Freyja - 01.05.1906, Síða 7
VIII. io.
FREYJA
231
dómnuin sagði eitt einasta orö meö eða móti. Seldon vildiþáláta
víkja tylftardómsmönnum fyrir vanræktar skyldur en dómarinn
sagði málinu lokið og þar við sat. Susan B. Anthony var dæmd
til að borga $100,00 í sekt. Hélt hún þá all harðorða rœðu, þó
að rétturinn reyndi að trufla hana, og kvaðst hún aldrei skyldu
borga cent af þeirri sekt, né heldur gerði hún það. En dómarinn
þorði ekki að klaga undan því, hann vissi vel að ef hanngerði það,
myndi lögmaður hennar áfría málinu og kæmist þá upp hin ó-
löglega meðferð hans á því.
Fáum mun koma til hugar að Italir séu drenglyndari þjóð en
Bandaríkjamenn, en hve afar ólíkt hafa þó þessar tvær þjóðir far-
ið með mál jressara tveggja kvenna, svo undurlík í eðli sínu. Fá-
ir munu og ímynda sér að Italir standi á hœrra siðmenningarstigi
en Bandaríkjamenn og þó finna þeir strax og viöurkenna réttmoeti
jafnréttiskrafa kvennþjóðarinnar þegar henni er þarhreift, sem
Br. menn hafa ekki viljað eða getað séð, þó fyrir því hafi veriö
barist í meira en hálfa öld.
TIL UNGRA STÚLKNA OG MŒÐRA
Eftir Unni.
Ritstjóri Freyju hefir beðiö mig að fylla, það sem hún kallar
auttrúm í Freyju,og rita um þau mál sem ungar stúlkur og mœöur
sérstaklega varðar og ég hefi lofað að gjöra það. Ég er nokkurra
barna móðir og nú orðin amma. A lífsleið minni hefi ég reynt og
séð margt af því sem fyrir flesta kemur. Og ef ég með því að tala
við yður gegnum Freyju gœti orðið einhverjum að liði, er ég fús
að gjöra það, jafnvel þó ég sé ekki vön að rita í blöð og þess vegna
ekki laus við að vera feimin. Ég ætla að tala við yður blátt áfram
ems og ég hefi stundum talað við dœtur mínar. Ég vildi engan
rnóðga, en svo fegin gleðja og leiðbeina eftir megni.
Ég hefi tekið mér leyninafn til þess að koma í veg fyrir að
meiða nokkurn, þó égí samtali mínu við ungar stúlkur segi frá
ýmsum spaugilegum atriðum sem komið hafa fyrir mig og aðrar
ungar stúlkur á ýmsum tímum.