Skák - 01.09.2001, Síða 23
12. Þetta varðar ekki eins miklu
þegar teflt er hér syðra þar sem
flestir eða allir keppendur búa.
Að auki má geta þess að það hef-
ur ekki ósjaldan borið við að
erfitt hefur verið að manna 12
manna flokk, a.m.k. þannig að
stór hluti keppenda hefur lítið
komi nærri baráttunni um titil-
inn sjálfan. Þótt Fjarðabyggð
gengi af skaptinu og Hafnfirð-
ingar hlypu enn og aftur undir
bagga með Skáksambandinu í
þessu efni var ákveðið að láta
fyrri ákvörðun um 10 manna
flokk standa.
Baráttan um brauðið
Þessi fækkun úr 12 í 10 hafði
ýmis áhrif. Harðar var barist um
keppnisrétt fyrir vikið, áskor-
endaflokkur var óvenju vel skip-
aður í vor og þegar fréttist af for-
föllum þeirra nafna Helganna
Ólafssonar og Áss risu nokkra
ýfingar meðal skákmanna um
það hverjir skyldu skipa hin
lausu sæti. Ekki blandar Tíma-
ritið Skák sér í þær deilur öðru-
vísi en að benda á að líklega
hefði ekki verið hægt að manna
flokkinn betur - að teknu tilliti
til forfalla. Hér voru mættir til
leiks flestir af okkar virkustu og
efnilegustu skákmönnum og
margir með nýlega titiláfanga
undir hendinni.
Framvindan í keppninni sjálfri
sýndi líka að flokkurinn var
mjög jafn - ef frá er skilinn sig-
urvegarinn sjálfur sem bar nokk-
uð af hinum.
Áhorfendur sitja heima
Mótið var merkilegt af fleiri sök-
um; í fyrra var í fyrsta sinn reynt
að senda skákirnar út á Netinu.
Það tókst sæmilega þótt byrjun-
arörðugleikar gerðu vart við sig.
I þetta sinn var skrefið stigið til
fulls; leikir í öllum skákunum
aðgengilegir fyrir heimsbyggð
alla í beinni útsendingu.
Áhorfendur á skákstað voru fáir
og raunar fátt gert til að laða þá
að, enda miklu þægilegra að sitja
bara til tölvuna heima og fylgjast
með. Hvar sem er í heiminum!
Séu hinir tölvutengdu taldir
með má leiða líkum að því að
aldrei hafi fleiri áhorfendur
komið á nokkurt Islandsmót.
Breyttir tímar - breyttar aðstæð-
ur.
Netvæðingunni fylgir það líka
að menn spjalla saman um skák-
irnar og mótið og liggja eklei á
skoðunum sínum. Áður var
minnst á deilur vegna vals á
þátttakendum. Þar er enn eitt
tímanna tákn á ferðinni; ákvarð-
anir skákforystunnar eru nú
mun sýnilegri en áður og hver
sem er getur sagt sína skoðun á
þeim á hinu ágæta Skákhorni.
Oft verða menn óbilgjarnir og
yfirlýsingaglaðir á þeim vett-
vangi og víst er að sumir þátttak-
enda í Landsliðsflokki hefðu
gjarnan viljað hefja þátttöku
sína lausir við glósur og gagn-
rýnisraddir á Horninu. Sérlega
þótti mér vegið að sjálfsögðum
og eðlilegum rétti heimamanna í
Hafnarfirði að fá það fyrir sinn
snúð að hafnfirskur skákmaður
tefldi á mótinu, einkum þegar
þeir áttu kost á jafn góðum full-
trúa og raun var á. Seint gengur
sumum skákmönnum að skilja
að þeir eru ekki einir í heimin-
um og fyrirgreiðsla opinberra
aðila sem fyrirtækja gerist aldrei
sjálfkrafa.
Úrslit mótsins urðu eins og
vænst var. Stigahæsti keppand-
inn, Hannes Hlífar Stefánsson
sýndi nokkra yfirburði og sigraði
örugglega. Hann komst langt á
reynslu og rútínu og þurfti sjald-
an að spýta verulega í lófana.
Kollega hans í stórmeistarhópi,
Þröstur Þórhallsson, var greini-
lega ekki í góðri æfingu en fylgdi
Hannesi þó fast eftir þar til hann
tapaði fyrir Braga í 7. umferð. Af
öðrum þátttakendum beindist
athyglin einkum að þeim Þor-
fmnssonum, Birni og Braga. Sá
fyrrnefndi byrjaði betur; taplaus
þegar tveimur umferðum var
ólokið og átti góða möguleika á
sínum fyrsta áfanga að alþjóðleg-
um meistaratitli. Það var þó ekki
síður taflmennska hans sem vakti
áhuga, djarfur, næstum ósvíf-
inn stíllinn fleytti honum langt
og þrátt fyrir allan glannaskap-
inn slapp pilturinn ávallt við tap.
Þetta dugði honum þó ekki í
lokin og áfanginn rann honum
úr greipum. Hann ætti þó ekki
að vera langt undan. Bragi byrj-
aði nokkuð brösuglega en með
þremur sigrum í röð seint í mót-
inu var hann farinn að eygja
möguleika á sínum þriðja og síð-
asta áfanga, en steytti á skeri í
síðustu umferð þegar hann laut í
lægra haldi fyrir öðrum titilveið-
ara, Stefáni Kristjánssyni. Bragi
endaði í 3-4. sæti
ásamt Jóni Garðari Viðarssyni
og á örugglega skammt eftir í
lokaáfangann.
Jón byrjaði afleitlega enda mjög
æfingalítill. Hann náði 5 vinn-
ingum í hús í síðustu 7 umferð-
unum og sýndi enn og aftur
hversu öflugur skákmaður hann
er. Jón á reyndar tvo áfanga á
S K A K
233