Helgarpósturinn - 04.05.1979, Síða 17

Helgarpósturinn - 04.05.1979, Síða 17
—he/garpásturinrL_ Föstudagur 4. maí 1979 „Reyndar er ég þeirrar skoöunar, að langflestir eöa allir starfsmenn útvarpsins reyni aö vinna verk sin eftir bestu getu og sýna meö þvi þegnskap sinn, og starfsfólkiö tekur miöur vel upp, ef látiö er liggja aö ööru. Þaö reynir aö gera sér ljóst, aö vand- kvæöi eru á ýmsum breytingum en sumar eru orönar svo aökall- andi, aö eitthvaö veröur aö gerast. En þvf finnst ríkja um þaö of mikið tómlæti hjá yfirmönnum sinum og vill fá þaö bætt. Þetta verður æ meira áberandi. Árekstrum hefur fjölgaö I vetur, og ég veit ekki, hvort æöstu mönnum stofnunarinnar er ljóst, hve ólgan er mikil undir niöri. En ,,ei veldur sá er varar”, og ég heföi ekki tekið saman þessa greinargerð eins og ég hef gert nema af þvi aö ég tel aö hún eigi brýnt erindi viö marga og veröi tekin alvarlega.” Þannig hljóöa niöurlagsorð Hjartar Pálssonar, dagskrár- stjóra útvarpsins f rétt tæplega 40 siöna skýrslu sem hann hefur tek- iö saman og hann nefnir Dagskrárhugmyndir og greinar- gerö. Skýrsla þessi liggur nú fyrir útvarpsráöi og veröur væntan- iega tekin þar til frekari umræöu en hún hefur ekki veriö gerö opin- ber. t skýrslu sinni leggur Hjörtur til aö gerðar veröi ýmsar breyt- ingar á dagskrá útvarpsins sem getiö er annars staöar i Listapósti, en hann vikur einnig aö ástandinu innan stofnunarinn- ar og ræöir skorinort og af hreinskilni um ástandið og aöbúnaö einstakra deiida út- varpsins. Skipting í sumar- og vetrardagskrá úrelt t skýrslu sinni leggur Hjörtur áherslu á aö lögö veröi af hefö- bundin skipting sumar- og vetrar- dagskrár, og telur aö sá hugs- unarháttur sem þar liggur aö baki, standi eölilegri mótun dagskrárinnar fyrir þrifum. Þaö sem þó vegi þyngst á metunum sé aö útvarpiö ræöur ekki viö þessar breytingar að óbreyttu ástandi. Þá vikur dagskrárstjórinn að tvennu sem hann telur brenna heitar á útvarpsmönnum en nokkru sinni frá þvi aö hann tók viö starfi, en þaö er annars vegar tal um yfirvofandi fjárhags- kreppu og erfibleikar í starfsemi tæknideildar og samskiptum viö hana. Á slikum timum sé talað um það almennum oröum; spara þurfi i dagskrá og tæknideildinni þurfi aö hlífa. „Dagskráin er ekki verk neins eins manns, og hún er staðreynd eins og hún er. Mér finnst stund- um skorta á því skilning, hve gífurleg breyting hefur oröiö á henni r timans rás, þó aö oft sé kvartað yfir þvi, aö hún sé „gamaldags”. Sú staðreynd er beinlinis lykill skilnings á rikjandi ástandi. Dagskráin hefur breyst og þróast i ákveöna átt, hvort sem mönnum lfkar betur eöa verr, en útvarpiö hefur hvorki megnað aö hamla gegn þeirri þróun né fylgja henni eftir og skortir nú til þess mannafla, fé, „J mm L . ■ 91 ER YFIRMÖNNUM ÍJTVARPS EKKI LJÓST HVE ÓLG- ANERMIKIL? Helgarpósturinn birtir úr skýrslu dagskrárstjóra til óopinberri útvarpsráðs húsnæöi og tæknibúnað, og einstakir þættir i skipuiagi þess stjórn og rekstri þurfa áreiöan- lega endurskoðunar viö sem fyrst,” segir Hjörtur. Róttæk breyting dagskrár Hann segir ennfremur aö þar sem allt bendi nú til aö ekki sé lengur unnt aö halda uppi dagskránni eins og hún er vegna fjárhagsöröugleika, vinnuálags og óánægju I tæknideild og viðar, sé um tvennt aö velja: þ.e. aö breyta dagskránni i gamalt horf þar sem meginuppistaðan er lesiö, aöfengiö efni, tónlist af plöt- um, útvarpssaga leikrit og stöku samfelldar dagskrár eöa þættir og vibtöl, sem krefjast meiri tæknivinnu en lestur, eöa aö gera á dagskránni allróttækar breyt- ingar, sem viö þaö mibaðist aö gera hana einfaldari i sniðum og „strúktúrinn” skýrari en nú án þess aö hafna þeim dagskrár- geröaraðferöum, sem hafi áunniö sér vinsældir, og án þess aö hún veröi óviðráðanleg fyrir tækni- deild eöa af fjárhagsástæöum. Aörar deildir eru beönar um aö hlifa tæknideildinni, segir dagskrárstjórinn. Svar Hjartar er seinni kosturinn, og er gerb grein fyrir honum ann- ars staöar hér i Listapósti. Fréttaflutningur staðnaður Hjörtur vikur I skýrslu sinni aö einstökum deildum og starfstil- högun þeirra og ber fyrst niöur á fréttastofunni. Hann gagnrýnir þar hversu útvarpsfréttir séu hér iðulega langar og á fyrirkomulag fréttaauka. Hann bendir á aö viöa erlendis séu beinar fréttir sagöar i styttra máli en siðan séu þeim gerö ööru visi skil I sérstökum þáttum sem fréttastofurnar ann- ast. Telur hann aö hér þurfi aö veröa breyting á i þessa átt, fréttaflutningurinn sé staönaöur, þar sem fréttir séu enn sagðar og matreiddar aö formi til á sama hátt og lengst hefur verið og hlut- verk fréttastofunnar sem deildar nái i raun og veru ekkert út fyrir fréttatimana sjálfa. Hjörtur rekur einnig, aö meöan fréttastofan hafi haldiö sínu striki, hafi komið i hlut dagskrárdeildar að taka upp á sina arma ýmis fréttatengd efni eöa þætti af þvi tagi, sem æski- legra heföi veriö aö félli undir fréttastofuna en hún telji ekki unnt aö sinna sakir mannfæöar. Nefnir Hjörtur þar sérstaklega Morgunpóstinn, sem tvimæla- laust hafi sannab gildi sitt, og leggur til aö bein þátttaka frétta- stofunnar komi til i auknum mæli viö gerö slikra þátta — bæöi komi hún til liðs við Morgunpóstinn og annist klukkutima þátt á hverju kvöldi, þar sem um veröi aö ræöa efni I fréttaauka- og fréttaskýr- ingastil, efni frá Alþingi, viötöl, Iþróttir stutt erindi o.fl. sem tengt væri atburöum liöandi stundar og viðburöum, en formiö sem fjölbreyttast. Á laugardögum yröi hann gjarnan meö þvi sniöi að vera eins konar uppgjör fyrir liöna viku. Tónlistardeildin vanbúin að gera dagskrárþætti Varöandi tónlistardeildina segir Hjörtur aö hann telji veikasta hlekkinn i starfsemi hennar hve illa hún sé búin til þess aö gera dagskrárþætti, — framleiða útvarpsefni. Er það skoðun hans, að það þurfi aö vera gildur þáttur I starfi tónlistardeildarinnar aö kynna og flytja tónlist af ýmsu tagi i sérstaklega unnum þáttum. Um leiklistardeildina kemur fram aö Hjörtur telur þurfa að endurmeta hlutverk og stefnu leiklistardeildarinnar vegna gjörbreyttra aöstæöna frá fyrri tið og kemur fram aö hann hefur áöur samiö greinargerö um þaö efni, sem svaraö hafi veriö meö fleiri en einni greinargerö af hálfu leiklistarstjóra. Megininn- takiö i tillögum dagskrárstjórans er aö hann vill láta flytja flutn- ingstima vikuleikritanna og hafa hann eftir hádegi á sunnudögum en framhaldsleikrit veröi á dagskrá á þeim tima sem sjónvarpiö er I sumarleyfi. Varöandi auglýsingadeildina leggur Hjörtur áherslu á að þann- ig veröi búiö um hnútana aö mis- langur auglýsingalestur raski sem minnst áöur auglýstri dagskrá en á þvi hafi orðiö mikill misbrestur, og hann lýsir sig and- vigan hugmyndum um „pródúseraöar” auglýsingar. Sprenging yfirvofandi útaf tæknideild Um tæknideildina segir Hjörtur orörétt: „Vandi tæknideildar og sameiginlegur vandi hennar og dagskrárdeildar ög samskipti þeirra er oröinn svo viökvæmt og aðkallandi úrlausnarefni, aö það þolir enga biö aö einhverjar ákvarðanir veröi teknar. Aldrei hefur ástandiö veriö verra en i vetur, og útvarpsráöi, það kunnugt aö nokkru leyti, enda er eini nýi þátturinn, sem þaö hefur samþykkt og heföi dagskrár- deildar vegna getaö verið kominn á dagskrá fyrir nokkru, ekki kominn það enn, vegna þess aö tæknideild kvaöst ekki aö óbreyttu ástandi geta sinnt hon- um fyrr en eftir páska.” Hjörtur segir kjarna málsins vera, að án breytinga veröi samþykkt dagskrá ekki unnin nema meö þeirri tæknivinnu sem tæknideild kvarti yfir ab sé of mikil. Bæöi hún og dagskrárdeilc séu þvi i kreppu og klögumálin gangi á vixl. Agreiningur sé þarna á milli hvaö gera þurfi, „en þegar deildunum slær saman, situr allt fast og einungis er tima- spursmál, hvenær þetta leiöir til alvarlegrar sprengingar.” Hjörtur gagnrýnir aðgeröarleysi af hálfu útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra við aö finna lausn á þessu máli. Aö tekiö yröi upp vaktavinnukerfi i tæknideild yröi til bóta en Hjörtur spyr siöan hvers vegna ekki megi fela dagskrárgerðarmönnum einföld- ustu hljóöritanir á handhæg tæki oftar en gert sé og gefur i skyn að þar sé um fyrirstöðu af hálfu tæknideildarmanna aö ræöa. Um d a g s k r á r d e il d i n a segir Hjörtur Pálsson m.a. aö löngu sé oröin nauösyn á annarri verkaskiptingu og ööru sam- vinnuformi fréttastofu og dagskrárdeildar en tiðkast hafi og dagskrárdeildin ráði ekki til lengdar viö verkefni sitt og hlut- verk án einhverra breytinga. Endurskipulagning dagskrár- deildar gæti veriö allt frá hag- ræðingu og ákveðnum breyting- um á deildinni eins og hún er nú, upp i aö leggja hana niöur og skipta verkefnum hennar milli annarra deilda sem sumar séu til fyrir en meb nýjum hætti. —BVS.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.