Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 5

Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 5
FIiEYJA 65 TIL FREYJU. Freyja er frábœr meyja, frumleyt maryt gerir seyja. Freyju er éy fús að lmeyja. Freyja má ekki deyja. Freyja er fús að skrifa fólki til yayns oy þrifn. Freyja vill fjötrum b>fa. Freyja má til «ð lifa. S. J. Jóhanncsson. Hluttekning kvenna A PAN-AMERICAN SÝN- INGUNNI. Forstöðunsfnd Pan Ameríku sýn- ingarinnur tilnefndi 25 konur úr borginni Buffalo í aðstoðarnefnd við sýninguna. Þessi kvennnefnd bauð svo hverju ríki og héraði í Ameríku að senda þangað sínar tvær konurn- ar hverju, til að taka þátt í undir- búningnum og vinna með sér. For- seti nefndarinnar er frú William Haralin, en ungfrú María De Frost er ritari. Af því að hin síðar nefnda er ritstjðri, var henni á liendur falið að láta samverka systur sínar vita hvað sýningunni liði, svo þær gætu aftur skýrt lesöndum sínum greini- lega frá því. Kvennnefndinni er skift í sex deiidir; þannig: móttöku- nefnd, listaverkanefnd, íþróttanefnd, menntamálanefnd, félaga og niður- n'iðunarnefnd og almenningsnefnd. Allar þessar nefndir vinna samhliða samskonar karlnefndum, en ekki út af fyrir sig, eins og verið hefur á öll- um undanförnum sýningum. Allir kvennlegir sýningarmunir eru hér á sínum rétta stað, með og innan um þá muni er karlmenn eiga. Þessi samvinna hefur heppnást ágætlega. Þessum konum er ætlað að taka á móti sýninga.rgestum og skemmta þeim, ásamt ýmsu öðru. Þærhafaátt mikinn og góðan þátt í að efia áhuga hinna fjölmennari kvennfélaga f öll- um pörtum Ameríku og yfir höfuð. alls almennings. Sumar af þessuui konum hafa jafnvel ferðast um og lialdið fyrirlestra á ýmsum stöðum í þaríir sýningarinnar. Ungfrú Vesta E. Severinghaus í Chicago er að- al umsjónarkona fyrir vcsturríkin. Ungfrú Josephine W. Chapman var byggingarmeistari að Nýja-Eng- lands sýningarbyggingunni, og hún var eina konan í byggingarnefnd- inni. Ungfrú Chapman er álirin ein af beztu byggingarmeisturum þar eystra. Hún hefur gjört uppdrætti af ýmsum stórkostleguin og vönduð- um byggingum bæði í Massachus- etts og annarstaðar. Nýja-Englands- sýningarbvggingin er ineð ganial- dags nýlendu sniði, stór og vegleg, úr rauðum múrsteini, með hvftum marmara bryddingum og stendur í miðjum garði, umgirt af allskonar blómum og runnavið. Kona sú sem bezt hefur starfað til að gjöra sýningu þessa aðlaðandi, er ungfrú Adelaide J. Thorp, sein er aðstoðarumsjónarkona við að prýða sýningarbyggingarnar innan. Ung- frú Thorp var fengið þctta starf

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.