Víðsjá - des. 1946, Blaðsíða 38
36
SAMSÆRIÐ GEGN FRIÐINUM
Afleiðingarnar:
Bretar geta ekki barizt á
meginlandinu. Daglegar árásir
flughersins og flotans munu
rjúfa allar aðdráttaleiðir þeirra.
Tímatöf verður ekki Englandi
í vil. Þýzkaland blæðir ekki út í
orustum á landi. Heimsstyrjöld-
in og síðari hernaðaraðgerðir
hafa sýnt og sannað, að þessi
aðferð er nauðsynleg. Heirns-
styrjöldin neyðir oss til þessara
hernaðarathugana, sem mikil-
vægastar eru:
1. Hefðum vér átt öflugri
flota í stríðsbyrjun eða hefðu
herir vorir snúið sér til Erma-
sundshafnanna, mundi endirinn
hafa orðið allur annar.
2. Land verður ekki sigrað
af lofther einum. Það er ó-
gjörningur að ráðast á alla
staði í einu, og fáeinna mínútna
töf gefur verjendunum tóm til
viðbúnaðar.
3. Það er nauðsynlegt, að
hika ekki við að nota öll hjálp-
artæki.
4. Þegar landherinn hefur
ásamt flotanum og flughernum
náð mikilvægustu stöðvunum,
þurfum vér ekki lengur að ausa
framleiðslu iðnaðarins í botn-
laust gímald bardaganna á
landi, hún getur komið flug-
hernum og flotanum að gagni.
Landherinn verður þess vegna
að vera þess megnugur að ná
þessum stöðvum. Árásin verð-
ur að vera skipulega undirbúin.
Athuganir og rannsóknir í þessu
skyni eru brýn nauðsyn. Tak-
markið er ávallt að koma Eng<
landi á kné. Engin tegund vopna
ræður úrslitum í orustu nema
meðan fjandmaðurinn á hana
ekki. Þetta gildir um eiturgas,
kafbáta og flugherinn. Það
gildir t. d. um hinn síðast
nefnda á meðan Bretar eiga ekki
varnarvopn, — en það mun ekki
gilda 1940 og 1941. Gegn Pól-
verjum munu skriðdrekarnir
koma að góðu gagni, af því að
pólski herinn hefur engin vopn
gegn skriðdrekum.
Þegar yfirburðir í vopnum eru
ekki fyrir hendi, verður þess í
stað að nota óvæntar árásir og
snjalla herstjórn.
Þetta.er árásaráætlunin.
1. Rétt mat á vopnunum og
notagildi þeirra, t. d.
a. Orustuskip eða flugvéla-
skip, hvort er notadrýgra?
Hvert einstakt eða heildin?
Flugvélaskipið er hentugast,
þegar um skipavernd er að
ræða.
b. Er það mikilvægara að
gera loftárás á orustuskip en
verksmiðju? Hvar eru snögg-
astir blettir á framleiðslukerf-
inu?
2. Herinn verður að vera
VÍÐSJÁ