Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 8

Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 8
FREYJA 68 inamma sár og óánægð. Aumingja góða, þolinmóða, þreytta mamma. En þegar verkið er gjört fljótt og vel, hýrnar yíir mömmu, hún kyssir litlu elskurnar sínar, sem þá hoppa af stað til að leika sör ánægð við sig og alla aðra. Hafið þör aldrei fundið þenna mismun? Það er aldrei svo lítið sem gjöra þarf, að það sé ekki þess virði að gjöra það vel. Það er góð regla að lfta á klukk una, þegar byrjað er á einhverju verki, ætla því hæíilegan Mma og reyna sig svo við hana. Venjið yður á hugulsemi. Lærið hina gullnu reglu og venjið yður á að viðhafa hana ætíð og æfinlegá f breytninni við aðra. Þessa alkunnu reglu: að brcyta við aðra, eins og þör vilduð að aðrir breyttu við yð- ur. Yðar einlæg Amma. L Ó M U R I N N . Að kveða svo víst ertu vanur, — þör vcfst ekki tunga um góm: ,,Eg syng nfi eins vel eins og svanur ,,þó sé ég með kvef-hásum róm. ,,Og sá sem við sönginn minn eyrir, „er syng ég hér dag eftir dag „svo glaðlegan, hugfanginn hevrir „að hef ög æ margraddað lag.“ Ó, lfkþér ei, Lómur, við Svaninn, hans ljóð eru háfieyg og göð; en ldjóð þín sem væru’ illa vanin, já, verri en útburðar hljóð. E. S. ^ tf* ^ *f? t?? % * 4 1 HEFNDIF 4* JU .. . iA. Onnur saga Jóns Arnasonar. JL FYRIR FREYJU * A’ °ALMANN' 4 4 Það varí jfmí mánuði. Ég hafði sezt út í horn á búðinni minni til að hvíla mig, því ég var þreyttur. Ég var að hugsa um að skrifa einhverj- um af lánardrottnum mínum og biðja þá að vera þolinmóða, eins og hann Job sálugi hafði verið og þá skyldt ég greiða inn síðasta pening. Þessu var ég að velta fyrir mér, þeg- ar herra jón Arnason heilsaði uppá mig. Ég fagnaði honum vel, þvf mér þótti sannarlega vænt um komu hans Eg vissi Iíka, að hann mundi segja mér eittlivert æflntýr er dreifðu drungaskýjunum sem huldu sálar- himin minn. Þegar ég var búinn að útvega Jóni stól og gefa honum ágætann vindil, sem hann kveikti i umsvifa- laust, hallaði hann sér makindalega upp að stólbríkinni og horfði á eftir reykhnoðrunum þar til þeir hurfu út i loftið. Svo sogaði hann upp í sig aðra munnfylli af reyk og and- aði henni frá sér aftur með sömu ró og stillingu. Ég virti manninn fyrir mér,eins og ég hafði svo oft gjört áð- ur. Hárið var jarpt, en nokkuð tek- ið að grána sérstaklega á bak við evrun. Hann var fremurholdskarp- ur, en vndislega vaxinn og vel nieð-

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.