Kennarablaðið - 01.08.1900, Blaðsíða 3
163
En ef baráttan fyrir lifandi þjóðernistilflnningu og ættjarð-
arást á að verða alþjóðarmál, þá verða; bæði barnaskólarnir og
lýðháskóiarnir að skilja það, að þetta er starf, sem þeir oiga
að hjálpa til að leysa af hendi. Lýðháskólarnir vita þetta, því
að það er einmitt aðaltakmarlc þeirra; en barnaskólarnir ,eiga
líka að vita það. Petta er eimnitt sú hugmynd, sem Pesta-
lozzi barðist fyrir, að barnaskólinn ætti að vera, til þess að
uppala þjóðina, og þessi hugmynd .kemst fyrst til framkvæmda,
þegar barnaskólamir taka þátt í starfi þjóðarinnar, því starfi,
sem gerir hana að samhuga og þróttmikilli þjóð, sem tekur
framförum og gerir skyldu sína bæði í andlegum og verklegum
efnum.
Á hvern hátt eiga nú barnaskólarnir að ieysa þetta lilut-
verk af hendi? Hvað er það, sem vór einkum eigum að hag-
nýta oss til þess að vekja þjóðarandann og fá hann til að
streyma út meðal þjóðarinnar og bera hana áfram til framfara
og fullkomnunar?
Fyrst og fremst móðurmálið.
Móðurmálið er forðabúr, þar sem skáld þjóðarinnar: hafa
falið ógrynni dýrra málma. Barnakennararnir og iýðháskólakenn-
ararnir eiga að taka málmana lir forðabúrinu og siá úr þeim pen-
inga, sem gjaldgengir eru meðal alþýðunnar — smápeninga
handa smælingjunum. Það eru skáldin, sem allra manna bezt
geta taiað við þjóðirnar og vakið þær. Oehlenschlæger,. Inge-
mann, Grundtvig, Tegnér o. fl. hafa vakið ekki að eins sínar
eigin þjóðir, Dani og Svía, heldur og allar Norðurlandaþjóðir. Eða
Runeberg? Var það ekki hann,sem vakti Finna með „Fánrik Stáls
Sagner“, sýndi þeim, hvað þeir gátu, einmitt þegar neyðin
þrengdi að og þeir þurftu mest á því að halaa?
Skóli þjóðarinnar á fyrst og fremst að vera skóli móður-
málsins. Móðurmálið á að vera aðalkjarninn í allri fræðslunni
þar. Og ég álít, að það hafl stórmikla þýðingu, að ýms kvæði
þjóðskáldanna, kvæði, sem fela í sér innilegustu þrár og óskir
þjóðarinnar, sem lýsa æðstu og göfugustu tilfinningunum og
hugmyndunum, er hún á til í eigu sinni —, að þessi kvæði sóu
ekki einungis lesin, heldur lika iærð.