2,5 ferkílómetrar aö flatarmáli. Eyjarnar hafa myndast viö eldvirkni og er þeirri sköpunar- sögu ekki lokiö, eins og kom í Ijós viö myndun Surtseyjar og gosiö í Heimaey. Þaö var snemma morguns 13. nóvember 1963 aö menn uröu varir viö stórkostleg eldsumbrot í hafinu rétt sunnan og vestan viö Vest- mannaeyjar, en þar haföi verið um 130 m dýpi. Daginn eftir örlaði á nýrri eyju. Gosiö hélt áfram mánuö- um saman fyrst sem sprengigos, sem var stórkostlegt á aö horfa, grjótflugiö er talið hafa komist í meira en 2 km hæö og gosmökkur- inn miklu hærra. í apríl 1964 hætti sprengigosiö og viö tók hraungos er stóö í um þaö bil ár. Þetta gos byggöi eyjuna upp og treysti hana. Hún náöi 173 m hæö þar sem hún er hæst og varö um 2,5 ferkílómetrar. Ári síðar hófst gos um 1 km sunnan viö Surtsey og hlóöst þar smám saman upp önnur eyja er nefnd var Syrtlingur. En brim og stormar unnu á henni og eru þar nú aðeins grynningar. Á jólum 1965 hófst enn gos, í þetta sinn um 600 m sunnan Surseyjar og hlóöst þar upp lítil eyja. Þaö gos stóö um 8 mánuði, en seint á árinu 1966 opnaðist gossprunga í Surts- ey og flæddi hraun úr henni fram í sjó. Síðan hefur allt veriö meö kyrrum kjörum í Surtsey, hún hefur veriö friðland og rannsóknarstaöur vís- indamanna. En hafið brýtur á henni í sífellu og fer eyjan minnkandi hægt og hægt. Surtseyjargosiö er mesta sjávargos á íslandi, þeirra er menn hafa sögur af, og í hópi lengstu sam- felldra eldgosa á íslandi frá því aö sögur hófust. En surtur var ekki alveg dauður þótt hlé yröi á gosum í Surtsey. Aðfara- nótt 23. janúar 1973 vöknuöu Heimaeyingar viö þaö aö eldgos var í eynni noröan viö Helgafell. Svo vel vildi til aö veöur var hagstætt og flotinn í höfn, og var því hægt aö flytja alla íbúana til meginlandsins á fáeinum klukkustundum. Ösku- fall og hraunmolar frá gosinu ollu stórskemmdum á bænum þegar fyrstu daga gossins. Fjöldi húsa lenti undir ösku og enn fleiri brunnu. Framan af rann hraunið í austurátt og þar í sjó fram, en öskufallshrinur dundu á bænum. En eftir um þaö bil hálfan mánuö fór hraunið aö renna til vesturs meö sjónum og stefndi á hafnargarðinn. 19. og 20. febrúar geröist þaö svo aö hraunstraum lagöi til vesturs og vesturhlið vikurfells þess er mynd- ast haföi viö gosið skreiö fram og gígbarmurinn hrundi. Þá hófst hraunrennsli til bæjarins og hélst þaö meö litlum hléum allan mars- mánuö. Um þetta leyti voru horfurnar ískyggilegri en nokkru sinni fyrr, allt benti til þess aö hraunstraumurinn myndi loka höfninni og hrauniö leggja undir sig bæinn. En menn gáfust ekki upp. Barist var viö hraunið með því aö kæla hraun- strauminn meö sjó. Þetta þótti heldur vonlítil barátta fyrst í staö, en smám saman fengust öflugri dælur. Ótrúlegu magni vatns var dælt á glóandi hraunið, og þaö haföi sín 13 Innsiglingin i Vestmanneyjahöfn, ,,endurbætt“ frá náttúrunnar hendi eftir gos.

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.