Lísing - 01.02.1899, Side 7
framkvæma þetta þá verðnr minna úr, þeim hættir stundum til
þess, að hnjóða í þá sem bölva þeim og svara þeim orði til orðs
og gjöra þeim skaða sem hata þá eða ofsækja. Ritningin bann-
ar konum að tala á mannfundum en hinar réttrrúuðu kvenn-
frelsis-konur skella skolleirum við þessum boðum, stinga sam-
viskunni í vasann og tala samt, eins og rétt er. Ritningin
bannar mönnum að leita sjúklingum lækninga og segir að þeir
skuli lækna þá með bænum, en ég held að fáir séu svo vel kristn-
ir, jafnvel ekki klerkar sjálfir þótt þer stiðjist fast við heilagan
bókstaf. Ritningin bannar mönnum að fara í lög við náunga
sinn. Menn mega ekki höfða mál á móti öðrum; menn mega
jafnvel ekki verja sig I málum. En eigi menn að fara að lifa
eftir þessu í verkinu, þá fer nú trúin að fara út um þúfur.
Henni er skotið út í horn á meðan og samviskan sett undir
farg. Hér sjá menn að þessi lög sem menn hafa sett sér eru
brotin; það er aldrei farið eftir þessum guðs boðum og þó á
samviskan að vera samfara guðs orði.
Þá er nú kaþólska kirkjan Hún leggur ekki ritninguna
sem hornstein firir samviskuna heldur kirkjuna, það er að segja,
helstu menn hennar. Páfinn ræður samviskum allra kaþólskra
manna. Stundum hefur hann keift þær eins og þegar þeir
hafa selt sindakvittanir. Ef nú einum páfanum finst það rangt
sem öðrum áður firri hefur fundist rétt, þá breitist samviskan,
þá breitist réttlætishugmindin.
Ef að vér förum til hinna ímsu trúflokka, heiðingja og ann-
ara, þá verður samviska þeirra svo breitileg, að hún er sín á
bverjum tíma, sín hjá hverjum flokk. Það er valla nokkur sá
glæpur til, morð, þjófnaður, hórdómur, frillulífi, að það eigi hafi
verið talið rétt að fremja það hjá einum eða öðrum trúflokk, og
þá fóru menn um leið eftir bestu samvisku; þeir breittusvo sam-
viskusamlega sem þeir gátu og höfðu vit á. Vér skulum taka
dæmi enn. Mæður hjá oss álíta það hina helgustu skildu,
að ala önn firir börnum sínum, sína þeim ást og umhiggju sem
þeim framast er mögulegt. En mjðg er skamt síðan mæðurnar
á Austur-Indlandi álitu það heilaga skildu sína að taka börnin
ungu af brjósti sér og kasta þeim firir krókódílana í (fanges
fijóti. En báðar þessar mæður breita eftir bestn samvisku.
Menn álíta, það nú eina af helgustu skildum barnanna að sjá um
foreldra sína þegar þau eru lasin af elli eða vanheilsu, en hver
sem nokkuð þekkir t.il mannfræði veit það. að margir hafa þeir