Freyja - 01.03.1909, Page 18

Freyja - 01.03.1909, Page 18
‘9'4 FREYJA xi a. og tvœr fconur sóktu um a5 komast í skólastjórr/. Út af því, og fleiru, var búist viö töluvert heitum kosningum.. Viku fyr- ir kosningaraar komust konurnar a‘ð þvr, að nöfn þeirra allra. höfðu verið strikuð út af kjörskránum', og þá um seinan að fá því kippí í liö eftir venjulegum reglum. Þeir sem áttu að yíirfara Iistana, kváðust hafa gleymt kvennfólkinu. Þykir saga sú ósennileg og einhver hefir munað eftir því meðan ver- ið var að fyrirgera atkvœðisrétti þess. Sjálfar mótmœltuí konurnar þessarr aðferð svo kröftuglega að nöfn þeirta voru fœrð inn á kjörskrárnar og fulltrúar þeirra náðu sœti í skóla- stjórninni. Sama kom fyrir f bas . þeim er Groveland heitir. Þar voru nöfn ir8 kvenna ólöglega strikuð út af kjörskránum £ einu og fengu þær konur engar bætnr á þeirri aðferð að þvf sinni. O, konurnar fá borgaraleg þegnréttindi fyrirhafnarlaust ef þær baravilja!!! —Eða,. þegar guð hjálpar þeim, sem ekki hjálpar sér sjálfur. Dr. María Merrith Crawford er fyrsta kona, sem náð hefir þeim heiðri og tiltrú að verða yfirlæknir við Brooklyn sjúkrahúsið. Þaðan fór hún til að taka að sér alla umsjón á Wíllíamsburg sjúkrahúsinu. Þar er hún aðal upþskurðar- lceknir og hefir fjóra aöstoðarlækna við starf sitt. Öllura nema henni sjálfri þykir mikils um vert, að henni, tiltölulega ungri stúlku skyldi vera fengin í hendur, hver staðan annari ábyrgðarmeiri, sem margir eldri stéttarbrœður hennar heíðu gjarnan viljað ná í en fengu ekki. Hin œfa-gömlu rauðaviðartré í California, sem h vergi heimi eiga sinn líka fyrir stœrðar og fegurðarsakir hafa nauð- uglega sloppið viö exi ágjarnra f járplógsmanna. Fyrir milli- göngu kvennfólksins heiir stjórrdn í Californiu keypt þau af iélagi er áður þóttist hafa keypt þar timburleyfi fyrir jafnmörg fet aí timbri á öðrum stjórnarlöndum, og reiknast að vera í þessum trjám. Framvegis verða þessi tré varin skemdum og svœði því er þau standa á snúið upp í listigarð. Hver vill segja að konur láti sig engu skifta framtíðarmál þjóðar sinnar?

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.