Freyja - 01.03.1909, Page 14

Freyja - 01.03.1909, Page 14
igo FRE'/Ja XI. 8 íesa stóra auglýsingu, sem fest hafði verið upp hvar sem fœri gafst. Neðan undir henni var innsigli Innanríkismálaráðgjaf- ans og hljóðaði yfirlýsingin á þessa leið; ,,Rómaborgarmenn! —Þar eö stjórnin hefir hleraö, að hópar af ósjálfstœðu íólki, óvinir r'kis vors og þjóðfélags, undir forustu útlendra Lýðstjórnarsinna, guðleysingja og An- archista séu að œsa þjóðina til uppreistar gegn lögum, sömd- um af löglegum fulltrúum þjóðarinnar og undirrituðum af konungi vorum, og á þann hátt vekja óeirðir, sem ósamboðn- ar eru jafn siðaðri og göfgri þjóð, og myndi mjög lítilækkaoss í augum annara þjóða. Þá gjörir stjórnin hér með þá yfirlýs- ingu, að hún lýður engum að brjóta eða lítilsvirða landslögin, Þess vegna bannar hún öllum stranglega að halda opna fundi á nokkrum opinberum stöðum úti eða inni, ergtuðla megi að því, að vekja framan nefndar óeyrðir. ‘ ‘ ------o------- XIII. Akvegurinn og sléttan umhverfis Trinita de Monti var þakin af hestum og alls konar kerrum og léttivögrium ogher- bergi Rómu full af fólki þegar Davidkom. Hann varhœgur eins og menn, sem venjast því aö eftir sér sé tekið og um sig talað miður góðgjarnlega, Róma tók vel á móti honum og sagði svo hátt að sem flestir mættu heyra: ,,Velkominn, hr. Rossi! Loksins komið þér þó. “ Lœgra sagði hún : ,,Vertuná- lægt mér og farðu ekki fyr en ég leyfi þér. “ David varð starsýnt á hana. Sami eldurinn og kvöldið fyrir brann úr augum hennar, svipurinn var hátíöiegur, líkt og hetjunnar, sem berst við voðalegan liðsmun — viss um sigur. en ákveðin í að íalla aö öðrum kosti. Gestirnir skiftust í fjóra hópa. I þeim fyrsta var barón Bonelli, stóð hann þögull og hátíölegur með kulda glott á vör- um hjá hœgindastól greifainnunnar,frænku Rómu, sem núvar öll upp dubbuð úr ilmvatni og dupti og þakin í koddum og púðum. I öðrum hópnum var Don Camillo og nokkrar hefð- ar dömur kátar og máiskrafsmiklar. I þriðja hópnum Lena og Olga fréttaritararnir og Madame Stella, týzku konan, og

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.