Helgarpósturinn - 30.11.1979, Page 16
16
GRISAKJOT í
SÚRSÆTRI SÓSU
Helgarrétturinn að þessu
sinni kemur frá Wong Minh
Quang, Ara. en hann er einn af
vietnömsku flóttamönnunum,
sem hingað komu til lands fyrr i
haust ogstarfar nú I eldhiisinu á
Hótel Sögu.
1 kg. grisakjöt úr læri eða hrygg
1 vænn saxaður laukur
2 rif úr hvitlauk
3 msk. soyasósa
1 msk. sykur
1 msk. 3. kryddið
Þessu er blandað saman. Kjötið
er skorið i bita, sem eru 2x2—3
cm. og látið liggja i blöndunni i
einn klukkutima.
Siðan er lagað deig:
400 g. hveiti
2 egg
0.5 dl. matarolia
2 di. vatn
ca, 1 msk. salt
ca. 1 msk. sykur
ca. 1 msk. 3. kryddið
ostrusósa og fiskisósa. Ef þær
eru ekki við hendina, má nota
eilitið af soyasósu.
Deigið á að vera þykkt eins og
vöffludeig.
Kjötið er látið ofan i deigið,
siöan tekið upp úr og steikt i
heitri oliu.
Þá er eftirfarandi tekið:
2 stk. saxaður laukur, sem eru
kraumaðir i heitri oliu á pönnu.
Útiþað er bætt einni litilli dós af
ananas i bitum, hálfri agúrku,
skorinni i bita, t fjórum
túmötum, skornum i báta. Þá er
ananassafanum bættúti, einnig
2 msk. af ediki, smávegis af
sykri, smávegis af soya sósu og
ostrusósu. Siðan er þetta jafnað
með maismjöli.
NU er kjötið tekið og þvi
blandað Ut i sósuna og þetta
hitað upp. Þetta þarf að borða
um leið og bUið er að blanda
þessu saman.
Með þessu eru borðuð soðin
hrisgrjón.
Hótel Esja:
Jólaglöggin
byrjar 1. des.
Hótel Esja hefur haft það fyrir
sið undanfarin þrjú ár, að bjóða
Revkvikingum upp á jólaglögg i
desember. Það hefur verið
ákveðið að bjóða upp á jóla-
glöggina fjórða árið i röð og að
sögn Steindórs Ólafssonar hótel-
stjóra á Esju, má kalla að þetta
sé orðin hefð hjá þeim.
Hann sagði að þetta væri hefð i
Skandinaviu og Þýskalandi að
bjóða upp á heita drykki i jólaös-
inni.
Hótel Esja voru fyrstir til að
innleiða jólaglöggina hérlendis og
samanstendur hún af heitu rauð-
vini, sem siðan er kryddað með
rúsinum og kanel. Með hverju
glasi, sem fólk kaupir sér, fylgja
tvær piparkökur.
Jólaglöggin verður á boðstóluin
frá 1. desember og er þegar farið
að spyrja eftir henni, slikar hafa
vinsældirnar verið undanfarin ár.
Hótel Esja: Jólalögg i jólaös
Verðurhún borinfram i hádegi og
á kvöldin.
,,Það má drekka þetta með
mat, en aðalatriðið er, að þetta er
fyririfólk til að hlýja sér, þegar
kalt er Uti og slabb. Það kemur
skemmtilegur ilmur af þessu og
snarhitar manni, þó að það sé
ekki mikið áfengi.
Þetta er hluti af jólunum hjá
okkur”, sagði Steindór ólafsson.
— GB.
stórvíóburóur
í ÍSLENSKU SKEMMTANALÍFI
.%..
dans79
íÓDALI SUNNUDACSKVÖLD
Föstudagur 30. nóvember 1979 _he/garDÓsturinn.
Ok • u> rfll t'l A4,
'*6»l»»* hHrtnum bO'AuM
»»».r kl ?0 30
Sp»*.ki»rOn«Our
Jólatréssalan
hefst eftir viku:
Islensk
og dönsk
I tré á
| mark-
! aðinum
j Það hefur liklega ekki farið
I framhjá neinum, að jólin eru eftir
| rúmar þrjár vikur. Eitt af þvi,
sem er ómissandi um hver jól, er
að sjálfsögðu jólatréð. Lætur
nærri, að ef ekkert er jólatréð,
eru engin jól, hvort sem það er i
heimahúsum eða á torgum úti.
Helgarpósturinn hafði sam-
band við gróðrastöðina Alaska og
Skógræktarfélag Reykjavikur til
þess að forvitnast um jólatréssöl-
una i ár.
Hjá Alaska fengum við þær
upplýsingar, að salan hjá þeim
hæfist í kringum 8 desember. Þar
verða eingöngu til sölu tré frá
Danmörku. Þar er mest um að
ræða rauðgreni, en lika eitthvað
af eðalgreni. Eðalgrenið fellir
ekki barrið og er þar af leiðandi
eitthvað dýrara. Þó er hægt að
láta rauðgrenið halda sér lengi, ef
menn passa sig á þvi að klippa
ekki ofan af toppnum, hafa alltaf
vatn i fætinum og staðsetja þau
ekki i námunda við miðstöðvar-
ofn.
Reynt er að hafa til tré i sem
flestum stærðum, eða frá minna
en 1 mebri upp i 2 1/2 — 3 metra.
Vinsælustu trén eru hins vegar á
bilinu frá 1 — 1.50 m. i þessari
stærð eru þau fallegust.
Verð á trjánum hefur ekki verið
ákveðið ennþá, en þau koma til
með að hækka svolitið.
Austurstræti i jólaskrúða
Jólaljós á vegurrt borgarinnar:
SVIPAÐ OG
Seim fer að liða að þvi, að jóla-
lýsingin verði sett upp á vegum
Reykjavikurborgar. Hjá
R af magnsveit u Reykjavikur
fengum við þær upplýsingar, að
undirbúningur væri hafinn á
lýsingu i göngugötunni í Austur-
stræti.en það eru einu Ijósin, sem
borgin sér um. Þá hafa kaup-
menn i Austurstræti einnig lagt
fram fé undanfarin ár til þess að
hægt væri að lýsa upp þann hluta
götunnar, sem ekki er göngugata.
Er það gert til þess að ein gata i
borginni sé allavega upplýst fyrir
jólin.
Lýsing þessi verður með svip-
uðu sniði og undanfarin ár, og ef
eitthvað er, verður kannski held-
ur minna um skraut. Það hefur æ
meira verið farið út i það að nota
mislitar perur og greni i stað þess
IFYRRA
að kaupa skraut erlendis Irá.
Auk þess að lýsa upp Austur-
stræti, tekur Rafmagnsveitan að
sér að setja ljós á þau jólatré,
sem garðyrkjustjóri setur upp i
borginni. Það hefur dálitið borið á
þvi, að einhverjir gárungar hafa
hnuplað perum af þessum trjám,
en slikar perur eru ónothæfar til
notkunar i heimahúsum, þar sem
þær eru gerðar fyrir miklu lægri
spennu. Venjulega er þetta perur
fyrir um 32 volta spennu. en i
heimahúsum er spennan 220 volt,
eins og allir vita.
Með jólamánuðinum fer i hönd
mesti álagstimi hjá Rafmagns-
veitunni og eru það eindregin til-
mæli tii fólks, að það verði ekki
með mörg orkufrek tæki i sam-
bandi samtimis, eins og að vera
að þvo þvottum leið og jólasteikin
er i' ofninum.
Milli jóla og nýárs eru þær
opnar eins og venjulega, en at-
hygli skal vakin á þvi, að þann 27.
desember opna verslanir ekki
fyrr en kl. 10. A Gamlársdag eru
þær svo opnar til hádegis, eins og
á aðfangadag.
Ekki er að efa, að landinn
liggur ekki á liði sinu núna i des-
ember fremur en undanfarin ár.
Verð hefur heldur ekki verið
ákveðið á innlendu trjánum, en
eins og þau inníluttu, munu þau
hækka eitthvað frá þvi i fyrra.
— GB
VEITINGAHUSIO I
Hljómsveitin Glæsir og diskótek
i kvöld, laugardags- og sunnudagskvöld
)piö föstudags- og laugardags-
ivöld til kl. 3. Spariklæönaður
'Matur framreiddur frá kl. 19.00.
Boröapantanir frá kl. 16.00
SIMI 86220
Askiljum okkur rétt til aö ráöstafa fráteknum boröum
' eftir kl. 20.30
Skógræktarfélag Reykjavikur
verður eingöngu með islensk tré
og þar hefst salan um 10. desem-
ber. Það eru aðallega tvær teg-
undir af islenskum trjám, sem
verða á bóðstólum, stafafura og
rauðgreni. Gert er ráð fyrir að 5
— 10 þúsund islensk tré verði sett
á markaðinn fyrir þessi jól.
Að sögn er alltaf vaxandi eftir-
spurn eftir islenskum trjám, þvi
þau standast fylliiega samkeppn-
ina við hin innfluttu.
Verslanir iokaðar á Þorláksmessu
Opnunartími verslaná í desember:
Lokað á Þorláksmessu,
en opið þann 22. til kl. 23
Deseinber, mesti verslunar-
mánuöur ársins, hefst á morgun,
laugardag. Að vanda lengist
opnunartimi verslana jafnt og
þétt eftir þvi sem nær dregur jól-
um, til þess að auðvelda almenn-
ingi að gera öll þau innkaup, sem
þarf.
Lenging opnunartimans hefst
þegar fyrsta dag mánaðarins, en
þá er kaupmönnum heimilt að
hafa opið til kl. 16. Laugardaginn
8.. desember er heimilt að hafa
verslanir opnar til kl. 18, laugar-
daginn 15. tilkl. 22. Laugardaginn
22. desember verða verslanir
opnar til kl. 23. Þorláksmessu ber
upp a’ sunnudag að þessu sinni,
þannig að ekki verður um hið
hefðbundna búðaráp þann dag.
Fólk verður þvi að ljúka innkaup-
um sinum degifyrr en venjulega.
Það er kannski ekki svo slæmt,
allir ættu að hafa gagn af þvi að
hvila sig örlitið áður en jóla-
steikin er elduð. A sjálfan að-
fangadag verða verslanir opnar
til kl. 12 á hádegi.