Víðsjá - des. 1946, Blaðsíða 34
32
SAMSÆRIÐ GEGN FRIÐINUM
Alger leynd er fyrsta skilyrði
þess að vel takist.
Hér fer á eftir ágrip af ræðu
Foringjans:
.... Eftir sex ár er ástandið
í dag á þennan veg: Hin þjóð-
lega og stjórnmálalega eining
Þýzkalands er komin á, lítils
háttar undantekningar þó.
Lengra verður ekki komist án
blóðsúthellinga.
Það er hernaðarnauðsyn að
ákveða landamærin.
Pólverjar eru ekki neinir ný-
tilkomnir óvinir. Pólland verður
ávallt í flokki fjandmanna
vorra. Þrátt fyrir vináttusamn-
inga hefur Pólland alltaf búið
yfir þeirri fyrirætlun að nota
hvert tækifæri til að gera oss
tjón.
Danzig er alls ekki aðalatrið-
ið. Hér er um það að ræða að
færa út vort Lebensraum aust-
ur á bóginn og tryggja oss mat-
væli, leysa baltneska vandamál-
ið. Aukningar matvælabirgða er
aðeins að vænta úr fámennum
héruðum. Auk frjósemi landsins
mun skipuleg nýting þess undir
stjórn Þjóðverja auka afköstin
geysimikið.
Evrópa á engan annan kost.
Nýlendur: Vér skulum hafa
gát á því að taka ekki við ný-
lendum að gjöf. Þær geta ekki
leyst birgðavandamálið. Munið
— hafnbann.
Ef örlögin knýja oss til bar-
áttu við vesturveldin, er hag-
ræði mikið að eiga víðar lend-
ur austur frá. í stríði getum
vér enn síður en í friði leyft oss
að eiga allt undir þeirri tilvilj-
un að uppskeran verði góð.
Ibúar í héruðum, sem ekki
eru þýzk, skulu ekki gegna her-
þjónustu, en þá skal nota til
vinnu. — Pólska vandamálið
verður ekki aðgreint frá bar-
áttunni við Vestur-Evrópu. —
Innri mótstöðuþróttur Póllands
gegn bolsevismanum er vafa-
söm vörn gegn Rússum. —
Vafasamt er, hvort hernaðar-
sigur að vestan verður unnin
skjótlega, vafasamt einnig um
aðstöðu Póllands. — Pólska
stjórnin fær ekki staðist áleitni
Rússa. Pólverjar telja þýzkan
sigur í Vestur-Evrópu hættu-
legan og munu reyna að spilla
fyrir oss. Þess vegna getur ekki
komið til mála að hlífa Póllandi
og ekki er um annað að ræða
en
ráðast á Pólland við fyrsta
tækifæri.
Vér getum ekki vænzt þess, að
tékkneska fyrirtækið endurtaki
sig. í þetta sinn verður stríð.
Hlutverk vort er að einangra
VÍÐBJÁ