Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 30.11.1979, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 30.11.1979, Qupperneq 6
6 Föstudagur 30. nóvember 1979 -helgarpásturinn- Að eiga pabba í pólitík Hinar svokölluðu ,/Opin- beru persónur" hvers lands, stjórnmálamenn einkum og sér í lagi, eiga við það að búa, að fólk gleymir að þeir eru ekki bara stjórnmálaverur, heldur líka menn. Alveg eins og „venjulega" fólkið. Og alveg eins og venjulega fólkið bera stjórnmála- menn eflaust alveg eins mikla umhygg ju fyrir heimili sínu og því sem þar gerist, eins og atvinnunni. Jafnvel þó verðbólgan sé mikil. Helgarpósturinn ræddi við börn fjögurra stjórn- málamanna, eins úr hverj- um flokki náttúrlega, um viðhorf þeirra til atvinnu og áhugamála feðranna, því nú fara í hönd tvennar hátíðir, — annars vegar barnanna, þ.e. jólin og hins vegar stjórnmálamann- anna, þ.e. kosningar. Og ef einhver skyldi hafa verið á öðrum hnetti, þá er líka barnaár, sem senn rennur sitt skeið. Rúnar Stanley: „Minnstur.” „Hef ekki hug- mynd um það7’ — segir Rúnar Stanley Sighvatsson „Éghefekkihugmynd um það” svaraði Rúnar Stanley Sighvats- son snaggaralega þegar hann var spurður hvernig það væri að vera sonur stjórnmálamanns. Sjö ára syni Sighvats Björgvinssonar virðist hafa verið kennt að af- greiða blaðamenn. Hann játaði þó að eiga fjögur systkini. „Minnstur” var svo svarið þegar hann var spurður hvar hann væri i röðinni. Hin systkinin eru 16, 12 og 11 ára. Rúnar Stanley var einn heima að leika sér þegar Helgarpósturinn ónáðaði hann, og likaði augljós- iega illa að vera truflaður. — Hvað finnst þér skemmtiieg- ast að gera? „Leika mér” — Ferðu einhverntima i stjörn- málaleik? „Nei, aldrei.” — Langar þig að verða stjórn- málamaður þegar þú verður stór? „Kannski.” — Langar þig að verða eitthvað annað en stjórnmálamaöur? „Ég veit það ekki.” — Hefur þér verið strítt vegna þess að pabbi þinn er oft I sjón- varpinu? „Nei” — Hvar er pabbi þinn núna? „Ég veit þaö ekki. HELGA! HVAR ER PABBI? Systir mln var að koma heim. Isafirði held ég. ISAFIRÐI? Já, Isafirði.” Helga: „Mig langar eiginlega ekkert að fylgjast með þessum stjórnmálaumræðum” „Engan áhuga á stjórnmálum” - segir Helga Arnalds „Ég held það sé bara venju- legt” sagðiHelga Arnalds, 12 ára dóttir Ragnars Arnalds, við spurnmgunni hvernig það sé að vera dóttir stjórnmálamanns. Hún sagðist litið fylgjast með stjórnmálum, hefði eiginlega engan áhuga á þeim. „Ég veit ekki hvort ég mundi kjósa, eða hvað ég mundi kjósa, ef ég hefði kosningarétt” sagði hún. „Lik- lega mundi ég þó kjósa Alþýðu- bandalagið, en það væri þá bara vegna þess að pabbi minn er i þvi.” HUn sagðist stundum sjá pabba sinn i sjónvarpinu, en vildi litið gefa Utá frammistöðuna. „Mig langar eiginlega ekkert til að fylgjast meö þessum stjórnmála- umræðum” sagði hún. „Égvil oft gera eitthvað annað.” Helga sagðist ekkert hafa orðið vör við áreitni fé'aganna vegna þess að pabbi hennar væri frægur maður. „Mínir íélagar myndu ekki láta þannig” sagði hún. Þegar hún var að lokum spurð hvort pabbi hennar væri ekki litið heima svaraði hún játandi — hann væri aldrei heima þessa dagana. Ástæðan væri aðallega fundarhöld af ýmsu tagi, og svo væri hann úti á landi núna. Arna: „Af því pabbi er í honum.” „Hann er bara aldrei heima” - segir Arna Schram Jón Garðar: „Framsóknar- flokkinn, alveg örugglega.” „Hef aldrei séð hann skammaðan” - segir Jón Garðar Guðmundsson Arna Schram, eliefu ára dóttir Ellerts Schram var ekki I vafa um hvað hún myndi kjósa hefði hún kosningarétt. Hún var spurð hvort hún héldi með Sjálfstæðis- flokknum, og svarið var skýrt og skorinort: „Já”. HUn sagði það annars ágætt að vera dóttir stjórnmálamanns. „Hann er bara aldrei heima” sagði hUn hinsvegar þegar hún var spurð hvort hann væri ekki mikið Uti. HUn var sammála hinum krökkunum sem hér er rætt við, að félagarnir striddu ekki þótt pabbi hennar væri oft i sjónvarp- inu oghinum fjölmiðlunum. „Mér finnst hann stundum skemmtileg- ur” sagði hún þegar hún var spurð um frammistöðu pabbans i sjónvarpi. — Heldurðu að Sjálfstæðis- flokkurinn vinni kosningarnar? „Vonandi” — Af hverju? „Bara...” sagði Arna, en bætti' svo viö: ,',Af þvi pabbi er i hon- um.” „Það er ágætt” svaraði Jón Garðar Guömöndsson, ellefu ára gamall sonur Guðmundar G. Þórarinssonar, þegar Helgar- pósturinn spurði hann hvernig það væri að eiga stjórnmálamann fyrir pabba. Jón Garðar sem á tvö eldri systkini og eitt yngra, kvartaði þó ekki yfir þvi að pabbi hans væri mikið að heiman. „Ég sé alveg nóg af honum” sagði hann. NUna uppá siðkastið sagði hann þó að mikið hefði verið að gera. „Það hlýtur aö fara að minnka” bætti hann við, „nema hann verði þingmaður”. Og það þurfti varla að spyrja Jón Garðar að þvi hvort hann vildi að pabbi hans kæmist á þing. „Auövitað vil ég helst að hann komist á þing” sagði hann. Hann sagðist ennfremur vera farinn að venjast þvi að sjá pabba sinn stöðugt i blöðunum og sjón- varpi. „Þegar þetta byrjaði var ég svo litill aö ég áttaöi mig ekk- ertá þvi” sagöihann, „en núna er þetta allt i lagi.” Þegar hann var spurður hvort honum fyndist ekki leiöinlegt þegar veriö væri að rif- ast og skammast i pabba hans í sjónvarpi svaraði hann stutt og laggott: „Ég hef aldrei séð hann skammaðan.” Stjórnmálaskoðunin var lika alveg á hreinu. Hann var ekki i vafa hvaða flokk hann mundi kjósa ef hann hefði kosningarétt: „Framsóknarflokkinn, alveg örugglega” sagði Jón Garðar. eftir Guðjón Arngrímsson myndir: Friðþjófur

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.