Freyja - 01.02.1900, Blaðsíða 5

Freyja - 01.02.1900, Blaðsíða 5
FHEYJA hör?“ „Étf erallt af að elska. Komdu ;ið elska með mér.“ Svo hann för með ungmenninu.og bráðum hittu þeir yndislega stúlku, rétt eins og hana Fanny þarna. Hún hló og roðnaði alveg cins og hún Fannv gjörir, þegarég er að tala um hana, svo ungmennið varð ástfangið í henni, alveg eins og einhversem ög iná ekki nefna, varð í henni Fanny. Svo var honum stundum strítt.,einsog Fanny stríðir einhvcrjum, svo sættust þau og sátu saman i rökkrunum, og skrifuðust á, og aldrei vrtru þau á- nægð neuia þegar þau voru saman. bau voru altaf að lita hvort eftir öðr- u, en lötust þó aldrei sjást. Um jól vóru þau trúlofuð, og bráðum ætluðu þau að gifta sig, alveg eins og Fanny ogeinhver. En loks hurfu þau, og ferðamaður- inn leitaði, en fann þau ekki. Svo hélt hann áfram ferð sinni, þangað til hann mætti miðaldra manni, og hann spurði hann á þessa leið: „Hvað gjörir þú hér?“ „Ég er altaf að starfa. Komdu að starfa með mér.“ Svo fór liann að starfa með mann. inum, og héldu þó áfram ferð sinni, sem öll lág gegnum skóg. Fyrst var hann grænn, eins og á vordegi, en nú var hann þéttur og myrkur, eins ogá liallandi sumri, ungu trén vóru farin að blikna lítið eitt. Með mann- jnum var kona á aldur við hann. Það var kona hans. Þau áttu börn saman, sem voru með þeim. Þannig héldu þau öll áfram gegnum skóginn og ruddu og hreinsuðu af veginum hvar sem þau fóru, lim og fallin tré, og báru þungar byrðar. Stundum komu þau að grænum skógargöngum, sem lágu I aðra áft og þá heyrðu þau barnslegar raddir eina og élna t senn sem kallaði og sagði: „Faðir! faðir! ég er annað barn bfddu líka eftir fmér “ Þá stanzaðj allur hópurinn og fagnaði litla gest inum. Stundum komu þau að, þar sem margar brautir lágu á ýmsa vegu út. í skóginn. Þá stönzuðu þau öll, og eitt af börnunum sagði: „Faðir! ég ætla til sjóar.“ Annað sagði: „Ég ætla til Indía.“ Þriðja sagði: „Ég ætla að leita mér fjár og frama.“ Og hið fjórða sagði: „Faðir!égætla til himnartkis.“ Svo skildu þau með mörgum tái um,og skilnaðurinn varð sár; því þau fóru sitt í hvora áttina. En barnið sem æt.laði til himins, teið upp í loftið, og hvarf f gullroðin skýin. I hvert skifti sein slfkurskilnaður átti sér stað, ieit ferðamaðurinn á nianninn, og sá að hann leit upp fyrir trön, í loftið, þar sem dagurinn þvarr og nóttin breiddi út sína dökku vængi. Hár hans var tekið :ið grána, en samt urðu þau að halda áfram ferð sinni, því þau áttu enn þá langa leið fyrir höndum, og mikið starf ó- gjört. Svo margar sárar skilnaðarstundir höfðu nú komið fyrir, aðböminvoru ðll farin. Þau vóru nú aðeins þrjú eftir, hjónin og ferðamaðurinn. Þó héldu þau áfram fcrð sinni. Skógur- inn var farinn að fölna, og blöðin föllu gnl og visin á jöiðina. Loks komu þau að nýjnm vega mótum, en sú braut var dimmri en allar hinar; þó héldn þau eftirhenni

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.