Helgarpósturinn - 30.11.1979, Page 13
13
helgarpósturinrL- Föstudag
ur 30. nóvember 1979
0 Sovétmenn eru sagðir viður-
kenna það i einkaviðræðum, að
mikill skortur verði á hótelrými
fyrir erlenda gesti á Ó lympiu-
leikunum næsta sumar. Þeir gera
ráð fyrir að gestirnir verði um 250
þúsund, en gistirými er aðeins
fyrir 60 þúsund i Moskvu. Aætlað
var að byggja hótel og gisti-
heimili fyrir um 30 þúsund
manns, en þær framkvæmdir eru
nú langt á eftir áætlun.
1 örvæntingu sinni hafa sovésk
yfirvöld ákveðið að færa próf i
háskólunum til maimánaðar, en
venjulega eru þau i júli, þannig að
þá losna stúdentagarðar. Þá
verða sove'skir gestir og gestir frá
hinum sósialisku löndunum að
gera sér það að góðu að fara á
stúdentagarðana, en ekki á hótel
eins og þeir höfðu upphaflega gert
ráð fyrir.
Þær sögur hafa gengið erlendis,
að Sovétmenn hafi ætlað að banna
börnum að vera i Moskvu á
meðan á leikunum stæði. Það er
ekki rétt. Þeir hafa spurt foreldra
hvort börn þeirra verði i sveit um
sumarið, þvi að ef svo er, þurfa
yfirvöld á rúmum þeirra að halda
fyrir gesti Ólympiuleikanna.
• Hinn fallni einvaldur i
Miðafrikulýðveldinu, Jean Bedel
Bokassa, er gjaldþrota. Fyrir
nokkrum árum eyddi hann um tiu
milljörðum Isl. krónum I eigin
krýningarathöfn. „Ég á ekki
grænan túskilding”, sagði
Bokassa nýverið I samtali við
franska blaðið l’Aurore fyrir
stuttu. „Ég tóri vegna þeirrar
gestrisni sem ég nýt hér á Fila-
beinsströndinni”, sagði hann, en
þar hefur hann veriö landflótta
siðan honum var steypt af stóli 25.
september sl. Hann sagði við
blaðið, að hann sé búinn að loka
bankareikningi sinum i Frakk-
landi, þvi hann sé tómur. Eignir
hans i Frakklandi eru honum ekki
mikils virði, þvl franska rikið
hefur lagt hald á þær á þeim
forsendum aö Bokassa hafi keypt
þær fyrir peninga franskra
skattborgara. Frakkland veitti
stjórn Bokassas þróunarhjálp
árum saman...
0 Þeir lifa ekki allir hátt og flott,
stórmennin i stjórnmála-
heiminum. Fyrrum utanrikisráð-
herra Israel Moshe Dayan er
gott dæmi um slikan. Þegar hann
sagði starfi sinu lausu, fyrir
skömmu lét hann eftirtalin orð
falla. „Ekki veit ég hvaö ég kem
til með að gera, en eitt er vist að
ég tek mér ekki fri. Ég hef ekki
misst dag úr vinnu á 30 ára ferli
minum innan hersins og i pólitik-
inni. Ég hef aldrei farið með konu
mina og börn i leyfi á eitthverí
hótel eða niður að sjó og mun ekki
byrja á þvi núna. Mér myndi
leiðast slikt aðgerðarleysi og
fengi að auki móral þegar ég
eyddi peningum minum i slikan
óþarfa.”
En hvað skyldi konan hans og
börnin segja um þennan
nánasarskap? Það fylgir ekki
sögunni, en eitt er vist: Moshe
Dayan er eflaust i vinnunni nú á
þessari stundu — og verður -
væntanlega næstu árin. A.m.k. er
hann ekki i frii, það geta menn
greinilega reitt sig á...
0 Fyrrum forsætisráðherrar
geta átt von á þvi að þurfa að taka
að sér alls konar störf, eins og að
vera stjórnendur i samræðu-
þáttum, en afsettir forsetar
virðast eiga auðveldara með að
finna sér störf, þar sem þeir geta
haldið fyrri lifsstil sinum.
James Mancham, fyrrum for-
seti Seychelles eyja hefur komist
að sem einhvers konar fyrirlesari
á hinu glæsilega farþegaskipi
Linblad Explorer, en skip þetta er
nú á ferð um Micronesiu eyjarnar
i Kyrrahafi. Sagt er að forsetinn
fyrrverandi muni aðallega fjalla
um smá eyjar I fyrirlestruin
slnum, en hann er að sögn sér-
fræðingur i þeim efnum...
Landssmiðjan
SÖLVHÓLSGÖTU-101 REYKJAVIK SÍMI 20680 TELEX 2307
/slensk hönnun ís/ensk fram/eiðs/a
Ávallt fyrirliggjandi
lollpressui
af öllum stæráum
Veggsamstæöur í miklu úrvali
ásamt fjölda annarra húsgagna
SENDUM UM LAND ALLT
jS&F
Á. GUÐMUNDSSON
Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100
JttlasCopco
LANDSSMIDJAN annast viðgerðaþjónustu á öllum tegundum
loftverkfæra og tækja.
Ef óskaS er sjáum viS einnig um fyrirbyggjandi viðhald.
Auglýsingasími Helgarpóstsins
8-18-66
jóLaindirbúningurinii lieikt:
Eru jólin vandamál á þínu heimili?
Ertu ef til vill ein þeirra, sem
kappkostar að hafa heimilið hreint
og fallegt, áður en jólahátíðin
gengur í garð?
Þá ert þú sennilega líka ein þeirra
sem leggja sig alla fram við
hreinsun og hreingerningar í jóla-
mánuðinum og sennilega ein
þeirra, sem er alveg örmagna,
þegar sjálfur jólaundirbúningur-
inn hefst - og svo geturður ekki
notið sjálfrar jólahátíðarinnar fyrir
þreytu!
Við leggjum til, að þú leysir þetta
vandamál með því að mála - já,
mála íbúðina með björtum og
fallegum Kópallitum. Með Kópal
sparast ótrúlega mikið erfiði - og
heimilið verður sem nýtt, þegar
sjálfur jólaundirbúningurinn
hefst.
Jólaánægjan verðurtvöföld, þegar
þú átt þess kost að njóta hennar
án streytu og strengja.
IMípll
f C—JaO • -X -g
málninghlf