Helgarpósturinn - 02.05.1980, Blaðsíða 24
I
_he/garpósturinnFöstudagur 2 maí 1980
stöðvar sem dregur nafn af þvi að
hún var staðsett á efri hæð húss
eins á Brekkunni svokölluðu, en
hins vegar mun það hafa þótt til-
hlýðilegt að stöðva þessa grimmu
samkeppni við rikisútvarpið i
heimabæ menntamálaráð-
herrans,yfirmanns þess...
# í lok júnimánaðar er ráögert
aö frumsýna þriðju islensku bió-
myndina á þessu ári, Óðal
feöranna, og hafa Háskólabió og
Laugarásbió verið nefnd sem
sýningarstaðir. Tónlistina við
myndina semja tvö okkar
fremstu popptónskáld, Gunnar
Þórðarsonog Magnús Eiriksson.
Nú er i bfgerö útgáfa tveggja laga
plötu með músik úr myndinni.
Þar syngur Björgvin Halldórs-
son. Reyndar gerir Björgvin
meira en aö syngja i myndinni.
Hann leikur sjálfan sig, þar eð
fyrirbærið Bjöggi poppgoð flétt-
ast inn f söguþráðinn. Fleiri þjóö-
frægar persónur koma fram I
óðali feöranna I eigin nafni, og til
dæmis fer GuðnL rektor
Guðmundsson I M.R. með hlut-
verk sjálfs sin i myndinni...
# önnur kvikmynd, stórvirki
sjónvarpsins um Snorra Sturlu-
son, er nú i burðarliðnum og
undirbúningur i fullum gangi. Og
auðvitað á að verða músik i
myndinni. Heyrst hefur að Karl
Sighvatsson, Þursaflokksmaður
með meiru sé i sigtinu sem höf-
undur tónlistar við „Snorra
Sturluson” og verður þvi ekki
annað sagt en svokallaðir alþýðu-
tónlistarmenn séu eftirsóttir sem
kvikmyndatónskdld...
@ Verndarar laga og réttar á
Akureyri tóku sig til um siðustu
helgi og skrúfuðu fyrir helstu
afþreyingu bæjarbúa að undan-
förnu, — nefnilega leyniútvarps-
stöðina tJtvarp Efri hæð. Þessi
útvarpsstöö, sem sendi daglega
út poppmúsik og brandara fram
undir og stundum yfir miðnætti,
hefur trúlega slegið íslandsmet i
langlifi slikra stöðva þvi hún
hefur fengiö að starfa óáreitt i allt
að þrjá mánuði. Lögregluyfirvöld
hafa verið treg til að gefa upp
aðstandendur þessarar útvarps-
@ Nú mun ljóst að hagur frétta-
stofu sjónvarpsins, sem verið
hefur illa haldin af mannfæð frá
upphafi, mun ekki vænkast bráð-
lega þrátt fyrir að grænt ljós er
formlega komið á að fjölga
fréttamönnum um tvo. Það er
afráðið að auglýsa þessar stöður
ekki fyrr en I haust, hvað sem
veldur...
# Einn af Hringborðsskrifurum
Helgarpóstsins, Hrafn
Gunnlaugsson varpaði fram
þeirri hugmynd á þeim vettvangi
ekki alls fyrir löngu að nýta ætti
Hljómskálagarðinn betur fyrir
mannfagnaði af ýmsu tagi og
væri til dæmis tilvalið að setja
þar upp tivoli. Þessi hugmynd
fékk siðan jákvæðar undirtektir
oddvita bæði minni- og meirihluta
i borgarstjórn, þótt ekki hafi
verið búist við framkvæmdum úr
þeirri átt. Nú virðist hins vegar
sem hljómgrunnur fyrir þessari
hugmynd sé allviða. Frést hefur
að einkaaðilar renni hýru auga til
Hljómskálagarðsins sem hentugs
svæöis fyrir starfsemi af fyrr-
nefndu tagi. Þannig munú Gestur
Ólafssonog Kristinn Ragnarsson,
aðalsprauturnar á bak við hinn
ágæta útimarkaö á Lækjartorgi,
hafa áhuga á að fá að setja upp i
garðinum þjóðhátiðartjaldið
stóra i sumar og hafa þar böll og
uppákomur, og jafnframt eru
uppi hugmyndir um að reisa
þarna kúluhús af Buckminster
Fullerættinni semEinar Þorsteinn
Asgeirsson, arkitekt, hefur kynnt
hér manna mest, 'og hafa þar
tivolistarfsemi af einhverju tagi.
Nú er að sjá hvort orðum fylgja
gerðir og borgaryfirvöld heimili
þessum framtakssömu
mönnumað fjörga svolitið sumar-
stemninguna i Reykjavik...
# Félagsleg þjónusta er yfir-
leitt einhver stærsti útgjaldaliður
hins opinbera, bæði rfkis og
sveitarfélaga, og trúlega dettur
ISLENZKT „
OSTAVAL!^'
lœplega 40 ostategundir eru framleiddar á íslandi nú. Hejuróu bragðaó Gouda ?
fáum 1 hug að unnt sé að græða á
slikri þjónustu. Nú heyrir Helgar-
pósturinn hins vegar um eitt slikt
dæmi: Elliheimilið i Borgarnesi
er sagt hafa verið rekiö með um
27milljón króna hagnaöi á siðasta
ári!!!
#Skyldu ekki öll kurl enn vera
komin ; til grafar varðandi
forsetaframboðin? I það minnsta
hafa menn orðið varir við áskor-
unarlista núna slðustu daga, þar
sem hart er lagt að dr. Sturla
Friðrikssyniað gefa kost á sér til
forsetaframboðs...
.SAFNIÐ
GXskápar,
Stórkostleg verðlækkun
á þessum glæsilegum
vegghúsgögnum
Glæsileg íslensk vegghusgögn
HUSGAGNA-
\GNA-I
VSLl
SMIÐJUVEGI 30
SÍMI 72870 Á
# Við skýrðum frá þvl hér i
siðasta Helgarpósti að sænsku
skoplistarmennirnir Hasse og
Tagehefðu áhuga á aö gera söng-
leik eftir skáldsögu Halldórs Lax-
ness, Atómstöðinni. Það leiðir
hugann að þvi að fyrir nokkrum
árum, nánar tiltekiö 1976 voru
sýndir f sænska sjónvarpinu 12
grfnþættir þeirra félaga sem hétu
„Svenska Ordssaga”. Þættir
þessir þóttu hinir skemmtileg-
ustu, og ekki spillti, að félagi
morgunpóstur, Sigmar B.
Hauksson, lék i þeim eitt aðal-
hlutverkanna. Sigmar var við
nám i Sviþjóð á þessum árum og
tók þá þátt i skólareviu nokkurri,
sem siðar var útvikkuð og teygð
og flutt I útvarpi. í henni lék Sig-
mar hægrisinnaða og nöldur-
gjarna finnska skúringakonu með
slikum bravör að þeir Hasse og
Tage fengu hann tii liös viö sig i
grinþáttunum. Þar lék Sigmar
safnvörð f orðasafni nokkru, þar
sem helstu atburöir þáttanna áttu
sér stað. A myndinni hérna eru
Hasse og Tage og félagi Sigmar
framan við uppdrátt af orðasafn-
inu...
• Þegar þátturinn frá
Eurovision-keppninni kom hingað
til lands s.l. föstudagskvöld,
kvöldið áður en átti að sýna ihann.
kom babb i bátinn. Við kynningu
skemmtikraftanna, háföi vériö
tekinn upp sá háttur, að nota
tungumál viðkomandi þjóðar.
Þar með þurfti að þýða um það bil
15 tungumál. Sá sem hafði tekið
að sér að þýða myndina stóð á
gati gagnvart þessum mikla
málafjölda sem vonlegt var. 1
skyndingu var kallaður út Jón
Gunnarsson, kennari i saman-
burðaimálfræði viö Háskólann.og
leysti hann það af hendi þá um
nóttina. Sjálfur lætur hann litið
yfir þessu afreki og segist hafa
það sem hobbý að skoða tungu-
mál...
# Við undirbúning Listahátiðar
i Reykjavik kom upp sú
hugmynd, að setja sérstakan
hátiðarblæ á Skólavörðustiginn.
Ætlunin var að nota Breiðfirð-
ingarbúð sem sýningarsal, loka
Skólavörðustlgnum og hafa þar
göngugötu og skreyta fram-
hliðar allra húsa við götuna.
Myndlistarnemar vildu taka
verkefnið að sér og var búiö að
vinna að undirbúningi þess I 6
mánuði. Þá tóku kaupmenn við
götuna til sinna ráða og báðu
borgarráö um að hafna tilmælum
um lokun götunnar. Munu þeir
hafa óttast að lokunin stæði leng-
ur en Listahátiðin...
# Ekki mun vera bjart yfir
mönnum I bankakerfinu um
þessar mundir. Framámenn I
bönkunum staðhæfa að þegar
eftir að kunngerð var sú ákvörðun
aðláta vexti ekki fylgja veröbólg-
unni, hafi dregið úr sparifjár-
myndun I bönkunum og standi
þeir nú illa. Meira að segja hið
mikla bankaveldi, Landsbankbn,
er sagt vera i 5 milljarða skuld
við Seðlabankann um hver
mánaðamót. En verst mun þó
bessi þróun koma við Ctvegs-
bankannsem um langt skeið hef-
ur skaöið hvað höllustum fæti
allra bankanna og er hann nú
sagður eiga allt sitt undir rikinu.
tJr viðskiptallfinu herma fréttir,
að bankinn hafi veriö að segja
upp nokkrum fyrirtækjum viö-
skiptum en Landsbankinn neiti
,siðan að taka við þeim...