Helgarpósturinn - 18.05.1979, Side 8

Helgarpósturinn - 18.05.1979, Side 8
8 Föstudagur 18. maí 1979. —helgarpásturinn.. ____helgar pásturínn— Utgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjati semer dótturfyrirtaeki Alþýðublaðsin: en með sjálfstæða stjórn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð mundsson. Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björr Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf steinsson Blaðamenn: Aldis Baldvinsdóttir, Guðjón Arngrimsson, Guðlaugur Bergmundsson, Guðmundur Arni Stefánsson Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason Auglýsingar: Ingibjörg Sigurðardóttir Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir Dreifingarsfjóri: Sigurður Steinars- son. Ritstjórn og auglýsingar eru að Siðumúla lt, Reykjavik. Sími 81866. Afgreiðsla að Hverf isgötu 8— 10. Sím- ar: 81866, 81741, og 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift (með Alþýðublaðinu) er kr. 3000 á mánuði. Verð i lausasölu er kr. 150 eintakið. Af hamstri Ég er á móti hamstri. Þótt hamstur eigi sér langa hefð i mannkyns- sögunni, er það ekki sá þáttur mannlegs eðlis sem mér þykir tilkomu- mestur. Gyðingar hömstruðu, söfnuðu korni til hörðu áranna og i islendingasögum segir einatt frá góðum bú- mönnum, digrum bænd- um, sem voru auðvitað ekkert annað en bévít- ans hamstrarar. Snorri karlinn Sturluson var til dæmis i þessum hópi. Núna I vikunni gekk enn eitt hamsturævintýrið yfir. Þegar ég kom í búðina mina fyrr i vikunni, sá ég strax að verulega var af af- reiðslukonunni dregið og i ljós kom að yfir hana hafði dunið skömmu áður holskefla hamstr- ara. Þetta var i þann mund sem mjólkurfræðingarnir voru að hefja launað verkfall sitt, og mjólkin hvarf eins og dögg fyrir sólu — fyrst auðvitað nýmjólkin, súrmjólkin ekki fyrr en siðdegis en mysan og skyrið kláruðust ekki fyrr en daginn eftir. Kona sem var dálitið á undan mér I röðinni hvarf á brott úr búð- inni með siðustu 14 litrana af mjólk. Við hin urðum að láta okk- ur lynda appelsinu- og epiasafa frá Trópikana og Flóridana. Þegar keriing hvarf hnakkakert út um búðardyrnar með 14 litrana sina, datt mér i hug hið forn- kveðna — að hinir fyrstu verða siðastir og hinir siðustu fyrstir — og vonaði heitt að verkfaliið leystist daginn eftir, svo að kerl- ing sæti upp með 14 litra af siírri mjólk. Mér hefur ekki orðið að von minni. Mjólkurfræðingar eru þess vegna ekki hátt skrifaðir hjá mér þessa dagana — þeir á iaunum en ég mjóikurlaus. En þá datt inn á borðið til min dálitil visa frá ein- hverjum ónafngreindum velunn- ara, sem ber greinilega áþekkar tiifinningar i brjósti og ég sjálfur og ég læt fljóta hér með i hefndarskyni: j Afar fróðlegt er að kanna aðgerð mjólkurfræðinganna. Þeir ætia að vinna 1 verk- fallinu I að viðhaidi á smjörfjailinu. Kæra þökk. _ ______ ___________ BVS j Sömu orðin óma nú I söium stjórnarráðs vors og i Krón- borgarkastala forðum er Haml- et danaprins giimdi við lifsgátu sina, sem löngu frægt er orðið og klassiskar heimsbókmenntir. Að vera eða ekki, það er þessi spurning. Hversu langiif gliman I stjórnarráðinu verður á siðum Islandssögunnar, eða i vitund landsmanna, er óvitað enn, hitt er vist, að fyrirferðarmiklar eru frásagnirnar þessa dagana á siðum dagblaðanna. Kikisstjórnin sem enginn sá fram á i kosningabaráttunni i fyrrasumar, og sú, sem enginn raunverulega vildi taka þátt i þegar til kom, brýtur nú heiiann um það sama og Hamlet I fyrnd- inni. Og valið er vissulega erfitt sé sólarhæðin tekin með hinum pólistiska spekúla ntssexta nti. Hamlet sagði: „Mun drengi- legraaðþola iilrarauðnu, grjót- fiug ogörvar, eða taka vopn sin i móti hafsjó hörmunganna og gjöra svo enda á þeim með valdi? Deyja, — sofa, — aiit bú- ið”. Þessi sömu orð leggjum vér I munn ráðherranna eins og átta og bætum við: „Og láta ihaldið hirða af okkur verkalýðs- hreyfinguna, hreinan meiri- hluta á þingi, ráða öliu, alit bú- ið”. Hamlet: ,,.... og vita að værð- in endar allt sálarstrfð og ótal þúsund þrautir.sem holdiðá og erfir, þvilik afdrif er vert að biðja um af hrærðu hjarta. Að deyja, — sofa — sofa— dreyma kannske? Hér kemur hængur”. Ráðherrarnir: ,,Já, dreyma. Dreyma kannske. Dreyma hlýðna og auðtrúa alþýðu þessa TO BE OR NOT TO BE lands: Hafnarkarlana I nan- kinsbuxum, fiatningskerl- ingarnar með hvitu s vunturnar, einstæðu mæðurnar I dag- heimilisleit, eða rikisstarfs- mennina með glansandi buxna- rass og trosnaðan flibba: Fólkið sem trúði á rauða rós og kreppt- na hnefa, slagorðin um samningana I gildi, blóðrennslið úr burgeisunum, afhjúpun neðanjarðarsvikamyllunnar og frið á jörðu. Dreyma striðs- hrjáða hjörð launamanna, sem eftir langvarandi styrjöld við óvinveitt ríkisvald tók baráttu- glöðu rauðliðunum opnum örm- um og fylkti sér undir merki þeirra gegn kaupránsflokkun- um og bar sigur úr bitum.” Vist er vistin hörð I stjórnar- búðunum núna. Kikisstjórnin, sem aldrei átti að verða, en varð, getur nú hvorki verið, né verið ekki. óttinn viö óverð- skuldaða sigurgöngu ráðþrota og duglausrar stjórnarand- stöðu, sem auk þess veifar hákarl sverði kapitalismans og otar kuta hans af meira lauslæti en áður, nagar og nistir, en "kannskeer óttinn hver við ann- an verstur. — Hver hefur fleiri gylliboð á hendi. Hver biður bet- ur I siðdegispressunni. Hver er fimastur að hanna launaþök og hver strýkur boga gigju sinnar fegurst á þakskegginu. Og enn ein spurningin : Hven- ær hætta nankins karlar nir, hvitsvunturnar og þeir með trosnuðu flibbana að trúa á kraftaverkið, hvenær hrynur ekki bara þakið yfir oss, heldur einnig kornhlaðan sjálf, hvaðan ausa átti af gnægtabrunni til hinna soltnu að loknum kosning- um. Kona i Sviþjóð hefur nýlega gefið út bók, þar sem hún færir rök aðþvi að lygi sé stjórnmála- mönnum eðlileg, þeir ljúgi bæði sjálfrátt og ósjálfrátt. Ekki get- um vér vænt okkar menn um slikt. Hamlet sagði: „Samvisk- an gerir gungur úr oss öllum, og áræðisins hrausti heilsulitur smábreytist svo I fölleitt hugar-hik og athöfn hver, sem heimtar móð og merg, nær eigi framrás fyrir þeirri viðsjá, en missir framkvæmd”. Hitt er svo Ijóst, og hefur opin- berast oss öllum lýðnum á sið- ustu vikum, að til er maður sem þorir og hefur kraft sinn að of- an. Við ráðherrana segjum vér þvi: Hættið að trúa d mátt pulsunnar og fylkið yður meö oss um hann. Þvi Jesús sagði við Pétur: Gæt þú lamba minna, hirð þú sauði mfna. Og nú er hann kominn og rödd hans ómarum landsbyggðalla morg- un hvern, ýmist á langbylgju eða miðbylgju, já og llka á últrabylgju. Af náðarbrunni visku sinnar eys hann sann- leikanum i blaðsíðnavis i mál- gagni höfuðóvinarins dag hvern. Bráðum verður kannske gefið út aukablað með þessari heQögu ritningu af hinu heilaga striði. Þegar neyðin er stærst, þá er hjálpin næst, og nú er hún Pétur. Hákarl. JU, SANNARLEGA ER FÁTÆKT í REYKJAVÍK segir Guðrún Helgadóttir í samtali við Helgarpóstinn um greinina í síðasta blaði t siðasta tölublaði Helgarpósts- ins var þeirri spurningu varpað fram, hvort fátækt fyrirfyndist I Reykjavik. Talað var við ýmsa opinbera starfsmenn, sem annast félagslega aðstoð og bar þeim öll- um saman um, að miklu meiri fá- tækt væri I höfuðborginni en menn almennt gerðu sér grein fyrir, jafnt efnahagsleg sem menningarleg, svo aö vel mætti greina stéttamun meðal barna á dagvistunarstofnunum. Helgar- pósturinn sneri sér til Guörúnar lielgadóttur, deildarstjóra I Tryggingastofnun rikisins, og spurði hana álits á þessu. — Já, svo sannarlega er fátækt i Reykjavík. Fátækl- ingar skiptast i tvo greinilega hópa: Þá sem ekkert eiga og liða umtalsverðan skort, og hina sem halda að þeir eigi ýmislegt en skulda það allt sam- an. Hvað litiö, sem fyrir kemur i hinum siðarnefnda hópnum, veltir gjörsamlega allri velmeg- uninni á örskömmum tima. Þjóðartekjurnar eru allar i vös- um fámenns hóps auðmanna, hin- ir, sem teknanna öfluðu, eiga ekki neitt. Og eignist þeir eitthvaö, er séð um að verðbólgan gleypi það. Þetta gerist ekki, þaö er gert vis- vitandi. Það skyldu rnenn gera sér alveg ljóst. — Og nú kemur eitthvaö fyrir. Hvaða bætur greiðir þjóöfélagið, þegar menn þurfa á opinberri for- sjá að halda? — Almannatryggingalöggjöfin tryggir mönnum fébætur, þegar sjúkdóma, elli eða dauðsföll ber að höndum, og sá réttur skyldi ævinlega kannaður fyrst. Fram- kvæmd hennar annast Tryggingastofnun rikisins og um- boð hennar. Félagsleg ráðgjöf, lausn á húsnæðismálum og öðrum félagslegum vandamálum er veitt á vegum bæjar- og sveitar- félaga. Hér i Reykjavik annast félagsmálastofnun þá afgreiðslu, og slikar stofnanir eru i stærstu bæjarfélögunum, en þar sem þær eru ekki, ber fólki að snúa sér til skrifstofu sveitarfélags sins. Atvinnuleysisbætur greiðast úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sem verkalýðsfélögin hafa umráð yfir. — Eru möguleikar á aö fólk sem á rétt á bótum úr trygginga- kerfinu geti lent utan við kerfið af einhverjum ástæðum? — Já, vissulega. Þó vonum við að með útgáfu upplýsingabækl- inga og kennslu á vegum stofn- unarinnar hafi veriö gert nokkurt átak i að kynna fólki rétt sinn, en um allar bætur almanna- trygginga verður að sækja, og það er vel hugsanlegt, að

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.