Helgarpósturinn - 14.12.1979, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 14.12.1979, Blaðsíða 24
24 VI Ð MÆL UM MEÐ Föstudagur 14. desember 1979 Ji e/garpásturínn Það er úr vöndu að cáða þegar taka skal nokkrar bækur út úr öllu þvi flóði bóka, sem hellist yfir landsmenn þessa dagana. Engu að siður höfum við hætt á það, að velja fáeinar bækur úr i ljósi umsagna bókmenntagagnrýnenda Helgarpóstsins þeirra Heimis Pálssonar, Gunnlaugs Ást- geirssonar og Helga Skúla Kjartanssonar, auk þess sem Arni Björnsson kemur einn- ig litillega viðsögu. Þá vekjum við athygli á nokkrum þýddum bókum og reyfurum, sem ýmist hafa ekki borist okkur þegar þetta er tekið saman eða ekki gefist tóm til að fjalla um. /s/ensk ská/dverk Auönuleysingi og tötrughypjaeftir Mál- friði Einarsdóttur. Skáldsaga. útgefandi Ljóðhús. Höfundur á niræðisaldri eys yfir okkur genialiteti i formi einhvers konar tilraunaskáldsögu. Ein þeirra bóka sem auðga mannlifið og skemmta lesendum. Sjá umsögn. Hauströkkrið yfir mér eftir Snorra Hjartarson. Ljóð. útgefandi Mál og menning. A áttræðisaldri bætir Snorri við einni perlunni eftir 13 ára þögn. Sæla má sú þjóð prisa sig, sem er þess virði að fá svo fallega kveðju frá fagurkera sinum. Sjá umsögn. Hvunndagshetjan eftir Auði Haralds. Reynslusaga, Útgefandi: Iðunn. Þessi bók er allmikil nýlunda i islenskum bók- menntum, þvi að það er reynsla konunnar sem þarna verður söguefni. Skrifuð af mikilli kaldhæðni sem stundum er bæði styrkur og veikleiki þessarar bókar. Saga af manni sem fékk flugu i höfuðið eftir Guðberg Bergsson. Skáldsaga. Út- gefandi: Helgafell. Fabúla, dæmisaga eða eitthvað svoleiðis. Tvimælalaust ein merkasta bók ársins. Sjá umsögn. Undir kalstjörnu — uppvaxtarsaga eftir Sigurð A. Magnússon. útgefandi: Mál og menning. Skáldsaga sem byggir i öllum efnisatriðum á endurminningum höfund- ar. Átakanleg bók en gott búsilag islensk- um bókmenntum og umtalsveröur sigur fyrir höfundinn. Æviminningar Fyrir sunnan eftir Tryggva Emilsson. Útgefandi Mál og menning. Tryggvi lýkur með þessari bók ritun endurminninga sinna. Bækur Tryggva eru merkilegt hetjuljóö um baráttuna og gildi barátt- unnar fyrir betra og fagúrra mannlífi. Með lffið I lúkunum. Rögnvaldur Sigur- jónsson I gamni og alvöru. Guðrún Egil- son skráði. Útgefandi Almenna bókafé- lagið. Opinskáar, hraðar og lifandi mynd- ir sem birta litinn og skemmtilega geira af lifi tónlistarmanna. Misjöfn er mannsævin. Hernámsárin. Eftir GeirHansson (dulnefni). Útgefandi: Orn og örlygur. Þessi saga er mikill feng- ur, ekki aðeins fyrir þá sem vilja njóta góðra bókmennta heldur einnig fyrir hina, sem fyrst og fremst langar til að skilja mannlifið i öllum sinum myndum. Tryggva saga, ÁsgeirJakobssonskráði. Útgefandi: Skuggsjá. Þetta er starfsaga Tryggva Öfeigssonar og náma af fróðleik um islenskan sjávarútveg, einkum um togaraútgerð, togaralif og togaramenn. Þeir vita það fyrir vestan eftir Guð- mund G. Hagalin. Útgefandi: Alrhenna bókafélagið. Siðasta bindi ævi- sögu Hagalins og lýsir árunum hans á ísa- firði. Hér er Hagalin á fullu, duglegur, ó- vilinn, skemmtilegur. Þýddar bókmenntir Að venju kemur fyrir þessi jól út mikill fjöldi þýddra bóka. Meirihlutinn er af- þreyingarlesning af ýmsu tagi, — hasar- sögur og ástarsögur svokallaðar. Rétt er að vekja sérstaka athygli á eftirfarandi þýddum bókum á jólamarkaðnum núna: Töframaðurinn frá Lublin eftir Nóbels- höfundinn Isaac Bashevis Singer. Singer er i senn afar frjór og fyndinn höfundur. t morgunkulinu. Færeyski meistarinn William Heinesen i afbragðsþýðingu Þor- geirs Þorgeirssonar. Kastaniugöngin. Falleg saga eftir Dea Trier Mörch, höfund Vetrarbarna. Skræpótti fuglinn. Fyrsta bókin sem þýdd er á islensku eftir einn af fremstu rithöfundum Bandarikjanna, Jerzy Kosinski. Glerhúsin. Tragikómiskur danskur húmor frá Finn Söeborg. Reyfarar íslenskir lesendur hafa tekiö miklu ást- fóstri við ýmsa erlenda reyfarahöfunda sem eru orðnir fastir gestir á jólabóka- markaðnum. Meðal þeirra sem nú eru meö bækur eru Alistair MacLean (Ég sprengi kl. 10), Sidney Sheldon (Blóð- bönd), Hammond Innes (Filaspor), Des- mond Bagley (Fjallvirkið), Sven Hazel (Guði gleymdir og Monte Casino), Brian Callison (Arás i dögun), Gavin Lyall (I greipum dauðans), Francis Clifford (Nauðlending, Flug 204 svarar ekki) og fleiri. Sérstök ástæöa er til aö vekja athygli á reyfurum með ótvirætt bókmenntagildi, þar sem eru lögreglusögur Maj Sjöwallog Per Wahlöö.en sú nýjasta er Löggan sem hló I þýðingu ölafs Jónssonar. Og ekki má gleyma endurútgáfu á meistara Sherlock Holmes eftir Arthur Conan Doyle. Og á þessum jólabókamarkaði er sú ný- lunda, að Islenskar lögreglusögur viröast vera að fæðast sem gild bókmenntagrein, þar sem eru Gátan leyst, Margeir, eftir Gunnar Gunnarsson, og Vitnið sem hvarf eftir Jón Birgi Pétursson. Báðir eru þeir fyrrum blaðamenn og skrifa reyfara sina út frá reynslu sinni af islenskum veru- leika. Ymislegt Kvæðafylgsni. Um skáldskap eftir Jón- as Hallgrimsson eftir Hannes Pétursson. Vilji menn kanna og skilja kveðskap Jón- asar munu þeir eftirleiðis ekki geta leitt hjá sér Kvæðafylgsni. Mikill fjöldi bóka og hljómplatna eru á- markaðnum við hæfi barna og unglinga. Við viljum til dæmis vekja athygli á eftir- farandi bókum: Agnarögn.barnabók eftir PálH. Jónsson (sjá umsögn), Lyklabarn, verðlaunabók Andrésar Indriðasonar, Sjáðu sætan naflann minn, kunn dönsk unglingabók eftir Hans Hansen, Gvendur bóndi á Svinafelli eftir enska ævintýra- meistarann J.R.R. Tolkien, og hinar si- gildu Dæmisögur Esóps i nýrri útgáfu. Meðal eigulegra innlendra hljómplatna fyrir börn: Hattur og Fattur komnir á kreik.lög og textar ölafs Hauks Simonar- sonar, Glámur og Skrámur, með textum Andrésar Indriðasonar, og plata með ungri söngkonu, Kötlu Mariu. Sígild tón/ist Hér er ekki ætlunin að mæla með plötum fyrir sérstaka kunnáttumenn eða fagurkera. Þeirsjá um sig. Þessar ábend- ingareru fremur miðaðar við þá, sem eru nýlega farnir að hafa gaman af klassiskri músik, en eru óvanir að kaupa hana fyrir sjálfa sig eða til gjafa. Allar plöturnar fást annaöhvort i Fálkanum eða Hljóð- færahúsinu. — ÁBj. lslenzk þjóðlög. Guðrún Tómasdóttir og Ólafur V. Albertsson. Þessi plata hefur þrjá kosti: 1) Hún er góð af sjálfri sér fyrír hvern sem er. 2) Hún er tilvalin að senda erlendum kunningjum, sem langar i ómenguð Islensk þjóðlög einsog þau koma af skepnunni. Maður hefur oft lent I vandræöum með að benda á slikt. 3) Hún er hentug til samanburðar við þær til- raunir, sem nú eru gerðar við að útfæra þjóðlögin á ýmsan hátt og sumar merki- legar, t.d. hjá Þursaflokknum. Útgefandi Fálkinn. Ef einhver veður enn i þeirri villu, að klassisk músik sé endilega „þung”, mætti hann byrja á að hlusta á þessa plötu með ungverskum dönsum eftir Brahms og slavneskum dönsum eftir Dvorsjak, Berlinar Filharmóniunni og Herbert von Karajan. Deutsche Gramophone. Schubert — Dieskau — Moore. Ef menn hafa heldur yndi af ljóðasönglist, þá er hér ágætt sýnishorn, þar sem þrir snill- ingar leggja saman. Flestir munu a.m.k. kannast við Heiöarósina og Silunginn, en hin lögin eru ekki lakari. Angel/EMI. Chopin.Margir lipurputtar leika hver sitt verkið. Sumir geta haft gaman af að vera þá saman, þótt i litlu sé. Hér eru mörg eftirlætisnúmer, en platan hefst á etýð- unni, sem MA-kvartettinn söng: Kom vornótt og syng þitt barn i blund. Deutsche Gramophone. Haydn. Sinfóniur 94 (Trumbuslagið) og 101 (Klukkan). Séu menn óvanir sinfónium, er ágætt að byrja á „föður” þeirra, hann er svo aðgengilegur. Nr. 94 er m.a. þekkt fyrir óvæntan óhemju gauragang i miðjum undurmildum strengjaklið. Haydn sagðist hafa sett þetta inn til að vekja áheyrendur og yfir- gnæfa hroturnar. Deutsche Gramophon. Mozart. Konsertar fyrir flautu og óbó. Sumir elska hið göfuga hljóðfæri, flaut- una, aðrir óbóið. Hér er dýrindis dæmi um hvort tveggja og Mozart uppá sitt ljúf- asta, og er þá mikið sagt. EMI. Beethoven: Keisarakonsertinn. Wilhelm Backhaus. Vinar Filharmónian. Plötur eru mjög misdýrar eða frá uþb. 2.500 — 15.000 kr. Fer það sumpart eftir aldri, kostnaði við upptöku, skattheimtu og öðru miður skiljanlegu. En ending þeirra og gæði eru ekki eins misjöfn og ætla mætti af verðinu. Hér er eitt hinna miklu meist- araverka með afbragðs flytjendum á aðeins 5.000 kr. Decca. Sibelius. Sinfónia nr. 2. Séu menn á annað borð komnir á sinfóniubragðið, ættu þeir ekki að láta lengi hjá liða að kynnast Sibeliusi, Það er óþarft að hanga alltaf i Beethoven, þótt bestur sé. Þessi - sinfónia er mjög fljótnumin, einkum 1. og 4. þátturinn. Henni er stjórnað af ungum landa hans, Okko Kamu, sem hlaut 1. verðlaun i Karajan hljómsveitarstjóra- keppninni i Berlin 1969. Deutsche Gramo- phon. Það er mjög gaman að forleikjum, bæði i ástinni og músikinni. Hér eru allir músik- forleikir Beethovens samankomnir á tveim plötum, og það er ekkert slor. Berlinar filharmonian undir stjórn Karajan. Deutsche Gramophon. Bach.Vilji menn komast i hátiðaskap þá er fátt haganlegra en setja þessa orgel- plötu með Helmut Walcha á fóninn, einkum fyrri siðuna með Tokkötu og fúgu i d-moll. Archiv. Vilji menn fremur hátiðasöng, þá er óhætt að mæla með Sálumessu Verdis, sem tekin var upp i Róm 1939 með Mariu Caniglia, Ebe Stignani, Beniamino Gigli og Ezio Pinza. Einsog við má búast af óperuskáldinu, eru óvenjumörg falleg lög i þessu erfiljóði. An þess ég sé að hvetja fólk til að byrja inni á miðjum plötum, þá hygg ég, að seinni hlutinn á 2. siðu (Lacri- mosa) og miðjan á þeirri 3. (Sanctus) gangi einna fyrst til hjartans. Seraphin/EMI.. En láti menn sér nægja lofsöngva i smærri skömmtun, þá hlýt ég að benda á minningarplötuna um Róbert A. Ottósson, sem Söngsveitin Filharmonía gefur út með þáttum úr Sálumessu Brahms og Messiasi eftir Handel. Popp Agæti lesandi! Við höfum verið beðnir um að taka saman yfirlit um þær hljóm- plötur sem viðmælum með i jólapakkana. Auðvitað er sllkt yfirlit takmarkað, vegna hins mikla fjölda góðra platna sem eru á markaðnum i dag. En helst reynum við að taka fyrir nýjar plötur, og þær plötur sem við teljum skara frammúr á hinum ýmsu sviðum. Sú flokkun er meira til leið- beiningar, en að hún sé algild, þvi einsog allt poppáhugafólk veit, er erfitt að skipa þessari tónlist á ákveðna bása. Allt um það, þá vonum við að þetta yfirlit megi verða þérhjálp I jólainnkaupunum. Gleði- leg jól! —GRG/PP 1 i' Plata ársins: Stevie Wonder Journey Through the Secret Life of Plants kr. 15.900,- ...inniheldur aö mestu tónlist sem Stevie Wonder samdi fyrir samnefnda kvik- mynd. Þyngri en fyrri plötur hans, og örugglega metnaðarfyllsta tónsmið hans til þessa....

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.