Helgarpósturinn - 30.11.1979, Blaðsíða 28
—ne/garpústurínrL. Föstudagur 30. nóvember 1979
# Altalaö er í borginni um þessar
mundir aö Rolf Johansen heild-
sali sé búinn að selja villuna sina i
Laugarásnum, þessa meö finu
bogagluggunum. Kaupverðið er
sagt hafa veriö 170 milljónir
króna en kaupandinn er Ingólfur
Guöbrandsson, feröaskrifstofu-
forstjóri. Hann átti fyrir einbýlis-
hús i Laugarásnum, sem metiö er
á 100 milljónir...
0 Matthias A Mathiesen, fyrrum
fjármálaráöherra og efsti maöur
sjálfstæöismanna i Reykjanes-
kjördæmi, hefur eins og fleiri
frambjóðendur veriö á þeysireiö
um kjördæmið og haft beint sam-
band við kjósendur á vinnustöð-
unum. Um daginn kom hann til
dæmis i fiskvinnslustöö i Sand-
gerði. Hann haföi dressað sig sér-
staklega upp fyrir feröina, fengið
sér köflótta skyrtu og ný stigvél
til að vera sem alþýðlegastur. Svo
ávarpaöi hann fólkið, hélt þrum-
andi tölu um leiftursóknina og
málaði ástandið i verðbólgu- og
efnahagsmálum ekki björtum lit-
um eftir 13 mánaða setu vinstri
stjórnarinnar og sagði svo að lok-
inni ræðu sinni að menn hlytu að
hafa einhverjar fyrirspurnir eftir
slika útlistun. En Matthias fékk
aðeins eina fyrirspurn og hún var
svona: „Hvar fékkstu þessi stig-
vél, Matthías?...”
#Annars auglýstum við eftir
andófi frá sjálfstæðismönnum i
siðasta blaði út af allri illkvittn-
inni i þeirra garð og bröndurun-
um sem voru þá á þeirra kostnað.
Nú hafa sjálfstæðismenn aðeins
andæft — i formi happdrættis
miða. Þeir hafa gefið út happ-
drættismiða i nafni vinstri stjórn-
arinnar. Þar er fyrsti vinningur
81% verðbólga, 2. vinningur: At-
vinnuleysi og 3. vinningur: Land-
flótti 2000 manna auk aukavinn-
inga, sem eru skattar af ýmsu
tagi, alls að verömæti 19.900 mill-
jarðar króna. Nokkuð sniðugt hjá
þeim...
# Þráinn Bertelsson, dag-
skrárgerðarmaður hjá sjónvarp-
inu og HP-skribent, stóð nýverið
fyrir fyrsta almennilega banka-
ráninu á Islandi. Aðferð og
árangur munu birtast á skjánum
á laugardaginn i næstu viku i
þætti sem nefnist Leiftursókn...
# Nokkrir ungkratar eru nú að
undirbúa útgáfu nýs timarits um
stjórnmál og menningarmál, sem
hefja á göngu sina á næsta ári.
Timaritið á aö vera formlega
óháð Alþýðuflokknum og samtök-
um innan hans en mun væntan-
lega túlka kratasjónarmið fyrst
og fremst. Ritstjórar timaritsins,
sem ekki hefur enn hlotið nafn,
eru Kjartan Ottósonog Hilmar S.
Karlsson, og er ráðgert að það
komi út þrisvar á ári...
®A Akureyri munu einnig nokkr-
ir ungir menn, tengdir krötum
vera með áform uppi að setja þar
á stofn nýtt blað, sem hlotið hefur
nafnið Bæjarpósturinn. Þessir
aöilar hafa undanfarið rekið Al-
þýöumanninn og haft af þvi
nokkrar tekjur sem ætlunin er að
verja til kaupa á setningar- og
prenttækjum fyrir nýja blaðið,
sem á að vera sjálfstætt og óháð
og koma út á mánaðarfresti.
Fyrsta blaðsins er aö vænta ein-
hvern timann upp úr áramótum...
#1 höfuðstað Norðurlands eru
menn lika einna iðnastir við að
kasta fram stökum i kosninga-
baráttunni og hér koma tvær slik-
ar sem Helgarpósturinn heyrði á
dögunum. Hin fyrri er um sjálf-
stæðismenn og LSD framboð
þeirra:
Viman ginnir valdaþyrsta,
veiðast gildru slægri.
Aleinn Sólness arkar fyrsta
öngstræti tii hægri.
Hin visan er eignuð ráðhúsverði
Akureyringa, Rögnvaldi Rögn-
í þessari bók fjallar Hannes Pétuxs-
son um líf og list Jónasar Hallgrims-
sonar. Bókin er reist á vandlegri
könnun heimilda og snilldarvel
rituð. „Lestur bókarinnar er
skemmtun og hátíð sem heldur
áfram allt kvöldið og alla nóttina...“
(J.S./Tíminn). „Útkoma Kvæða-
fylgsna er mikill bókmenntalegur
viðburður." Q.Þ.Þ./Tíminn). „Eins
og vænta mátti er öll bók Hannesar
hin læsilegasta enda skrifar þar
skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (H.P./Helgarpóstur-
inn).
„. . . ýmis erindi, bundin i erindi,
öll brýn. Eg geng þeirra hér í kverinu
og á þau við lesarann.“ - Þessi orð
kétur Þórarinn Eldjám fylgja
hinni nýju kvæðabók sinni.
Þórarinn á stærri lesendahóp en flest
önnur samtimaljóðskáld. Sá hópur
verður ekki fyrir vonbrigðum með
þennan beitta og skemmtilega kveð-
skap.
Thor Vilhjálmsson
rURNLEIKHÚ SIÐ
Þetta er heildarútgáfa á ljóðum
Stefáns Harðar, eins sérkennilegasta
og listfengasta skálds samtíðarinnar.
Hér er hin torgæta fyrsta bók
skáldsins, GLUGGINN SNÝR í
NORÐUR, einnig SVARTÁLFA-
DANS og HLIÐIN Á SLÉTT-
UNNI. Bókin er prýdd myndum
eftir Hring Jóhannesson og til
útgáfúnnar vandað eftir fongum.
„. . . ber vott um stolt og virðingu
fyrir ljóðinu.“
(H.P. /Helgarpósturinn).
Þetta er fyrsta bókin í flokki sagna
um rannsóknarlögreglumanninn
Margeir. Nýjung á íslenskum bóka-
markaði. GATAN LEYST er
spennandi saga sem gerist í Reykja-
vík og á Akureyri og leikurinn berst
til Spánar. Umihverfið allt kunnug-
legt og greint frá atvikum sem standa
okkur nami.
Auður Haralds
HVUNNDAGSHETJAN
Þrjár öruggar aðferðir til að
eignast óskilgetin böm
Ný skáldsaga eftirThor Vilhjálms-
son, einn leiknasta prósahöfúnd vor
á meðal. Lesandinn er leiddur að
tjaldabaki í leikhúsi áður en sýning
hefst. Við erum stödd í kynlegum
heimi þar sem mörk draums og vöku
eru numin burt. Þetta er sýnishom
af stílgaldri höfundar sem vafalaust
þolir samanburð við hina fremstu
meðal evrópskrar samtíðar sinnar.
Haraldur Jóhannsson
PÉTUR G. GUÐMUNDSSON
og upphaf samtaka alþýðu
Þessi bók fjallar um einn stofiienda
Dagsbrúnar og helsta forustu-
mann í verkalýðsbaráttu á upphafs-
skeiði hennar. Markvert framlag til
verkalýðssögu á Islandi.
MANASILFUR
Gils Guðmundsson valdi efhið
Hér er að finna úrvalskafla úr
íslenskum endurminningum og
sjálfsævisögum og er fyrirhugað
að safnið verði í nokkrum bindum.
í bókinni eru fjölbreytilegar frá-
sagnir eftir fólk úr ýmsum stéttum,
allt frá séra Jóni Steingrímssyni til
núlifandi manna. Bráðskemmtileg
bók og fróðlegt sýnishom íslenskrar
frásagnarlistar.
Jón tspólín og Éinar Bjamason
SAGAFRÁ
SKAGFIRÐINGUM IV. bindi
Með þessu bindi lýkur útgáfu hins
stórmerka heimildarrits um tíðindi,
menn og aldarhátt í Skagafirði
1685-1847. Aftast er nafnaskrá yfir
öll bindin sem einnig tekur til
skýringagreina.
Egill Egilsson
SVEINDÓMUR
Saga úr Reykjavík, lýsir lífi drengs á
unglingsaldri, heima og í skóla.
Hver em þau uppeldis- og þroska-
skilyrði sem samfélagið býr honum?
Áleitin og ögrandi bók, rauntrú
lýsing á umhverfi okkar sem ekki
verður vísað á bug. Tímabært
innlegg til umræðna um kjör bama
í samfélaginu.
Ólafúr Jónsson
LÍKALBF
Úrval blaðagreina Ólafs Jónssonar
um samtímabókmenntir frá árunum
l%3-79. Athyglisverð heimild um
viðbrögð við nýjurn bókmenntum:
í þeim er LÍKA LÍF. Bók fyrir
áhugasama lesendur.
Óvenjuleg reynslusaga, opinská og
hispurslaus enda hefur hún þegar
sætt miklum tíðindum: „.. . allmikil
nýlunda í íslenskum bókmenntum. .
m.a. um rétt konunnar til að lifa
óþvinguðu kynlífi... Auður Haralds
er ágastlega ritfær höfundur.“ (H.P./
Helgarpósturinn). „Ég spái að bók
þessi veki verðskuldaða athygli."
(E.J./Mbl.)
valdssyni og þar segir frá Þor-
steini Jósafatssyni, fyrrum
höfuðpaur Samtakamanna nyðra
en sem nú hefur lýst fylgi viö
Framsókn, þó að hann léti það
fylgja með að honum væri ósárt
um þótt einhverjir flokksbræður
hans færu yfirá Alþýöubandalag.
En visan er svona:
Ennþá rokka atkvæðin,
ýms þó nokkuö loðin,
meöan flokkaflakkarinn
fer i kokteilboðin.
® ólafur Jóhannesson hefur nú á
lokaspretti kosningabaráttunnar
lent I hálfgerðum ógöngum út af
ummælum sinum — annars vegar
þess efnis að hann taki hugmynd-
um um forsetaframboð ekki viös-
fjarri og hins vegar um hitaveitu-
mál Reykvikinga. Andstæðing-
arnir notfæra sér þetta óspart. Nú
er t.d. sagt aö framsóknarmenn
séu svo ánægðir með hvernig
þeim hafi gengið að selja Ólaf inn
á reykviska kjósendur, aö þeir
séu staðráðnir i þvi að selja hann
islensku þjóöinni einnig — sem
forseta. Þegar sé búið aö setja á
laggirnar undirbúningsnefnd til
að safna meðmælendum, sem
nefndin sé nú byrjuð aö dreifa og
þar sé efstur á blaði... ja, hver
haldiðþið — auðvitað Guðmundur
G. Þórarinsson...
# Dla er komið fyrir fjárhag
ÞjóðleikhUssins um þessar
mundir, enda tók fjárveitinga-
valdið að venju litið tiUit til óska
stjórnar leikhússins um fjáryeit-
ingar á þessu ári. Nú mun svo
komið að hugsanlega þurfi aö
loka leikhúsinu þvi ekki eru til
peningar til launagreiðsla um
þessi mánaöamót. Ekki er ljóst
hvort til sliks örþrifaráðs þarf að
gripa i þessari helstu menningar-
stofnun þjóðarinnar, eða hvort
núverandi bráðabirgðastjórnvöld
bjarga málinu i horn með ein-
hverjum hætti, en samskonar
ástand hefur skapast a.m.k. tvi-
vegis áður. Ella verður Þjóðleik-
húsið væntanlega lokað i næstu
viku....
# Enn berast fregnir af upp-
sögnum blaðamanna á dag-
blaðinu Visi, en þær fara að nálg-
ast tuginn á þessu ári. I haust
hafa tveir af reyndari Blaða-
mönnum Vísis, Óli Tynes og
Kjartan Stefánsson sagt upp
störfum til að veröa ritstjórar hjá
Frjálsu framtaki, og nú hefur sá
þriðji, Sigurveig Jónsdóttir, sem
unnið hefur á blaðinu um árabil
og m.a. stjórnað skoðana-
könnunum þess, sagt upp frá og
með 1. febrúar. Hún mun hyggja
á „free-lance” störf i faginu...
#Að siðustu fáeinar athuga-
semdir við smáfréttirnar i siðasta
blaði. Það var rangt að þotu Air
Bahama hefi verið lagt vegna
vanskila við japanskt félag þaðan
sem vélin var fengin á kaupleigu-
samningi. Vélin var i klössun...
Guðrún Jónsdóttirforstöðumaður
Þróunarstofnunar neitar þvi að
krafa um hugmyndasamkeppni
um skipulag Grjótaþorps hafi
nokkru sinni komið upp meðan
hún var i forsvari Arkitekta-
félagsins... Og Björn Jónsson
sóknarprestur á Akranesi hringdi
og kvað þaö ekki koma heim og
saman við liðlega 20 ára prest-
skap hans i Keflavik og Kefla-
vikurflugvelli að flestar stúlkur
sem giftust Bandarikjamönnum
væru af Suðurnesjum.