V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 38

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Blaðsíða 38
neinu hlutverki aö gegna (hann kemur þó í veg fyrir 1. Dh1 mát) og drottningin, en ekki er alveg Ijóst hvaöa hlutverk henni er ætlaö. Samband hvítu mannanna er skemmtilega náiö: annar hrókurinn valdar riddarann og hann valdar aftur hinn hrókinn. Svarti riddarinn kemur í veg fyrir 1. Df6 mát og svarta peðið kemur í veg fyrir 1. Da4 mát. Biskupinn er líka góöur í vörninni: 1. Kc2 Bxf5 2. Dh1t Bh3, eöa 1. Dg7 Bg6. Lausin hefst á ótrúlega löngum leik: 1. Dh8! Nú er saman hvernig svartur fer aö, hvítur mátar alltaf í næsta leik. eitt fallegasta mátiö er 1. — Bxf5 (eöa Bg6) 2. Bg5 mát. Drottningin hefur þá tekið viö hlutverki hróksins sem féll og valdar riddarann. Ekki má heldur láta sér sjást yfir 1. — e4 2. Dd4 mát. Þessi dæmi ættu aö nægja til aö sýna lesendum aö Sigurbjörn Sveinsson var í senn afar listfengur og hugkvæmur skákdæmasmiöur. Dæmi hans hafa verið birt, eitt og tvö á stangli, í blöðum og tímaritum hérlendis, en engin heildarútgáfa er til af þeim, nema hvaö 64 dæmi hans voru prentuð 1977 á frum- stæöan hátt, þannig aö engar myndir eru í kverinu og heldur engar lausnir á dæmunum. Hluta ævi sinnar bjó Sigurbjörn Sveinsson í Reykjavík. Hann var þá um skeið tíöur gestur í Unuhúsi, þar sem ungir höfundar og gáfnaljós áttu griðastað og skeggræddu um hvaöeina, því aö fátt mannlegt létu þau sér óviðkomandi. Nokkrir þessarra höfunda hafa rifjað upp þessa tíma í minninga- bókum og er Sigurbjarnar þar getiö en aldrei nema aö góöu. Hann virðist hafa veriö einstakt Ijúf- menni sem kunni aö gleðja meö glöðum, en varöveitti allatíö barnið í sjálfum sér. Hann samdi sögur fyrir börn eins og áöur er getið, en einnig kvæöi og sálma. Hann virðist hafa haldiö sinni barnatrú alla ævi og þremur skákdæmum sínum gaf hann nöfn- in Trú, von og kærleikur. Þessi dæmi hafa verið oftar birt en önnur, kannski vegna nafnanna. í fyrsta dæminu mynda mennirnir kross á borðinu, og er reyndar hægt aö flytja krossinn einn reit til 36 hægri á borðinu án þess að lausnin raskist (aö vísu skipta reitirnir um liti og nöfn). í hinum dæmunum tveimur er líka nokkur samhverfa í taflstööunni, og lausnirnar bera þaö meö sér, aö þaö er hiö geómetríska form sem hefur veriö skáldinu efst í huga þeg- ar þrautin var samin. Trú NYJA LYSIÐ Von Mát í 2. leik. Kærleikur Mát í 2. leik. Lausnir á bls. 30. Guömundur Arnlaugsson BETRA BRAGÐ MINNI LYKT BETRA VERÐ

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.