Helgarpósturinn - 02.05.1980, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 02.05.1980, Blaðsíða 8
8 Fostudagur 2. maí 1980 /uj/ry^rjnrSc?// irinn _____helgar pósturinn_ Útgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjafi sem er dótturfyrirtaeki Alþýðublaðs- ins, en með sjálfstæða stjórn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð- mundsson. Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf- steinsson. Blaöamenn: Guðjón Arngrimsson, Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund- ur Árni Stefánsson og Þorgrimur Gestsson. Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason. Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuidur Dungal. Auglýsingar: Elin Harðardóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir Dreifingastjóri: Sigurður Steinarsson Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðu- múla 11, Reykjavík. Simi 81866. Af- greiðsla að Hverfisgötu 8-10. Símar: 81866, 81741, 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent h.f. Áskrift (með Alþýðublaðinu) er kr. 4.500.- á mánuði. Verð í lausasölu er kr. 300.- eintakið. Um nokkurt skeið hefur fá- mennur en harðskeyttur hópur unnið að þvl ötullega að endur- vekja áhuga á jazzi meðal lands- manna. Þessi hópur hefur mynd- að með sér félagsskapinn Jazz- vakningu sem á siðustu misser- um hefur kappkostað að fá hingað ýmsa fremstu jazzleikara verald- ar til tónleikahalds, jafnframt þvl sem reynt hefur verið eftir megni að hlóa að hinum Islenska jazzi. Jazzvakning hefur oftast teflt á tvær hættur hvað snertir fjár- hagslega útkomu starfscminnar og raunar lengst af mátt sækja á br:!ftarn I þeim efnum. Starf Jazzvakningar hófst hér á landi um það bil á sama tima og jazztónlistin erlendis var aö rlsa úr öskustó nokkurra ára niðurlæg ingar. 1 sjálfu föðurlandi jazzins kvað svo rammt að þessari niöur- lægingu að einn af jazz-mönnum okkar fullyrðir að þar hafi einhverjir rokkarar komið með bll sinn á bensinstöö og uppgötvað MISMUNUN að sá sem afgreiddi þá var Duke Jordan. Það var helst á Norður- löndum — I Danmörku og Svfþjóð, að jazzinn dafnaöi sæmi- lega I þessum harðindum, og þeir amerisku jazzleikarar sem þar drógu fram llfiö, eiga nú ekki svo lltinn þátt I þvi endurreisnar- timabili jazztónlistarinnar, sem nú er hafið. Agætasti fulitrúi hins norræna jazz er Niels-Henning örsted- Pedersen og hann hefur ekki átt lltinn þátt I þvi að bera út orðstl Norðurlanda sem eins konar gósenlands jazztónlistar. i Nieis Henning eiga tslendingar llka hauk I horni, þvl að hann hefur veriðólatur að sækja heim jazz- áhugamenn hér á landi og miðla þeim af list sinni. Nú slðast var hann hér á ferð með brasiilsku jazzsöngkonunni Tania Maria og húsfyllirinn, sem var á þeim tón- leikum, vekur þær vonir að jazz- inn sé á nýjan leik búinn að skjóta hér rótum. i Heigarpóstsviðtali I dag gefur Niels-Henning eftirfarandi lýs- ingu á list sinni: „Allt hið óvænta I tilverunni gefur llfinu gildi. Ein- hverntlmann spurði ég Dexter (Gordon) hvl I andskotanum hann gæti aldrei mætt á réttum slma, og hann svaraði: Það er krydd tilverunnar. Þannig er það með þá tónlist sem kemur þér á óvart: Hún er salt llfsins. An hennar get- urðu ekki lifaö. Maðurinn verður að tjá sig á allan mögulegan hátt og það er geggjun að skynja tón- list I einum farvegi...” islensk stjórnvöld hafa verið undir þá sök seld að „skynja tón- list I einum farvegi”. Það kemur fram I þvl að jazzunnendur og áhangendur léttrar tónlistar verða að greiöa skemmtanaskatt af tón- leikum með hljómiist af þvl tag- inu meðan svokölluð sigild tónlist er undanþegin slikri skattheimtu. Svona dilkadráttur er auðvitað I meira lagi hæpinn, þvi að allir vita að það er til afleit klasslk á sama hátt og það er til framsækin og góð jazz- og popptónlist — tón- list sem hefur eitthvað að segja samtið sinni. Helgarpósturinn telur það vera hreint réttlætismál, að öll tónlist sé sett á sama bás I þessu efni, þvi að eins og Niels-Henning segir: „Kjarni tónlistarinnar er fegurð- in — þaö eitt er vlst”. Þá fegurð má finna I tónlist af öllu tagi. BvS Geng/ð á vrt goöverunnar Núpi „Það besta er að gleyma sinum eigin heimi, bæði þvi sem maður hefur orðið að þola, og eins hinu, sem máður þráir, þvi, sem maður kann að vinna, gleyma sinu eigin lifi andspænis þeirri fegurð, þar sem mannlegu lifi sleppir, og eilifðin tekur við, hið fullkomna, fegurðin sem efsti dómur. (Fegurð himinsins, HKL, I upphafskafla). Og menn spyrja i hugskoti sinu hvaða erindi þessi texti eigi akkúrat hér og þeim er vorkunn, þvi að textar eru ekki settir einir og sér, nema þá menn ætli helst aö leggja út af þeim. Og það er örðugt aö leggja út af svona texta og allra sist með daglegum rökum sem menn nota, kannski vegur með augans leit gegnum litanna sjóð eins og Einar kallinn Ben ofðaði það, liklega skást með þviaösemja hljómkviðu. En til þess verða menn að minnsta kosti að eiga munnhörpu og kunna hrafl i nótum. Hér fer að læðast að manni sá grunur, að kannski sé óviður- kvæmilegt að skrifa svolitiö til- brigði við Fegurð himinsins i dálk :,om heitir jafn ólýrisku nafni og Vestfjarðapóstur, menn búast við aflafréttum úr þeirri áttinni.eða hvort mikið hafi verið um dýrbit. En það var sem sé á þessum slóðum sem Olafur Kárason Ljós- vikingur gleymdi sinum eigin heimi, bæði þvi sem hann varð að þola, eins hinu sem hann þráði. Og ég Imynda mér, að þessi jökulkimi sem ég á heima I geti allt eins verið einn af jökulkimum Ólafs Kárasonar, enda þótt eng- inn opinber jökull sé lengur á korti hér I Vestursýslunni. Ólafur Kárason er talinn eiga fyrirmynd i Magnúsi Hjaltasyni, skrifaði sig Magnús Hj. Magnús- son, og var fæddur að Tröð i Alftafirði 6. ágúst 1873. Borinn i skjóðu vestur yfir Hestskarð til vandalausra að Hesti undir Hafurshesti i önundarfirði. Varð fyrir slysi i æsku og sagður til sveitar og varð honum fjötur um fót sveitarskuldin fram undir efri ár. Magnús Hjaltason samsamast helst Ólafi Kárasyni i alþýðu- skáldinu og þvi þjóðfélagi sem báðir lifðu i. Skáldið á Þröm var auk þess fræðaþulur og króniku- ritari og bjargaði mörgu frá tor- timingu er varðaði störf og lifs- baráttu alþýðu manna við kröpp kjör. I Landsbókasafninu eru 4000 handskrifaðar siður eftir Magnús ogeinnig munnmælum ýmsum og telst ærinn skerfur manns sem stundaöi það sem til féll til sjós og lands. En þrátt fyrir að Magnús Hjaltason liföi ekki sér vitanlega I upphafningu kenndri við Lao Tse og Taó, lifði hann i nánd alhreinnar goðveru þar sem er sú umgerð náttúru i vestfirsku landslagi og engu öðru er lik. Þar sofna menn með útsýn til jökuls og vakna við garg gljúfur- fuglsins. Mig minnir, að „kraft- birtingarhljómur guðdómsins ” komi fyrir hjá Magnúsi Hjalta- syni, en sé ekki siðari tima digtun, en þetta kann að vera rangt. Hitt er annað mál að kraft- birtingarhljómur þessi kemur ekki fyrst fram i slagtogi við Lao Tse i islenskum bókmenntum. Jónas Hallgrimsson er liklega efstur á blaði varðandi þetta þema, svo það vandræðaorð sé enn notað. „Beljandi foss við hamrabúann hjalar/ á hengiflugi undir jökulrótum/ þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar, (Gunnarshólmi). Og reyndar viðar hjá Jónasi og þá birtist kraftbirtingarhljómurinn all rækilega i panþeisamnum hjá Einari Benediktssyni, en kannski er Taóisminn ekki yfirskil- vitlegur eins og það sem ég nefndi á eftir, fremur ráðstöfun hins sjálfsagðasta og verður samt ekki skýrt á prenti. En til að beinbrotna ekki á niðurleiðinni og forða stóru tjóni eftir að hafa þrætt brún gljúfurs- ins með Laó Tse, langar mig að geta annars minnis, þess, þegar menn dóu inn i fjöll og hamra og hittu þar fyrir sveitunga sina og frændur, sbr. Helgafell og Áfanga Jóns Helgasonar. Þess finnst getið til á prenti, að Jón Rauðseyjaskáld i Breiðafirði hafi drukknað um miðja 17. öld og ætti þá að hafa verið nær áttræðu. Þjóðsagan er þarna á öðru máli eins og svo oft. Hún segir að fyrir lát sitt hafi hann mælt svo fyrir, um meðferð á sér látnum, að áður en hann væri fluttur til greftrunar að Skarði (á Skarðströnd) þá skyldi flytja hann út i Hóley i Ólafseyjum. Þar átti að koma kistu hans fyrir um sinn á kletta- brik nokkurri I Andrahausi. Það mun vera lengst til suðvesturs i Hóley. Allt var þetta gert sem Jón mælti fyrir um. Svo sögðu þeir siðan sem likið fluttu, að þegar þeir tóku kistuna aftur úr Andra- hausi og fluttu að Skarði, þá var hún miklu léttari. Var þvi trúað, að meö þessum hætti hefði Jón skáld dáið inn i Andrahaus. Og Játvarður Jökull Júliusson á Miðjanesi, sem ég hef þetta eftir bætir við einsog skáidi og rithöf- undi er hent: Alveg var það eftir skáldi, að vikja svona óvænt út af alfaravegi. Hann var fjölvis og skyggn (Jón Kauöseyjaskáld) og má vera að þarna hafi hann vitað þá vætti, sem hann vildi helst gista. Ungur barst hann til Breiðafjarðar og I eyjunum hef- ur hann verið töfrum tekinn. Þar verður trauðla annar staður fundinn betur við hæfi en Andra- haus. Þar fléttast i eitt tign órofa viðsýnis og töfrar ósnortinnar náttúru. (Umleikinn ölduföldum bls. 29). En allt um það, Jón Guðmunds- son, Rauðseyjaskáld, og Ólafur Kárason, alias Magnús Hjaltason öðluðust lengra lif en öðrum mönnum varð auðið, þó af ólikum toga, en gleymdu lika allir sinum heimi og gengu á vit goðverunnar óháðir tlma og mannlegu llfi. _________ HMKARL Forystuleysi stjórnar- innar í kjaramálum Sjaldan eöa aldrei á siðari ár- um hefur verkalýðshreyfingin eða réttara sagt launþegahreyf- ingin i heild verið jafn samtaka og nú 1. mai. Hvenær hefur það til dæmis gerst á siöustu árum að samkomulag hafi náðst um hátíöahöldin I Reykjavlk 1. mai þegar fulltrúar allra launþega og ólikra stjórnmálaskoðana hafa staðið að hátiðahöldunum. Þetta er svona eins og þegar erfiðleikar steðja að fjölskyldu þá þjappar hún sér saman, og þá venjulega um þann sem er I fyrirsvari fyrir fjölskylduna, en núna þjappa launþegar sér hinsvegar ekki saman um neinn einn mann, held- ur kannski á móti þeim manni sem á að heita aö vera i fyrirsvari fyrir rfkisstjórninni. Nú er tækifærið Rikisstjórnin hefur nú tækifæri til aö visa veginn I kjaramálun- um, en þess I stað virðist litið annað gert á stjórnarheimilinu en ákveða nýja og hærri skatta. For- sætisráöherra kom I sjónvarp á dögunum og lýsti áformum rikis- stjórnarinnar til að greiða fyrir lausn kjarasamninga en hins- vegar minntist hann aldrei á lausnarorðið I þessum málum en þaö er lækkun skattbyrði. Auö- vitaö þarf rikisstjórnin aö hafa fyrir þeim útgjöldum sem hún hefur skuldbundið sig til, en á maöur að trúa því að nýsamþykkt fjárlög hafi veriö miöuö við skattahækkun. Að vísu eru þessi skattalög öll svo óljós nú vegna , nýju skattalaganna sem flokks- bróöir forsætisráðherrans og samráðherra I rfkisstjórn i fjögur ár, hafði forystu um að sam- þykkja. Þessi maöur er Matthlas A. Matthiesen. Hann hefur litið haft sig í frammi i skattaumræð- unni að undanförnu, enda kannski erfitt fyrir hann að segja mikið, þvi reynslan ein mun skera úr um hvernig þessi skattalög koma út fyrir hvern og einn skattborgara þessa lands. Félagslegar ibúöabyggingar eru góðar út af fyrir sig, en þýða þær ekki bara hærri skatta? Auk þess ná umbætur i þeim málum ekki til þeirra sem borga hlut- fallslega mesta skatta. Fram til þessa hefur láglaunafók gengið fyrir um félagslegar ibúðir, og það er lika fólkið sem borgar minnsta skatta. Hinir, þessir sem hafa meðallaun, eru I föstu starfi hjá rlki, sveitarfélögum eöa stórum fyrirtækjum, þar sem allt er gefið upp, verða að gjöra svo vel og borga brúsann af þessum félagslegu ibúöarhúsabygging- um, svo ekki koma sllkir hlutir þeim til góða. Spádómur dr. Gunnars Forsætisráðherra vor hikaði ekki við það i sjónvarpinu að segja aö útreikningar Þjóöhags- stofnunar varðandi veröbólguna I ár, sem Lárus Jónsson þing- maöur skýröi frá I Útvarpsum- ræðunum á þriðjudag, væru rangir. Upphaf þessa máls er það, að fjárveitinganefnd Al- þingis óskaði eftir þessum út- reikningum frá Þjóöhagsstofnun, sem er ofur eölilegt. Lárus skýröi frá þessum útreikningum Jóns Sigurðss. og starfsmanna hans i Þjóöhagsstofnun og greindi/ frá því hvernig verðbólgan myndi magnast i áföngum i 55 prósent á árinu. Þorsteinn Pálsson hjá Vinnuveitendasambandinu sagði svo að verðbólgan myndi verða i kring um 77 prósent á árinu, en doktor Gunnars Thoroddsen full- yrti svo frammi fyrir alþjóö að hún yrði um 40 prósent, kannski 45 I hæsta lagi. Nú er það spurn- ingin: Hver er reiknimeistari doktor Gunnars. Hann hefur að vfsu látiö ráða sérstakan fulltrúa sinn að Framkvæmdastofnun rikisins: Benedikt Bogason verk- fræöing, en hann var einmitt einn af þeim sem aöstoðuðu doktor Gunnar við stjórnarmyndunina I vetur. Það er næst að álykta að þessir veröbólguútreikningar séu komnir frá Benedikt Bogasyni sérstökum „kommisar’ Gunnars Thoroddsen í Framkvæmdastofn- un, þótt sú stofnun eigi ekkert aö fjalla um veröbólguspár og alls ekki sú deild sem verkfræöingur Gunnars starfar i. VSÍ og VMSÍ Nú þegar bæöi Vinnuveitenda- sambandiö og Verkamannasam- bandið hafa gefiö rikisstjórninni opinberlega færi á aö hafa veru- leg áhrif á gang mála viö kjara- samninga, ætti hún að grípa tæki- færiö á stundinni áður en allt fer I hnút. Það þarf nefnilega ekki mikið að gerast til þess að hvert félagið af öðru fari að boða verk- föll. Félagar I mörgum verkalýðsfélögum eru orðnir mjög svo órólegir meö gangleysi samningaviðræðna, og hætta á að þolinmæði bresti þá og þegar. Hákarl

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.