Helgarpósturinn - 18.05.1979, Page 5

Helgarpósturinn - 18.05.1979, Page 5
5 —he/garpásturinrL. Föstudagur 18. maí 1979. Það er nú svo með flotann hérna, að meiri hluti vélstjór- anna eru réttindalausir. Þetta gerir litið framboð”, segir Gunnlaugur. „Menn byrja smátt sem 2. vélstjóri, sem þykir hvorki fugl né fiskur, siöan feta þeir sig smám saman upp i 1. vélstjora.” Og þú kýst fremur að stunda sjóinn? ,,Já, þessa stundina geri ég það”, segir Gunnlaugur. „Þetta er orðinn kækur hjá mér að leita til hafsins, enda hef ég verið til sjós i meira en 8 ár.” Hvernig hefur svo fiskast i vetur? „Ja, við höfum verið óheppnir i vetur”, svarar Gunnlaugur. „Frá þvi á áramótum höfum við setið uppi með trygginguna. Hvað er hún há? Hún er eitthvað um 319 þúsund hjá skip- stjóranum, 1. vélstjóra og 1. stýrimanni. Hásetinn fær um 240 þúsund, matsveinninn og hinir um 280 þúsund.” Finnst þér aflanum réttilega skipt? spyr ég Gunnlaug. „Það er og verður alltaf umdeilanlegt, hvor eigi rétt á meiru, sá sem hlýðir eða sá sem skipar. Ég býst nú við að skiptingin sé sanngjörn. Það sem háir okkur einna helst er fiskverðið. Það er alltof lágt. Svo er okkur sniðinn mjög þröngúr rammi, þvi alltof stór svæði eru lokuð fyrir bátana” segir Gunnlaugur. Hvað gerir þú i fristundum þinum? „Ég er heima hjá konunni og börnunum”, er hann fljótur að svara. Og hvað sérðu fjölskyldu þina oft i mánuði? „Ætli það sé ekki svona 3-4 sinnum i mánuöi, við fáum venjulega fjögurra sólarhringa fri á mánuðiV, segir Gunn- laugur, „en ef landanir eru fleiri, þá bætast við sólarhring- arnir.” Ég er nú hálf farin að skamm- ast min fyrir þessa ströngu yfir- heyrslu, en fæ þó ekki staðist freistinguna að spyrja Gunn- laug hvar hann standi i póli- tikinni: „Það fer nú eftir þvi hverjir eru i framboði. Ha, nei, ég er enginn stjórnleysingi. Menn verða bara að spjara sig i Þá er ljós var varla til — þvl siður ástog peningar, öfluðu áar vorir sjávarfangs við hina brimóttu strönd, þar sem ófáir sjóbændurnir týndu lifi sinu i of- viðrum og hafróti. Nú ku þetta heyra fortiðinni til og peningar svo til skilyrði sjómennskunnar, ásamt kannski dulitilli von um ástir I landi. Landkrabbinn lætur stundum mikið af þvi, að sjómaðurinn afli meira til hnifs og skeiðar en góðu hófi gegni, svo og að litt sé hann gamanvandur, þar sem Bakkus er. En hvað hefur sjó- krabbinn sjálfur til málanna að leggja? A þvl lék Helgarpóst- inum hugur að vita og sótti þvi Rvk. höfn heim. Hún var svo til mannlaus, þá er okkur bar að þó var einn bátur með lifi: „tappa- togarinn” Ólafur Gisli. Við fórum galvösk um borð og spurðum hver þyrði i viðtal. Voru mennirnir að vinna að vanda og gáfu lítt gaum að gaspri okkar. Varð það okkar, að ríða á vaðið og fyrir valinu varð Gunnlaugur Jónsson. Ég byrjaði á þvi að spyrja manninn hvaða sess hann skipaði á togaranum. „Ég á aö heita 1. vélstjóri”, varð honum að svari, „annars er ég nú pipu- lagningarmaður að mennt. — | LL | E Ol z Gunnlaugur: „Frá áramótum höfum viö setiö uppi meö trygginguna”. eftir stuttan stans að kona óskist”, segir Rúnar lilæjandi. Við látum þetta gott heita, ljósmyndarinn og ég, og kveðj- um þá kappa. Við vorum að tala um það I bilnum, aö ekkert vantaði nema hásetann til að fylla upp i myndina. Við erum varla fyrr búin aö mæla þetta, er maður stoppar okkur og biður um far. Svo virðist sem örlögin hafi verið okkur hliðholl þennan dag, þvi puttalingurinn er háseti. „Eða þaö er að segja, ég var það. Hef nú loks lagt sjómennskuna á hilluna eftir 10 ára þjónustu”, segir Haukur Jónsson, 24 ára að aldri, „og sit nú á skólabekk”. rugl að sjómenn séu blautasta stétt lands- Rúnar Gislason: „Eintómt ins”. þinginu, eins og annars staðar”. Við látum þetta verða lokaorö Gunnlaugs og leitum að næsta manni. Fyrir barðinu verður Rúnar Magnússon, 23, ára, 1. stýrimaður. Ég spyr Rúnar að þvi hvenær hann hafi farið fyrst á sjó. „Ég fór fyrst með pabba, smákrakki svarar hann, „þá eitthvað um 10-11 ára, — og hef fylgt honum síðan”. Segðu mér hvað er svona spennandi við sjómennskuna? „Þvi er ekki auðvelt að svara”. Ágóðavonin? spyr ég. „Það voru þin orð, ekki min. — Nei, ég hef ekki gert neitt annað og sakna þvi ekki þess, sem ég ekki þekki.” Þvi er haldiö á lofti, að sjómenn séu með blautustu stéttum i landinu. Hvað er til i þvi? „Eintómt þrugl”, segir Rúnar. „Sjómenn skvetta sér upp að sjálfsögðu eins og annað fólk, en sá er munurinn á, að þeir verða að gera sér virka daga að góðu til sliks brúks og þvi ber meira á sumbli þeirra en annarra, segir Rúnar. „Farðu bara á Borgina, þar sérðu heldri menn hafa Bakkus um hönd sér til hádegisveröar og segðu mér siöan að sjómenn sumbli mest”. „Annars djamma ég litið”, bætir hann við, ,,og er spar- samur. Enda er ég að byggja mér hús”. Vantar ekkert nema kvon- fangið? skýt ég inn i. „Já. Þú mátt bara geta þess „Ja, ég fór nú eiginlega af illri nauðsyn á sjóinn”, svarar Haukur, er ég spyr hann hvers vegna hann hefði farið á sjóinn svo ungur. „Föður minn sá ég aldrei, hann drukknaði fyrir - mina tið, og móöir min gat ekki séð ein fyrir barnahópnum svo ég varð ungur að sjá fyrir mér. Ég segi kannski ekki að sjó- mennskan hafi verið hundalif, það komu margir skemmtilegir dagar inni, en þó finnst mér ég hafa sóað burtu dýrmætum tima. Nú tala ég náttúrlega ekki nema fyrir mig. Þetta var svakalegur svalltimi og maður eyddi aurunum ekki i annað en vln og víf. Mér fannst einhvern veginn ég verða að bæta mér ærlega upp stritið á sjónum”. Ég spyr Hauk hvort honum finnist sjómenn uppskera laun sem erfiði. „Sjómennska er happdrætti. Stundum fiskast vel, stundum illa. Ég segi fyrir mitt leyti, að frekar vil ég lifa mannsæmandi lifi og fá litla aura, heldur en hitt. Þvi hvers virði eru milljón- irnar manni sem aldrei er i landi og fær þær ekki öðru visi en meö striti og streitu? Nei, þá finnst mér betra að eiga til lifs og sálar, en hnifs og skeiðar”. Haukur Jónsson er kominn á áfangastað, og kveður við svo búið. Við hin, höldum hvort til sins heima, miklu visari um lif og tilveru sjómannsins. eftir Aldísi Baldvinsdóttur Draumur hins djarfa manns? Ögn um sjómannslíf við Reykjavíkurhöfn KREBS MÁLNINGARSPRAUTUR KREBS sparar efni og tíma við málun á ójöfnum og grófum flötum. KREBS hentar jafnt til vinnu utan sem innan dyra KREBS er til í stærðunum 40-150 vatta/ afköst frá 12-28 litrar á klukkustund KREBS eru ódýrustu málningarsprautur á markaðn- um miðað við afkastagetu KREBS 40 vatta kostar aðeins kr. 16.750 Veljið KREBS málningarsprautur og sparið dýra málningarvinnu með því að mála sjálf. 4@þSVEINN EGILSS0N HF FORD HUSINU SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100 ladol! Nú fæst #7inotex - betra ^.^ nokkru^ wT Sínni §adoli w ** •’inofé* litaurvali Siðumúla15 simi 3 30 70

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.