Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 7

Freyja - 01.05.1901, Blaðsíða 7
FREYJA 07 cr mjög merkiieg' og heitir „Barátt- an fyi'ir tilverunni.“ Mörg' hin stærri kvennfélög hafa komið sér saman um að haida árs- fundi sína í Buffalo í sumar. Aheyr- endasalurinn í söng-musterinu, (Temple of music) verður hafður fyrir alla þesskonar fundi, og allar konur sem þangað korpa fáþar hlýj- ar viðtökur í kvenn-stjórnarbygg- ingunni. Fyrir utan skrifstofur og aðrar embættisfærslustofur kvenna, eru þar líka setustofur fyrir kvenn- fólk, og þar getur það fengið tebolla sér til hressingar, hvflt sig og rabb- að saman sér til skemmtunar og upp- byggingar. A sérstökum deildum sýningarinn- arverður sýndur vísindalegur mat- artilbúningur, matjurtagróður og rætt um notkun ýmsra lítt þekktra plöntutegunda. Einnig verður þar sýnt hvernig fága megi rið af göml- um krystall, og hreinsa gull, silfur og gimsteina stáz; ásamt eirblönd- usteyptum fornmyndum og glitofn- um veggtjöldum. Frederick M. Smith. Barnakró. Börnin mín góð:— Ég ætla nú að tala fáein orð við yður í þeirri von, tið einhver hafi gagn af því, og að yður mislíki ekki við mig, þó ekki komi ,,saga“ í þetta skifti. Og þó að samtalið verði „suudurlausir þank- ar“ og smá ráðleggingai'. Það er þá fyrst: Venjið yður ekki á seinlæti. Jafnvel, þegar elckeit iiggur á. Gleymið ekki því, að „smekkurinn sá sem kemst í ker keiminn lengi eftir ber.“ Verið íljót 5 fætur, háttið snemma en vet ið ár- risul, þvl „morgunstund hefur gull í mund.“ Ef þér hafið þau verlc á hendi, sem gjörast eiga á vissum tímum, þá líðið yður undir enguni ki'ingumstæðum að vanrækja þau, nema til þess sé gild og góð ástæða. Jíeynið ekki að telja yður trú um að þér ætlið aðeiu* að gjöra það í þetta eina skifti. Því, líði maður sér að gjöra það einusinni.hættir manni meira til þess aftur. Efþör halið þau störf á hendi, scm gjörast eiga „rétt einhoerntímiij þá lúkið þeim svo lijótt sem auðið er, svo þau livorki komi í bága við önnur störf, eða séu óunnin ef eitthvað óvænt kallaði yður til annara starfa. Lærið snemma að taka vara á tímanum, því hann bíður aldrei eft- ir neinum. Sá sem kann að meta tímann og nota hann réttilega, mun sjaldan hafa ástæðu til að taka yðr- un fyrir ónotuð tækifæri- • Að fullnægja ætíð skyidunum fyrst og skemmta sér á eftir, er góð regla- Enda nýtur engin skylduræk- in manneskja neinnar sannrar á- nægju, meðan hún á óunninstörf yf- ir höfði sér. Margir hanga marga klukkutíma með ólund við þau vcrk sem afkasta mætti á stuttum tíma. og barma sér svo yfir því, að hafa aldrei frí. 0g þegar mamma kallar, fer ólundarsvipurinn vaxandi, en verkinu miðar lítið.'Og svo verður

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.