Viljinn - 27.01.1969, Page 17
Kæru skólasystkin!
Núna, þegar mikla stundin er loks liðin upp, er ekki laust
við, að glímuskjálfti grípi mig. Ég lít í eigin barm og
spyr sjálfa mig, hvað hægt sé að gera til að vekja
skemmtanalífið f V. I. upp af dvala.
Öllum er ljóst, að starf formanns skemmtinefndar er mjög
vanþafckað, en þrátt fyrir það dylst engum, að skemmtana-
lffið í V.f. hefur að miklu leyti legið niðri sfðasta kjörtíma-
bil.
Nauðsynlegt er, að sama tilbreytingarleysið rfki ekki næsta
ár, hvernig sem atkvæðin falla. Plötukvöld, Glaðheimar &
Dyngja, Skemmtikvöld og kvikmyndakvöld. Annað hefur ekki
verið á boðstólum undanfarið og þá einnig mjög takmarkað.
Þessu þarf að breyta.
Það hlýtur að vera hægt að nota betur hina fjölmörgu vinnu-
og skemmtikrafta, sem f skólanum eru. T.d. að nemendur
lótu ljós sitt skína f einhverri mynd á dansleikjum skólans,
og það er alveg óskiljanlegt, af hverju nemendamótskórinn
er ekki látinn koma fram oftar en einu sinni á ári. Einnig
ætti að vera hægt að finna frambærilegt fólk f leikþætt f
skólanum og fá því til meðferðar leikrit, sem hægt væri að
sýna á sérstökum kvöldum án sambands við skemmtikvöld.
Plötukvöldin gætu auðveldlega færst í skemmtilegra form,
og skemmtikvöldin þurfa að vera fleiri en eitt.