Skák


Skák - 01.09.2001, Page 30

Skák - 01.09.2001, Page 30
Helgi Ólafsson Loksins féll Berlínarmúrinn Á árunum í kringum 1972 kom út bókin 50 selected chess masterpieces eftir júgóslavneska stórmeistarann Svetozar Gligoric. Þetta voru skákir sem hann hafði birt undir titlinum Skák mánaðarins og spannar tímabilið 1965 til 1970. Ég komst yfir eintak og fyllyrði að þarna var komin ein besta skák- bókin þessara ára. Gligoric átti í samkeppni við höfunda sem voru að ryðja sér til rúms á borð við Englendinginn Raymond Keene, sem í upphafi vandaði noldcuð til verks síns en lagðist síðan alfarið í ritun rusl-bóka. Um þessi rit sagði Lev Poluga- jevskij að honum dygði að opna þau á fyrstu síðu og loka síðan. Bók Gligoric gefur góða mynd af þróun skákteóríunnar frá þessum tíma; skákir Fischer, Larsen og Spasskijs eru fyrirferð- armiklar og þar er ein grein með fyrirsögn:”Það hefði mátt gerast fyrr” - it should have happened before. Viðureignin var milli Tal og Botvinnik í sovésku spar- takíöðunni 1966. Tal vann þess skák en Botvinnik, sem eins og í einvíginu 1961, beitti Caro- Kann vörn. Nú fann Tal loksins leið til að mæta þessari traustu vörn; hann endurbætti skák úr einvígi Spasskij og Petrosjan þetta sama ár og vann sannfær- andi sigur. En þetta endurkomu einvígi var að mínu áliti ákveð- inn sorgarleikur; Mikhael Tal var boðberi ferskra vinda í skák- heiminum og hefði vel átt að njóta heimsmeistaratitilsins lengur. Mátti sín hinsvegar lítils gegn hinum vængjuðu orðum Botvinniks frá fyrri tíð: “skák- heimurinn þarf öruggan og traustan heimsmeistara;” og kom sér upp slíkum forréttind- um að hann gat nýtt sér Idásúl- una um endurkomueinvígi gegn Smyslov 1958 ogTal 1961. Lifi leiðindin. Eftir einvígið 1961 var reglan felld úr gildi enda menn al- mennt orðnir þreyttir á þrásetu Botvinniks í stóli heimsmeistara án verðleika. Botvinnik-tíminn hefur enn áhrif þó patríarkinn sjálfur sé kominn undir græna. Mér fannst athyglisvert að hlusta á viðtal við forseta FIDE Kirsan Iljumzinov segja frá því að eitt af skilyrðum alþjóða ólympíu- nefndarinnar fyrir því að veita skákinni inngöngu á sjálfa leik- ana væri að forréttindi einstakra skákmanna yrðu afnumin. Þetta er hægt að bera saman við tenn- is-mót og golf-mót. I venjuleg- um golfmótum þeirra fremstu þurfa allir keppendur að lcomast í gegnum niðurskurðinn eftir tvo fyrstu dagana. Tiger Woods var næstum því dottinn út úr tveim risamótum í sumar en hann var í byrjun vertíðar hand- hafi allra stórmótatitlanna. Einvígi Kramnik og Kasparov var ekki nema nokkurra daga gamalt þegar Kasparov byrjaði gamla Botvinnik sönginn. End- urkomueinvígi þyrfti að fara fram, “strax í dag”. Að mínu áliti stendur sú krafa hans aðeins traustari fótum en hjá Bóta gamla hér áður fyrr en allur þessi leiði ferill, sem Karpov treysti í sessi á duggarabandsárum sín- um, tekur vonandi endi. Berlínar múrinn Slíkt hefði mátt gerast fyrr - Kasparov hefur áreiðanlega hugsað eitthvað í þá veruna er hann stóð upp frá borðinu í Astana í vor eftir að hafa lagt Kramnik að velli í úrslitaskák mótsins og loks náð að brjóta niður þennan múr sem Kramnik kom sér upp í London í fyrra og kallast Berlínar-vörn. Ég tók til 240 S K A K

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.