Helgarpósturinn - 30.11.1979, Page 10

Helgarpósturinn - 30.11.1979, Page 10
Föstudagur 30. nóvember 1979olrjp^rpn^tl irinn A STREITUTÍMA Kosningar eru um þessa helgi, jólin nálgast óOfluga. Þaö er þvl viöbúiO aö mikiö sé aö gera og hafi veriö hjá æöi mörgum aö undan- förnu. Stjórnmálamenn hafa staöiö i ströngu viö aö reyna aö afla sér atkvæöa meö þrotlausum fundahöldum. Bókaútgefendur eru rétt aö sjá yfir bókastafiana. Kaupmenn eru I óöaönn aöfylla allar hillur af vörum og varningi alls konar. Prestarnir fara aö undirbúa sig undir messu- höldin. Kkki má gleyma húsmæörunum. sem senn fara aö undirbúa iólahreinaerninear og hakstur og annaö sem jóiahaidi fylgir. Ollu þessu álagi hlýtur aö fylgja þaö sem kallaö er á nútimamáli sireita. en a mannamáli stress. Helgarpósturinn haföi samband viö ýmsa aöila I þjóöfélaginu, sem ætla mætti aö heföu meira en nóg aö gera, og kannaöi liöan þeirra, allra nema húsmæöra, þar sem taliö var aö þær væru almennt ekki bvrjaöar á jólaundirbúningnum. „Ég er álitin frekar stressuð” segir Ragnheidur Ebenesardóttir „Ég er nýkomin úr frii, þannig aö ég er tilbúin i allt. Ég mundi segja aöég værinokkuö góö núna, Ragnheiöur ekkert stressuö. Ég held aö fólki sé aiveg óhætt aö koma og heim- sækja mig, ég held aö ég sé nokkuö sæmilega afslöppuö”, sagöi Ragnheiöur Ebenesardóttir verslunarstjóri og einn af eigend- um Vörumarkaöarins. — Kemuröu til með aö veröa stressuð þegar fer aö liöa að jól- um? „Nei, af hverju ætti ég aö vera þaö. Maöur er ekki i þessu nema maður hafi gaman af þessu, maöur er i þessu af lifi og sál Ég er með kaupmannsblóð f æöum og hef alltaf mest gaman af þessuþegar mest er aö gera. Ég segi þaö fyrir mina parta, aö maöur er frekar stressaöri ef það er eitthvaö daufara yfir hlut- unum. Ef allt er a fúllri ferö, finnst manni maöur gleyma þessu. Ég er nu álitin frekar stressuö manneskja. Ég fór ekki i sumar- fri i sumar, þannig aö ég var orö- intiltölulega mjög þreytt áöur én ég fór i friið. En þaö þarf ekki langan tima, ef maöur bara aö- eins kemst frá til þess aö endur- nýjast. Ég hef mikið aö gera og þaö dugir mér ekki sólarhringurinn eftir aö ég kom heim, en eins og er, er eg ekki stressuð, enda hef ég gaman af þvi aö vinna. Ég er hress og hlakka til jól- anna eins og aörir”, sagöi Rang- heiður Ebenesardóttir aö lokum. „Tollir ekki i sömu sporum nema andartak” segir Rafn Guðmundsson „Nei, ekki get ég nú sagt það. Ekki um þessar mundir. Mér finnst trafííkin ekki vera komin I Rafn gang ennþá, þannig aö maöur getur ekki veriö stressaöur”, sagöi Rafn Guömundsson, eigandi verslunarinnar Mömmu- sál, en bætti þvi við aö hann vonaðist til þess aö stressiö kæmi um mánaöarmótin. — Hvernig kemur stressiö fram hjá þér? „Það er ys og þys á manni, maöur tollir ekki I sömu spor- unum nema rétt andartak. Svo einsoggerist i þessum bransa, þá veröur aö hlaupa á milli skuldu- nauta. ég kalla þaö stress.” — Engin likamleg óþægindi? „Nei, ég verö nú eídd var viö það. Ég trimma þá af mér óþægindin. Ég fer tvisvar til þrisvar i viku i badminton. Mér liður alltaf best þegar ég hef sem mest aö gera, sennilega vegna fjárútláta Maöur veröur aö hafa mikið aö gera til þess aö geta velt þessu. Þaö var talsvert stress í fyrra og öllu fyrr en núna. Ég vonast til aö veröa all hressilega stressaður um mánaöamótin”, sagöi Rafn Guð- mundsson aö lokum ,Ég er steingeit’ segir Matthías Johannessen Ég er steingeit en Styrmir er hrútur. Þú geturrétt imyndaö þér hvernig mér liður”, sagði Matthias Johannessen ritstjóri Morgunblaðsins. „Aðalatriðið er að ná heill i höfn” segir séra Gunnþór Ingason „ Maöur finnur fyrir þunganum á þessu öllu saman, þegar þaö kemur framan aö manni. Meöan maöur stendur i storminum þarf maöur aö berjast gegn honum. Þetta er einsog að róa á báti, það verður aö taka duglega á, og maöur finnur fyrir þvi innra meö Sér. En aöalatriöiö er aö ná heill i höfn”, sagöi Gunnþór Ingason. sóknarprestur i Hafnarfiröi. — Hvernig lýsir þetta sér? „Maöur verður þreyttur eins og aðrir menn. Viö prestarnir finn- um fyrir þessu lika og gerum okk- Matthias ur grein fyrir þvi, aö jafnvel okk- ar starf setur okkur úr þvi jafn- vægi, sem lifinu er eðlilegast og hentugast til þess aö þaö sé heil- brigt. Þaö er vart hægt aö komast undan þessu meö góöu móti, en engu aö siöur ættum viö kannski aö muna þaö fremur en aörir aö taka okkur kyrröarstundir til þess að safna innri orku. En þaö þarf nú lika ákveöinn sja'lfsagatil þess aö framfylgja þvi og svona i hita baráttunnar heldur maöur áfram aö keyra, þó betra væri kannski aö stoppa. Þetta er aö vissu leyti barningur hjá okkur einsog hverjum og einum og ekki sist vegna þess aö viö ráöum ekki þessari atburöarás. Við veröum aö taka þetta eins og þaö berst aö okkur, eins og sjómenn á sjón- um.” — Gerir þú eitthvaö sérstakt til þess aö vinna á móti streitutil- finningu, þegar hún kemur yfir þig? „Þaö er nú litiö sem hægt er að gera viö þvi beinlinis. Það er voöalega mikiö atriöi að geta hvilst á milli. Þaö skiptir máli aö reyna aö kljúfa tarnirnar ef maður getur. Þaö sem mér er efst i huga i til- efni jólakomunnar, er sá fögn- uöur sem tileyrir þessari gleöi- hátiö. Hanner yfirgnæfandi þrátt fyrir allar annirnar”, sagöi Gunnþór Ingason aö lokum. * „Eg gæti sofið miklu lengur” segir Arni Gunnarsson „Ég reikna meö þvi, ef þú átt viö þreytu meö stressi, þá er ég stressaður. En ef þú átt við taugaspennu. þá er það nú ekki mjög mikiö, bara i nokkuð eðli- legu samræmi við það sem á aö vera. Þeir sögöu nefnilega einu sinnihjá útvarpinu i gamla daga, aöum leiö og útvarpsmaöur hætti að vera stressaður, yrði hann vondur útvarpsmabur”, sagöi Arni Gunnarsson. — Bagar stressið þig? „Ef þaö er of mikið af þvi, þá getur þaö gert þaö, eins og hjá útvarpinu i gamla daga. Ég held aö almenn skilgreining á streitu, sé sú, að menn veröa óeölilega þreyttír. Sumir eiga erfitt með svefn, sem ég á ekki, þvert á Séra Gunnþór móti, ég gæti sofiö miklu lengur en ég geri. Streitan lýsir sér kannski i höfuðverk, en ég hef ekki haft hann, en ég reikna með, aö i mér sé svona eölileg kosn- ingastreita eða eftirvænting.” — Gerir þúeitthvað til að vinna bug á streitunni? „Ég fer talsvert í laugar, reyni aöhreyfa mig eins ogég getog fá absalút 7—8 klukkutima svefn.” Þá sagði Arni að hann væri yfirleitt kominn á fætur kl. 8 á morgnana og ekki væri óalgengt að hann ynni til miðnættis. „Auðvitaö eykst álagið og til- finningin fyrir þeirri ábyrgö sem hvilir á manni viö að fást við þessi mál. Það erfjarri þviaö ég sé til- finningalaus”, sagöi Arni Gunnarsson að lokum. „Það er erfitt að fresta jólunum” segir Jóhann Páll Valdimarsson „Þaö erekki alveg laust við að ég sé stressaður. Þaö er i mörg hornaö lita og mörgu að sinna, og eins og allir vita með bókaútgáfu, þá er hún öll stiluð inn á desemberog fyrst og fremst inn á jólagjafamarkaðinn. Þaö er ann- aö hvort aö duga eða drepast á þessum tima, vegna þess að það er erfitt aö fresta jólunum. Þannig aö þaö er ekki hægt aö komasthjá þvi að vera stressaður á þessum tima”, sagöi Jóhann Páll Valdimarsson hjá bókaút- gáfunni Iðunni. Það þyrfti að koma bókunum Ut i tæka tið, þaö þyrfti að dreifa þeim, ganga frá auglýsingum. Þaö þyrfti ab sinna mörgum verkefnum i einu. og þegar svo væri, væri maður alltaf svolitíö stressaöur. — Hvernig lýsir þetta sér? „Þetta lýsir sér þannig að maður veröur örari en ella, og allt sem maður gerir, gerist miklu hraöar en venjulega. Undir öörum kringumstæöum hefur maður betri tima til aö sinna hlut- unum. Maður veröur aö vinna á methraða, þannig aö maður er trekktari en ella. Það kemur einnig fram i þvi aö við sem störf- um innan fyrirtækisíns höfum mjög takmarkaðan tima til aö tala saman, þvi hver og einn er á kafi, þannig aö viö tölumst við á hlaupum.” Utanaðkomandi fólk imyndaöi sér kannski bókaútgáfu þannig, Arni Jóhann Páll aö þar sætu menn i djupum stól- um og klóruðu sér I höku og veltu spaklega vöngum. Slik mynd væri aö minnsta kosti ekki rétt á þess- um árstima. — Hefurðu likamleg óþægindi af þessu? „Það er kannski smáherpingur i maga, með.að loknum vinnudegi, mikilli almennri þreytu. Maður er oröinn sljór eftir svona harðan dag og er ekki tii mikils þegar kemur fram á kvöldið.” — Geriröu eitthvaö til að vega upp á móti þessu stressi? „Nei, ekki get ég sagt það. Ég reyni jú aö anda djúpt og taka þvi rólega og einbeita mér aö þvi, sem égeraðgera, en þaö gengur

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.