Freyja - 01.03.1909, Blaðsíða 13
.8 .XI
FREYjA
væri hrædd um að missa vald yfir tilfinningum sínum ef hún
tefði lengur. ,, Eftir þetta verðurhún aldrei þessum manni aö
bráð, “ hugsaði Rossi og fór að skrifa. En nóttin umkringdi
hann, því ljósið hans fór með henni.
XII.
Rossi var tœplega klœddur morguninn eftir, þegar barið
var að dyrum og Brúnó kom inn lúpulegur og hikandi.
,, Þér íarið ekki til Donna Róma í dag, herra, ‘ ‘ sagði hann,
,, Og hví ekki?“
,,Hafið þér séð myndina af yður?“
,,Tœplega. “
,,Sama er meðmig. Hún hefir passað það vel, lokaðhana
af og látið annan en mig hjálpa sér með hana. Samt sá ég
hana þegar hún byrjaði og veit hvað hún þýðir.“
,,Og hvað þýðir hún?“
,,Júdas. Júdas! Og þér sátuð fyrir þeirri niynd í fjóra
daga og vitið þó ekki að hún á að tákna júdas Iskaríot og
skreyta gosbruunsskálina ásamt hinum postulunum, á kaup-
torginu þar sem allir geta bent á yður. “
,, Er þetta allt?‘ ‘
,, Allt! Allt! Andstyggileg skrípamynd af yður á miðju
torginu, gjörð í versta tilgangi! I dag hefir hún gestaboð, og
inyndina til sýnis yður til háðnngar! Hafið ráð þó heimskur
kenni og farið hvergi, herra Rossi.“
,, Brúnó, ‘‘ sagði Rossi og tók í öxlina á honum. ,, Heyrðu
mig nú í eitt skifti fyrir öll. Verið getur að Donna Róma hafi
notað mig sem fyrirmynd Júdasar, og fyrst þú segist hafa séð
það, er það líklega svo. En þó hún hefði haft mig fyrir fyrir-
mynd Andskotans. skyldi ég samt fara og treysta henni að
eilífu! ‘ *
,,Skylduð þér þó?“
,,Já, svo hjálpi mér guð! Láttu þérnægja þetta, vinur,
og tölum svo ekki meira um það. “
Þegar David fór af stað til aðheimsækja Rómu var óvana-
lega margt fólk á strætunum. Þyrptist það áöll götuhorn til aö