Helgarpósturinn - 15.06.1979, Side 3

Helgarpósturinn - 15.06.1979, Side 3
—he/garpástúrihn._ Föstudagur 15. júní 1979 3 „Bjarna var skylt að skýra frá greiðslunum” „Ég tel mig hafa réttar almennar hugmyndir um fjár- reiður Alþýðuflokksins, en ég hef enga þekkingu á smáatriðum,” sagði Vilmundur Gylfason, alþingismaður. Munt þti beita þér fyrir því, að farið veröi f saumana á fjár- greiðslum Keflavlkurverktaka til Alþýðuflokksins? ,,Já.” Og hann bætti við : ,,Ég hef orðið var við að margir kratar hafa sakað Bjarna P. Magnússon, formann Framkvæmdastjórnar flokksins, um flokksleg óheilindi með þvi að skýra frá greiðslum Keflavlkur- verktaka. Ég tel hins vegar, að Bjarni hafi ekki einasta gert rétt, heldur hafi honum beinlínis verið skylt að skýra frá þessu.” Um það hvort honum væri kunnugt um, að Alþýðuflokknum hefðu borizt peningagreiðslur frá öðrum fyrirtækjum sagði Vilmundur-: „Eina reynsla min i þessum efnum er sú, að ég tel mig kunna skil á smáatriðum i kosningafjár- málum Alþýðuflokksins fyrir slöustu Alþingiskosningar. Náinn samverkamaður minn, Jóhannes Guðmundsson, var fjármálastjóri kosni ngabaráttunnar. Ég fullyröi, að þar var allt hreint og klárt.” En hver er almenn afstaöa þln til þess, að fyrirtæki styrki stjórnmálaflokka? „Það, aö fyrirtæki styrki stjórnmálaflokka, þarf út af fyrir sig ekki að vera óeðlilegt. En tryggingin fyrir þvi að ekki sé verið að gera i staðinn subbu- greiða á bak við tjöldin er sú, að öll slik starfsemi, I þessu tilfelli fjármunatilfærslur, fari fram fyrir opnum tjöldum. Þannig á alluralmenningur, þar meðtaldir blaðamenn, að geta gert sínar kannanir og dregið sinar ályktan- ir, ef ástæða er til að spyrja um eitthvað. Og þá er ég að tala um að spyrja i jákvæðum skilningi vegna þess að það að spyrja um eitthvað jafngildir ekki yfirlýs- ingu um glæpastarfsemi, sem er þvi miður Framsóknarskilningur alltof margra.” Vilmundur kvað já við, þegar Helgarpósturinn spuröi hann hvort gera ætti stjórnmála- flokkana bókhaldsskylda. SteingrímurHermannssoMormaðurFramsóknarflokksins: „Alltaf blankheit og vandræði...” ' „Ég tei út af fyrir síg ekki rangt, að fyrirtæki eöa ein- staklingar leggi fé til stjórnmála- flokka. Það á þá að vera opinbert og alveg Ijóst. Eigendur fyrir- tækja hljóta að gera það upp við sig hvort þeir vilja gera það. En það á þá ekkert að vera að fela það þá.” Við spurðum Steingrim hvort Framsóknarflokknum bærust peningar frá fyrirtækjum. „Nei, ekki nema þá, að þeir kaupi happdrættismiða og þess konar hluti.” „Nei, ekki svo ég viti. Ég fylgist ekki með þvi. Ég veit bara, að það eru alltaf blankheit og vandræði og við getum aldrei haft það starfslið, sem viö þurfum að hafa'í Um það hvort hann væri hlynntur þvi, að settar yrðu reglur um fjármái flokkanna og þeir gerðir bókhaldsskyldir, sagði Steingrímur: „Já, ég er hlynntur þvi.” eftir Halldór Halldórsson stiúrnarrAdsmenn MISSA ÚDVRA VÍNID Eins og Dagblaðið hefur skýrt frá að undanförnu njóta starfs- menn I Stjórnarráðinu sérstakra áfengisfrlðinda, sem felast í þvi, að hver starfsmaður getur keypt einu sinni á ári tvær flöskur af áfengi á spottpris, 3000 krónur samtals að þessu sinni. Tómas Arnason, fjármálaráö- herra, staðfesti það I samtali við Helgarpóstinn, að þessi áratuga gamla hefð verði iögð niður. „Ég hef tekið ákvörðun um, aö þetta verður lagt niður og þvi verður ekki breýtt nema með ákvörðun nýs ráðherra” sagði Tómas. Þessi sérréttindi stjórnarráðs- manna, um 300 talsins hafa þótt óeðlileg og verið gagnrýnd á undanförnum árum. Helgarpósturinn spurði Tómas hvort hann hefði nýtt sér þessi kostakjör á áfengi i kjallara Arnarhvols og sagði hann svo ekki vera. Forsaga þessara áfengissér- réttinda er sú, að hér á árum áður fóru stjórnarráðsmenn i sumar- leyfisferðir, sem stjórnarráðið kostaði og með i pakkanum fylgdu tvær ódýrar áfengisflösk- ur. Ferðirnar voru siðar lagöar niður, en „nestinu” fengu starfs- menn stjórnarráösins hins vegar að halda. — HH.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.