Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 12

Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 12
72 FREYJA aður. En samt var ég sonur ffiður íníns — manns, sem hann skoðaði <>vin sinn, og þess yrði ég svo að gjalda.“ ,,Eg velti þessu fyrir mér á ýmsa vegu. Við gætum gifst, þegar við næðum lögaldri, en að gjöra það þvert á móti vilja foður míns ogeiga það á hættu að hann vildi aldrei sjá mig framar, að ög mætti aldrei sjá œskustöðvarnar eða foreldrana, sem ög vissi að höfðu elskað mig inni- lega, var líka voðalegt. Eg komst þvi brátt að þeirri niðurstöðu, aðallt sem ég gæti gjört, væri að bíða og vona, alveg eins og mamma hafði sagt." „Þegar við höfðum þannig setið nokkra stund þegjandi, tök mamma þannig til máls:“ ,Þfi talaðir um það við mig sein- ast þegar þú komst, að þig langaði til að fara utan. Eg hef fært það í tal við föður þinn, og hann tók vel á að leggja þér fö til fararinnar. Við erum við góð efni og höfum ekki nema ykkur drengina tvo til að njóta þess. Einar er efni í góðann bónda, svo faðir þinn er alveg liætt- ur við að láta hann ganga skóla- veginn.1 „Það er lekki að orðlengja það, ég fór heim daginn eftir. Faðir minn var fár og fór að vinna. Eg sagði Stfna frá utanferð minni og kvaðst mundu verða tvö ár utan. Komst ég þá að þvf, að hún liefði orðið þess áskynja að föður hennar væri illa við föður minn, því eitt sinni hefði hún í grannleysi svarað "því til, að faðir Jóns (n. 1. minn) mundi vera góður bóndi. Iiefði prestur þá beðið. hana að nefna hann ekki við sig því hann vildi helzt gleyma honum ef bann gæti. Aftur á móti sagði ég henni hvers ég hefði var orðið, og hvað mamma sagði, að við yrðum að bíða og vona. Okkur kom sam- an um að skrifast ekki á, þvf prestur var bréfhyrðingamaður, og fengi hún bréf frá útlöndum, myndi hann gruna, að ég væri bréfritarinn. Og hinsvegar, ef ég sendi henni bréf í bréfl til mömmu, gæti svo farið að það lenti í höndum pabba, því allt var sameiginlegt með þeim foreldr- um mfnum. Enda höfðum við bæði þá skoðun, að bréfaskifti elskenda hefðu oft að vandræðum orðið, er féllu í hendur óvinveittra eða óráð- vandra manna. Næsta vor fór ég til K.hafnar með fyrstu vorskipum. Þar dvaldi ég einn mánuð; svo fór ég yfir til Noregs og var svo heppinn að kom- ast inn undir hjá stóru byggingafé- lagi, sem byggði hús af öllum mög- ulegum stærðum og tegundum og á ýmsum stöðurn. I þeirra þjónustu var ég í nærfelt tvö ár. Fyrra árið fékk ég af og til bréf frá foreldrum mínum, þau voru mér dýrmæt, því þau báru vott um óbreytta ást for- eldra minna. I einu þeirra sagði mamma: ,Gamli séra Jón er tekinn að hrörna og hefur nú tekið sér að- stoðarprest, ungan, gáfaðann, ný- vfgðann prest, sem sagður er mesta lipurmenni, en þó nokkuð drykk- feldur.‘“ „Seinna árið var ég hingað og þangað svo bréf mfn glötuðust á ýmsa vegu, þó náði ég í eitt frá föður mfnum. í því sagði hann:“ [Niðurl.) I

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.