Freyja - 01.02.1900, Blaðsíða 16

Freyja - 01.02.1900, Blaðsíða 16
FREYJA 1<> greiða fram úr fíieinum spursmálum sem ávalt eru fyrir hendi. Hvergi híífum við betra tækifæri til að vinna gagn kvennfólki okkar, en með því að hlvnna að kvennfélög- unum; þau eru okkar eigin stofnanir, og það er undir sjálfum okkur koinið hvort þau í framtíðinni verða okkur til sóma.eða ckki. Okkur sem búum hjá cins friáls- Ivndri og framtakssamri þjóð og Ameríkumenn eru, ætti að vera það gleðiefni, að eiga kost á að koma saman í hinum íslenzku byggðarlögum til að ræða áhugamál ukkar. Þau ættu ekki að vera eingöngu peninga spurs- mál, því á meðan þau eru það, vcrða þau ekki vinsæl, eða margmenn. Eg er sannfærð um aðtregðan á því að konur gangi í kvennfélögin, er sprottin af þvi, að þeim geðjast ekki að stefnu þeirra. Þau eru ekki nógu ai- menns eðlis til að sameina það undir eitt merki. Nokkr- ar tombólurog kvöldskemmtanir fullnægja ekki hug- mynd þeirra um tilgang kvennlegrar sainvinnu. Þess vegna þarf að laga og fullkomna kv.fél. þangað tíl þau eru boðleg hverri konu, sem í nokkrum slíkum félags- skap vill standa. Gjöra þau aðgengileg fyrir ungu stúlkurriar, og þannig fá þær til að taka þát.t í málum þeiin sem hérlendar konur láta sig mestu skifta, og bezt samrýmast þörfum okkar, og kröfum komandi tíma. Það mál sem ég álít að konur ættu sörstaklega að taka sér fyrir hendur, er menntun kvenna; og ættu a11 - ar íslenzkar framfara konur þess vegna að vinna að því, að koma á sameiginlegu kv.fé.l. hjá okkur ísl.sem ynni í líkum anda og W. C. T. U. Þetta volduga félag het’ur eins og kunnugt er, bindindismálið fyrir sitt aðal- mál, en liefur og þessutan beinlínis ogóbeinlinis mennt- andi áhrif á meðlimi sína. Ef okkur tækist að koma fé- lagsskap okkar í líka átt, muudi hann ná miklu meiri útbreiðslu, og smádeildir komast á, víðar en þar sem Isl. eru nógu margir til að mynda söfnuð. í nokkrum stórbæjum hér vestra eru nógu margar ísl. konur til að mynda dálítið kv.fél.; og yrðu þær varar við, að eitt- hvað verulegt vekti fyrir kvenfólkinu til samans, mundu einnig verða með. Gætiþá kvennfólkið komið fram sein starfandi heild, og þá væri i sannleika mikið unnið. A margan liátt getum við stutt að menntunhinn- ar uppvaxaitdi kvennþjóðar og eflt hana, þóviðhvorki

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.