Skák - 01.09.2001, Page 3
fiö s K A K
Útgefandi:
Skáksamband Islands
Ritstjóri:
Þráinn Guðmundsson
Ritnefnd:
Askell Orn Kárason
Bragi Kristjánsson
Þráinn Guðmundsson
Umbrot:
Aslaug Jósepsdóttir
jmj@islandia.is
Framkvæmdastjóri:
Ásdís Bragadóttir
Auglýsingar:
Einar H. Guðmundsson
Utanáskrift:
Skáksamband Islands
Pósthólf 8354
128 Re/kjavík
tölvupóstur: siks@itn.is
Sími: 568 9141
Fax: 568 9116
Efni m.a.
Af erlendum vettvangi
Til gamans gert
Skák mánaðarins
Mistök meistaranna
og margt fleira
Rabb
Á því sumri sem nú er að kveðja hafa íslenskir skákmenn gert víð-
reist og árangurinn ekki látið á sér standa þar sem þrír ungu meist-
aranna okkar hafa náð áföngum að alþjóðlegum titli og stór hópur
ungra manna hefur öðlast dýrmæta reynslu og eldskírn.
Sumir hafa talað um íslenskt skákvor eftir deyfð í nokkur ár og
líkt sumrinu við þá tíð upp úr 1980 er mestur uppgangur var í ís-
lenskri skák og ótrúlegur blómatími fór í hönd. Tíminn einn mun
leiða það í ljós, hvort hér er að hefjast nýtt blómaskeið í skákinni, -
við vonum það sannarlega og Skák óskar þeim Braga Þorfmnssyni,
Stefáni Kristjánssyni og Arnari Gunnarssyni til hamingju með áfang-
ana. Það er hins vegar með ólíkindum að á meðan þeir voru í harðri
keppni í sumar skyldi heyrast rödd héðan að heiman sem sendi þeim
tóninn yfir hafið og gerði lítið úr árangrinum.
Keppni í Landsliðsflokki íslandsþingsins er nú nýlokið, en um
hana verður fjallað á öðrum stað í þessu blaði. Ástæða er þó til að
fara hér nokkrum orðum um aðdraganda keppninnar. Þar voru fast-
ir liðir eins og venjulega. Eg minnist þess varla að deilur og þras hafi
ekki verið árviss undanfari Islandsþingsins allt frá 1925. Deilt hefur
verið um staðsetningu (Reykjavík eða landsbyggðin), þátttökurétt,
fjölda keppenda, landsliðsrétt, verðlaun, tímasetningu (á páskum
eða ekki páskum), rétt eða réttleysi útlendinga - og svo mætti áfram
telja. Og lögum hefur verið breytt, reglur settar og endanleg lausn
fundin, jafnvel Monradkerfi eða áskorendakerfi-, þar sem teflt var
um réttinn til að skora á ríkjandi Islandsmeistara, notað um tíma, en
allt hefur komið fyrir ekki og enn vilja menn breyta til!
Ég tel raunar keppnisform tveggja seinustu ára - útsláttarkeppni
s.l. ár og 10 manna Landsliðsflokkur nú ekki til bóta og raunar frá-
leitt að fækka keppendum niður í 10 þegar svo margir hefðu þurft
að fá tækifæri til að spreyta sig. Það er næsta víst að er aftur líður að
íslandsþingi munu menn setjast á rökstóla og setja nýjar reglur um
“fjöreggið” sjálft. Þetta sýnir raunar að mönnum er ekki sama um
þennan hornstein íslensks skáklífs. Hitt væri ills viti ef íslensk skák-
forysta og skákmenn nenntu ekki lengur að þræta um flest sem tím-
inn færir þeim upp í hendur!
Næsta eintak af Skák verður helgað minningu Jóhanns Þóris Jóns-
sonar sem hefði orðið sextugur á þessu hausti, væri hann enn á með-
al okkar.
Þráinn Guðmundsson
S K Á K
203