Freyja - 01.05.1906, Blaðsíða 8
FREYJA
VIII. io.
^38
Innganguk.
Náttúran gefur einum og sérhverjum einstakling eitthvaö það,
sem einkennir hann frá öllum öörum, andlega eöa líkamlega —
kannske hvorttveggja. Alveg eins og hver árstíöa fylgir eftir ann-
ari með sín fegurðareinkenni, þannig er tilvera einstaklinganna
breytileg. Hún á, ef allt fer skaplega, sitt vor, sumar, haust og
vetur. En þessar breytingar eru venjulega svo hægfara að maöur
tekur naumast eftir þeim.
Um fá börn er hœgt að segja að þau bara vaxi. Þau þurfa
á ást og umhyggju aö halda, alveg eins og blómiö þarf á sól og
regni aö halda, ef þau eiga aö vaxa samkvæmt lögum náttúrunnar,
en ekki gagnstoett þeim.
Lœrðu aS þekkja sjálfa þig, er nauðsynlegt fyrir alla, ekki
sízt ungar stúlkur. Allar stúlkur vilja vera fallegar og aðlaðandi,
og margar halda að þær séu það, ef þær hafa tindrandi augu, mik-
iö hár og falleg föt. Allt þetta er í sjálfu sér gott, en það er ekki
einhlýtt. Sönn fegurð byggist á góðri heilsu, góðum siöum, og
hreinu og kærleiksríku hjarta.
Stúlkurnar eiga aö hugsa snemma um framtíö sína, hvernig
hún eigi að vera, til þess hún verði sjálfum þeim til gleði og sóma
og heiminum til blessunar. Góð heilsa er eitt af aöal skiljjrðum
fyrir framtíðar farsæld og nytsemi sérhvers einstaklings í mannfé-
laginu og þess vegna ber að gæta hennar vandlega og byrja á því
snemma. Sérstaklega er það móðurinnar verk að gjöra það, því
allt frá tilveru barnsins stendur hún því næst. Hún annast það
á ungbarnsárum þess, leikur viö það á unglingsárum þess, segir því
tilsiðanna ogbendir því áveginnsemþaö á að ganga. Hún er fyrsti
kennari þess og á öllum öörum fremur aðvinna ást þessog tiltrú.
Mœður! Gleymið ekki skyldum j-öar gagnvart börnum yðar,
þœr byrja snemma en enda seint. Kennið þeim að þekkja sig sjálf
og tilgang tilveru sinnar — þekkja framþróun lífsins, göfgi þess og
hreinleik. Látið börn yðar ekki þurfa að sækja ráðningu á hinum
alvarlegustu gátum lífsins út á villigötur heimsins. Kennið þeim
að tilveran sé háleit og göfug, uppruni lífsins og áframhald þess á-
Eramhald á bls. 241.