Helgarpósturinn - 14.12.1979, Page 13

Helgarpósturinn - 14.12.1979, Page 13
13 htplrjr^rpnt^tl irinn Föstudagur 14. desember 1979 þvi a& eiga ekki fyrir útförinni sinni. En sú breyting hefur oröið si&an, að nú eru flestar jarðar- farir svipaöar, hvort sem um er að ræða rika eða fátæka. — Er útfararþjónusta góður „bissniss” á íslandi? — Nei, þaö er langt frá þvi. Við þurfum aö greiða allskonar gjöld af okkarhlut, meira að segja iðn- aðargjald, og af söngnum i kirkj- unni þurfum við að greiða STEF-gjald. En það er oft mikið að gera, þótt það sé misjafnt. Jarðarfarir ganga nefnilega i bylgjum, likt og fæðingar. Sem dæmi um hvað þetta er misjafnt get ég nefnt, áð um jólin 1969 og ’70 stóðu uppi fimm ójörðuð lik á aðfangadag annað árið, en 32 hitt árið. — Hvernig likar þér þetta starf? — Ég er nú alinn upp innanum likkistur og hef vanist jarðarför- um frá blautu barnsbeini. Strax og ég fékk bilpróf þótti sjálfsagt aðsendamig með likkistur suður meðsjó oguppi Mosfellssveit. En ég ætlaði mér aldrei i þetta. Minn hugur stóð, og stendur enn, til þess að grúska i vélum. En þá dó pabbi, og ég varö að taka við. Það var árið 1963. — Er þetta ekki niðurdrepandi starf, ef svo mætti segja? Hafa ekki syrgjandi ættingjar mikil áhrif á þig? Hinir látnu eru oft- astgamalt fólk, og fólk sem hefur átt við s júkdóma að striða. En að sjálfsögðu er maöur ekki dauður. Það snertir mig að sjálfsögðu. þegar égþarf að kistuleggja fólk, sem hefur dáið i blóma lifsins. — Annars eru jaröarfarirnar orðnar mun léttbærari nú en þær voru áður fyrr. Þá var reynt að toga út tárin á fólki með öllum ráðum. Þetta tók óratima, með húskveðjum og göngu á eftir lik- vagninum aö kirkjunni og siðan upp i kirkjugarð. Nú tekur þetta miklu styttri tima, og prestarnir leggja meiri áherslu á bjartari hliðarnar. Það besta var held ég þegar hætt var að útvarpa jaröar- förunum. — Ertu trúaður maður sjálfur? — Það er ég liklega á minn hátt, en ég er trúaður.spirit- isti. Ætli það komi ekki af starf- inu? Éghef séð of mörg lik, mis- jafnlega farin, til að trúa á upp- risuholdsins.En ég efast ekki um upprisu andans. Éghef orðið fyrir margskonar reynslu, sem sannar þaö. Fyrirtæki Daviös er einkafyrir- tæki, en útfararþjónusta Kirkju- garða Reykjavikur er opinbert fyrirtæki. Þar er útfararkostnaö- urinn eitthvað lægri, eða 220-230 þúsund krónur enda rekin með halla, að sögn útfararstjórans, Einars Jónssonar. Þeir veita alla sömu þjónustu og Davið, en ann- ast auk þess flutning líka af spi- tölum á Rannsóknarstofu háskól- ans til krufningar, og fyrir lög- regluna, þegar réttarkrufning fer fram. Auk þess sjá þeir um bálfarir, sem Einar taldi vera um tiu prósent af öllum útförum. — Nú er hluti þjónustunnar sem fólk fær hér greitt með kirkjugarðsgjaldi. Er þá gerður einhver greinarmunur á þeim sem eru innan þjóðkirkjunnar og utan hennar? Við beindum spurn- ingunni til Einars. — Nei, hér er ekki farið i manngreinarálit. Hér fá allir sömu þjónustu. Það hefur hins- vegar verið rætt lauslega, hvort ekki eigi a& útvega þessum nýja söfnuöi, Asatrúarsöfnuðinum, sérstakt horn i garöinum. En til þess hefur ekki komið enn, meðlimir þess safnaðar eru allir á lifi. — Hvernig er búið um öskuna, þegar bálfarir hafa farið fram? — Fram til þess að kistan hverfur sjónum kirkjugesta fer bálför fram á sama hátt og aðrar útfarir. Siðan er kistan brennd ásamt likamanum og öskunni komið fyri i svokölluöu duftkeri, sem kostar núna fimmþúsund krónur. Það er skylda aö greftra þessiker. Fyrst eftir að bálfarir voruteknar upp hér,um 1950, var þó leyfilegt aö afhenda aðstand- endum kerin. Þá kom fyrir, að öskunni var dreift út um landið eða á sjó, en það er alveg bannað núna. Óskir fólks um tónlist við jarðarfarir eru misjafnar. Tala súyfir greiðslu til söngfólks, sem er nefnd hér að framan, á við þennan venjulega sálmasöng, vanalega sex manneskjur og organisti. Sumir fá auk þess ein- söngvara og jafnvel fiölu- eða sellóleikara. Þá hækkar útfarar- kostnaðurinn að sjálfsögöu, nema viðkomandi leiki vegna vinar- eða ættartengsla við hinn látna. Það er tiltölulega fámennur hópur fólks, sem annast söng við jarðarfarir í Reykjavik og næsta nágrenni. Einn þeirra er Sverrir Kjartansson, og við höfðum tal af honum. Ég hef verið i nokkrum kórum, bæöi blönduöum og karlakórum, og fyrir allmörgum árum bund- umst viösamtökum dálitill hópur af gömlum kórfélögum til að koma skipulagi á jarðarfarar- söng. Astaeöan var sú að á seinni árum hefur fækkaö nokkuð karl- mönnum, sem geta sungið fjór- raddaðan söng, og eru það góöir söngmenn, að þeir geti sungið erfið verk fyrirvaralaust. Auk þesser vandamál aö fá fólk, sem kemst úr vinnu þegar jarðarfarir eru,Menn þurfaeiginlegaað vera sjálfs sin herrar og ráða tima áin- um, sagði Sverrir. Það er geysilega viðkvæmt mál hvernig til tekst meö sönginn, og úti á landsbyggðinni, sérstaklega i fámenum byggðarlögum, getur verið erfitt aö drifa upp góðan söng. Þess vegna höfum viö jafn- vel verið sóttir i flugvél tíl aö syngja úti á landi. En það er lika gaman, þegar fólkinu likar söngurinn og lætur I ljós þakklæti sitt. — Hvernig er að syngja við jarðarfarir i' jafn miklum mæli sem þú hefur gert? — Ég kann ekkert illa við það. Þaðeru nokkuð mörg ár siðan ég byrjaði að syngja við jarðarfarir, og i' fyrstunni var ég fullur áhuga á þvi hvervar dáinn.og hlustaði á ræður prestanna. En þetta var oft sorglegt, eins og gefur að skilja, og ég var stundum miður min all- an daginn — stundum i langan tima. Ég hætti þvi fljótlega að hlusta á prestana, nema i þeim tilfellum að ég hef þekkt viðkom- andi, sem verið er að jarðsyngja. Þetta sagði Sverrir Kjartans- son, sem við-völdum sem fulltrúa þeirra sem sjá um sönginn i kirkjunum. Þá eru upptalin aöal- atriði hverrar jarðarfarar. Þó er eftir enn einn útgjaldaliðurinn, sem nokkuö margir leggja út i. Það er legsteinninn. Flest allir setja tíl aö byrja með krossa á leiðin, og þá er meðal annars að fá hjá Kirkjugörðum Reykja- vikur. Legsteinninn kemur yfir- leitt seinna, oft mörgum árum seinna. Það eru tvær stein- smiðjur, sem inna af hendi þessa lokaþjónustu við hinn látna, Steinsmiðjan og Mosaik. Við höfðum samband viö Sigurö Helgason I Steinsmiðjunni, sem nú er til húsa að Skemmuvegi 48 i Kópavogi. Fyrirtækið er að grunni til um 90 ára gamalt og hefur framleitt meiripartinn af þeim legsteinum sem eru i is- lenskum kirkjugörðum. Við spurðum Sigurð hversu fram- leiðslan væri mikil. — Þetta eru liklega 6-700 steinar á ári. Þessir steinar fara á grafir fólks, sem hefur látist allt frá árinu 1920 og fram til þessa dags, sagði Sigurður. Flestir legsteinar eru gerðir úr islensku grjóti: gabbró, blágrýti og grásteini, en marmari og granlt eru fhitt inn. Verðið á is- lenskum legsteinum er frá 100-250 þúsund, en innfluttu steinarnir eru um tvöfalt dýrari, fyrst og fremst vegna mikils flutnings- kostnaðar. Algengastir eru svo- nefndir púltsteinar, sem eru litlir og liggja vanalega flatir á jörð- inni. Verðið á þeim er niður i hundraö þúsund. Innifalið i þessu verði er letur, en hver stafur kost- ar um 600 krónur. Með legsteininum hefur hinum látnu verið reistur óbrotgjarn minnisvarði — en um gildi hans geta menn aö s jálfsögðu deilt. Hiö fornkveðna segir: ,,En orðsti hveim es sér góðan getr deyr aldregi”. Sá minnisvarði er að minnstakosti útgjaldaminni fyrir eftirlifendur en legsteinn, þótt hanri sé að sjálfsögöu góöur og gildur. Simon Konráðsson, likkistu smiður. Frábærar barna- og unglingabækur þú getur bókað þaö Andrés Indriðason: Lyklabarn Verðlaunabókin í barnabókasamkeppni Máls og menningar. Hér er sagt frá Dísu,1 sem flyst í nýtt og hálfbyggt hverfi með foreldrum sínum og litla bróður. Hún er einmana í fyrstu, en smám saman stækkar kunningjahópurinn og Dísa fer að kunna vel við sig. En það fer margt öðru vísi en krakkar vilja. Þessi saga segirlíka frá því. Verð kr. 5.490. Félagsverð kr. 4.665. Ármann Kr. Einarsson Mamma í uppsveiflu Nýi strákurinn í 6. bekk H. B., Geiri, er söguhetjan í þessari bók ásamt fjöl- mörgum dugmiklum bekkjarfélögum sínum. Krakkarnir innrétta gamalt pakkhús og hyggjast hefja leiksýningar til styrktar heyrnardaufri bekkjarsystur sinni. En einmitt þegar frumsýning er í nánd fer mamma Geira „í uppsveiflu" og hætta er á að öll fyrirhöfnin sé til einskis. Verð kr. 5.310. Félagsverð kr. 4.515. I Maria Gripe: Náttpabbi Bráðskemmtileg barnasaga eftir höfund bókanna um Húgó og Jósefínu. í þessari bók er sagt frá ungri stúlku, Júlíu, sem eignast náttpabba, sem gætir hennar á meðan mamma er í vinnunni. Náttpabb- inn á ugluna Smuglu, og uglur vaka á næturnar... Þýðandi Vilborg Dag- bjartsdóttir. Verð kr. 4.940. Félagsverð kr. 4.210. Astrid Lindgren: Á Saltkráku Sagan um fjölskylduna sem leigir sér ókunnugt hús á ókunnri eyju og lendir þar í ótal ævintýrum. Eftir þessari bók hafa verið sýndir mjög vinsælir sjón- varpsþættir. Þýðandi Silja Aðalsteins- dóttir. Verð kr. 5.490. Félagsverð kr. 4.665. Astrid Lindgren: Víst kann Lotta næstum allt Gullfalleg myndabók fyrir yngri börnin. Sagan um Lottu litlu sem getur allt — nema renna sér í svigi á skíðum. Og þegar öll jólatré í bænum eru uppseld tekur hún til sinna ráða. Þýðandi Ást- hildur Egilson. Verð kr. 3.295. Félagsverð kr. 2.800. Falleg og athyglisverð unglingasaga, þriðja og síðasta bókin um vandræða- gripinn og hæfileikamanninn Patrick Pennington. í upphafi bókarinnar situr hann í fangelsi fyrir að ráðast á lög- regluþjón við skyldustörf. Þýðandi Silja Aðalsteinsdóttir. Verð kr. 5.915. félagsverð kr. 5.025. Astrid Lindgren: Ný skammarstrik Emils í Kattholti Önnur bókin um hinn óforbetranlega Emil í Kattholti. Þegar þessi bók hefst hefur Emil tálgað 99 spýtukarla í skammarkróknum, en þegar henni lýkur eru þeir orðnir 125. Þýðandi Vilborg Dag- bjartsdóttir. Verð kr. 5.000. Félagsverð kr. 4.250. Mál og menning

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.