V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 22

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 22
Karl Þorsteins Fæddur 13.10.1964 Skákstig: 2400 2. áfangar til alþm. meistara Karl Þorsteins er yngstur keppenda á Borgarnesmótinu. Hann hefur verið í fremstu víglínu nánast frá barnsaldri með ótal sigra að baki í skólaskák og unglingakeppnum fyrstu árin. M.a. varö hann Skóla- skákmeistari íslands 1980 í eldri flokki. Sultuklessan í rjómabreið- unni mun þó vera sigur hans í Heimsmeistaramóti barna sem haldið var á vegum Sameinuðu Þjóðanna í Puerto Rico árið 1979. Karl varð Skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 1982. Árið 1983 var hann með í sigurförinni til Chicago sem áður var nefnd. Hann hefur verið þaulsætinn við skákborðið síðan, náði mjög góöum árangri á XI. Reykjavíkurmótinu í febrúar 1984 með 6V2 vinning í 11 skákum og andstæðingarnir ekki af lakara taginu, 8 stórmeistarar og 3 alþjóö- legir meistarar. Síðar á árinu 1984 tók Karl þátt í Heimsmeistaramóti unglinga í Kiljava og hafnaði í 3. sæti. Þá tefldi Karl á Ólympíumóti fyrir ísland í fyrsta sinn árið 1984. Um páskana hreppti hann eftirsótt virðingarheiti, Skákmeistari ís- lands 1985. Á alþjóðlega skákmótinu í Borgar- nesi hlaut Karl hiö eftirsótta hnoss: 3. áfanga og nafnbótina Alþjóöleg- ur meistari. Gaman veröur aö sjá hvernig honum vegnar þegar að hann nú hefur róðurinn aö stór- meistaratitlinum. Ingvar Ásmundsson Fæddur 10.07.1943 Skákstig 2400 Ingvar tefldi mikiö hér á árum áður, og tefldi margoft á studenta og Ólympíumótum og á ýmsum mót- um erlendis, yfirleitt með góöum ár- angri. Skákmeistari íslands varö hann ekki fyrr en 1979, en hann haföi tvisvar sinnum lent í efsta sæti, en beiö í bæöi skiptin lægri hlut. í fyrra skiptið tapaði hann í ein- vígi um íslandsmeistaratitilinn gegn Ólafi Magnússyni, en í seinna skiptiö stóöu leikar enn jafnir eftir fjórar skákir gegn Jóni Kristinssyni. Var þá gripiö til þess furöulega ráðs að varpa hlutkesti um titilinn, og var gæfan hliðholl Jóni í það skiptiö. Á erlendum vettvangi ber hæst glæsileg frammistaöa Ingvars á World Open í Philadelphiu í Banda- ríkjunum árið 1978. Þar náöi hann efsta sæti ásamt þekktum stór- meisturum. Nú hin seinni ár hefur Ingvar lítið teflt á opinberum vettvangi, en ,,miövikudags-menntur“ hans í lönskólanum, þar sem hann skóla- stýrir, eru víðfrægar. Ingvar tefldi á alþjóöaskákmótinu í Bláa Lóninu í Grindavík í fyrra og náði þar þokka- legum árangri. Var sérstaklega áberandi sterkur lokasprettur hans, sem bendir eindregið til þess að meö meiri æfingu ættu vinningarnir varla aö láta á sér standa. Bragi Kristjánsson Fæddur 08.01. 1945 Skákstig 2295 Alþjóðlegur meistari í bréfskák 1984 Bragi Iærði mannganginn 7—8 ára og byrjaði að tefla á skákmótum haustið 1957. Árangurinn lét ekki lengi á sér standa, og Bragi varð Norðurlandameistari unglinga árið 1961 í Reykjavík. Bragi varð skák- meistari Reykjavíkur 1968, og skák- meistari Taflfélags Reykjavíkur ári síðar. Bragi hefur oft teflt fyrir ís- lands hönd erlendis, þar á meöal á tveimur Ólympíumótum, árið 1964 og 1968, og á stúdentaskákmótum árlega 1966 til 1971. Hann hefur einnig teflt á fjórum alþjóðaskák- mótum hérlendis, yfirleitt með góð- um árangri. Bragi hefur líka lagt sitt af mörkum á bréfskákmótum, og var í fyrravetur sæmdur titlinum al- þjóðlegur bréfskákmeistari, annar íslendinga til aö ná þessum titli. 20

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.