Freyja - 01.05.1906, Page 5
VíII. io.
FREYJA
239
með sýnina þá, er vökunætur rofa?
IX.
Allt norrænt kveöur Noreg heilla-minni,
meö nýrri dögun yfir gæfu sinni,
og brýnij- kraft aöhafa’ í öllum höndum
við hugarstefnu’ í Noröurálfu-löndum.
En friðar-styrkur frjálsra anda og handa
um framtíö ríki’ á kóng-stól Norðurlanda!
á meöan þjóösœmd þrífst og tungur standa.
4. júlí 1905.
—(Eimreiðin.)
Góöar fréttir.
Kvennfrelsismálinu þokar óöum í áttina betur en fólk almennt
ímyndar sér. Sú fregn kemur nú frá Italíu aö hefðar-frú nokkur
hafi við síðustu þingkosningar heimtaö aö greiða atkvoeði og að
henni hafi verið leyft það mótmœlalaust. Þessari fregn fylgir og
sú merkilega uppgötvun, aö á Italíu sé arkvæöisrétturinn alls ekki
bundinn viö kyn, heldur eingöngu við aldur og þekkingu. Það er
því skoðun mannaaðkonur á Italíu geti greitt atkvæði viö þing-
manna og œðri embœttismanna kosningar hvenær sem þær krefj-
ast þess. Og þetta eina dæmi virðist benda á að ítölsku konurn-
ar séu að vakna til meðvitundar um afl sitt og tilgang tilveru sinn-
ar. Þetta atriði hefir vakið mikla eftirtekt og mestu menn þjóöar-
innar eru því hlynntir að k'onur hafi og noti atkvœðisréttinn. Til
dœmis ritaði signor di Rudini, (strangur afturhaldsmaður) bréf er
síðar var prentað í helztu tímaritum landsins, þar sem hann heldur
mjög fram kjörgengi kvenna, og Signor Luchini segir, að jafnrétti
sé bæöi æskilegt og löglegt, af því að hluttaka einstaklinganna —
kvenna sem karla í landsmálum, skerpi áhuga þeirra fyrir þeim.
Hverjum mundi líka detta í hug að neita því, að þessu sé þannig
varið?