Freyja - 01.03.1909, Síða 8
192
FREYJA
Kaflar úr bréfum.
XI. 8.
Frá Dr. Sig. Júl. Jóhannessyni.
-----Þaö er þá fyrst aö minnast á,,Freyju“. Umhana
er þaö aö segja að ég ann henni alveg eins Og fyr, vildi fegin
geta gjört eitthvaö henni til liös, hefði sent henni eitthvaö
fyrir jólin ef tími heföi leyft, Ég fylgi nákvœmlega sömu
stefnu og hún berst fyrir eins og ég gjöröi áöur og hefi alveg
jafn góöa einurð á því að kannast við það nú og ég hafði þá.
Jafnrétti kvenna og fullkomin mannréttindi eins og Freyja
berst fyrir er það göfugasta í blaðamennsku sem ég þekki;
ég lofa þér því að ég skal öðruhvoru rita i Freyju þegar tími
og kringumstæður leyfa.-----------
Frá skáldiíiu J. Magnúsi Bjarnasy>n.
-----Bréf frá þér er okkuræfinlega kœrkominn gestur,
og ,,Freyja, “ er okkur allt af eins kœr. Þegar hún kemur,
er hún jafnan fyrsta blaðið, sem lesið er í þessu húsi.----.
Hver einasta kona œtti að kaupa ,,Freyju“ og borga hana
reglulega, og sýna með því, að þœr kunni að meta hið mikla
og góða starf þitt.
Ég óska hinum nýja féfagsskap ykkar allrar hamingju
ogblessunar. Ég ann sh'kum félagsskap, bæði sakirmálefn-
isins sjálfs, og líka vegna þjóðernisins, því allt, sem er ís-
lendingum til sóma, er mér kœrt. Og þaö er mín hjartans
sannfæring, aö kvennfólk eigi að hafa sömu réttindi og karl-
menn. Ég hefi alt af haft þá skoðun, að íslenzkt kvennfólk,
yfir höfuð, stæði íslenzkum karlmönnum framar í flestu, sem
snertir hið fagra og góða. Og hvað staðfestu og félagsskap
snertir, eru íslenzkar konur œtíð langt á undan íslenzkum
ka'rlmönnum.--------
Ath:— Bæði þessi bréf eru rituð löngu eftir að gr. sú kom
út í Freyju er mrs. I. Gooðman finnur ástæðu til að rita á
móti í Hkr. 25. feb. s. 1. Fyrra bréfið ritað 11. feb. '09,
síðara 12. s. m. Einkennilegt, aö tveir karlmenn, og það,
tveir mestu rith. og skáld Vestur-ísl. skyldu ekki sjá það sem
hún sá. Annaðhvort er þar vits eða mannkosta munur, nema
hvorutveggja sé. En á hvora hliðina? Látið verkþeirra svara.
Ritst.