Víðsjá - dec 1946, Page 61
STREPTOMY CIN
59
verið af sárasótt, kom í ljós, að
tilraunadýrin lifðu af, ef strep-
tomycin-skammtarnir voru bara
nógu stórir. Litlir skammtar
höfðu hins vegar ekki nægileg
áhrif.
Nýtt vopn í baráttunni
við berklana.
Mestar vonir gera menn sér
þó um lækningamátt strepto-
mycin í baráttunni við berkl-
ana. í janúar 1946 skýrðu tveir
vísindamenn við Mayo-stofnun-
ina, Hinshaw og Feldman, á
fundi í Detroit frá reynslu sinni
af tilraunum við að lækna
berkla með streptomycin. Fimm
kg. af þessu sjaldgæfa efni
höfðu verið notuð við tilraun-
irnar, en það er gífurlega mik-
ið, þar eð venjulegur skammt-
ur er þúsundasti hluti úr
grammi. Báðir höfðu vísinda-
mennirnir komizt að þeirri nið-
urstöðu, að streptomycin væri
áhrifamesta lyf, sem enn hefði
verið reynt við berklum. Séu
naggrísir smitaðir sams konar
berklasýklum og þeim, sem
venjulega valda berklaveiki í
mönnum, hafa sýklarnir mjög
skæð áhrif. Hinshaw og Feld-
man sögðu frá því, að eftir að
berklaveiku naggrísunum hafði
verið gefið streptomycin í sex
mánuði, voru öll dýrin á bata-
vegi.
Lyfið hefur einnig verið próf-
að á berklaveiku fólki, en lík-
legt verður að telja, að áhrif
þess fari að vissu leyti eftir
eðli sjúkdómsins. Því miður er
því svo farið um sjúkdóma í
lungum, að öll lyf eiga þar erf-
itt um að komast að sjálfum
sýklahreiðrunum. Menn gera
sér þó vonir um að geta kom-
ið í veg fyrir, að veikindin
breiðist út í heilbrigðan lungna-
vef, en slíkt gefur góða raun, ef
nógu tímanlega er byrjað. Til-
raunum þessum er haldið áfram
af kappi, og þess er vænst, að
bráðlega verði komist að nið-
urstöðu, hvort sem hún verður
svo jákvæð eða neikvæð.
Streptomyein hefur engin
skaðleg áhrif á mannslíkamann,
að heitið geti. Þó hefur verið
veitt eftirtekt ýmsum fylgiá-
hrifum, sem líklega verður að
skrifa á reikning streptomycins,
t. d. höfuðverk, hita og nokkr-
um ofnæmisviðbrigðum, en
þarna mun sennilega um að
kenna að miklu leyti, að ein-
hverjir aðkomuhlutir hafi kom-
izt í lyfið. Vona má, að þessum
fylgiáhrifum verði útrýmt að
fullu áður á löngu líður, þar eð
nú er unnið að því af kappi að
hreinrækta lyfið, og mönnum
hefur þegar tekizt að framleiða
það í kristöllum eða sem ýmis
konar sölt.
VÍÐSJÁ