Helgarpósturinn - 22.08.1980, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 22.08.1980, Blaðsíða 11
n helgarpósfurinn Föstudagur 22.ágúst 1980 ua : 4V43A í, f/'oAN AuuA HAAQ4NU £, 3, V o j ípi/ eFeevcrzn. vefteme oevejMi Ae v£*A TD. % *y, j/2 y2 //, y} y2 ^eA y2 3/, % j/3 y«/ »/j y2 3/3 Ail-TAe -Aí> AWWAÍT 3/fwr (ECA HIHHUA) OM i-. - o«s Ei/pA ’A B/puH. BILAR STÆRDFRÆÐIRALL „Ég smi&a&i bátinn bara hérna i bilskúrnum,” sagöi hann. „Ætli þa& hafi ekki fariö um 800 klukku- stundir í þetta og vinnan stóö yfir i 10 mánu&i, en þetta var mjög spennandi.” Þaö hlýtur aö vera, þvi nú hefur hann hafist handa viö smiöi á nýj- um bát, þrem fetum lengri og meö dýpri kili. Teikningarnar aö þeim bát geröi hann sjálfur meö hliösjón af fyrri smiöi og reynsl- unni af þeim bát, sem ber nafnið „Hafgolan”. „Ég var ekki ánægöur meö sjó- hæfnina. Báturinn var miöaöur viö frekar sléttan sjó, en hér viö Seltjarnarnesiö er sjaldan alveg logn. Nýi báturinn á aö þola meiri sjó. Hann hefur þegar fengið nafn og þaö er „Særokiö”.” Þeir feögar, Einar og synir hans fimm, hafa mikla ánægju af aö fara til veiöa út á flóann og hafa þeir aflaö vel. Einar sagöist einu sinni hafa fengið svo stóra lúöu á öngulinn, aö hann hafi ekk- ert ráðiö viö hana og lauk viður- eigninni meö sigri lúðunnar. „Ég er alinn upp á Selfossi og komst því oft I aö veiöa lax. Mér finnst sjóveiðin ekkert siöur spennandi en laxinn,” sagöi hann. 1 Snarfara eru nú um 450 skráöir félagar og er félagslífiö meö miklum blóma. Þeir hafa nú komiö sér sæmilega vel fyrir i Elliöavogi. Um tima höföu þeir góöa von meö aö fá framlag frá Reykjavikurborg, en af þvi hefur ekki orðið enn. Nú i sumar keyptu Snarfara- félagar gamlan sumarbústað og komu honum fyrir viö flot- bryggjuna iElliöavogi. Hann á aö vera félagsheimili, en fyrsti stjórnarfundurinn var haldinn fimm minútum eftir aö húsiö var komiö á undirstööurnar. Hefur þaö hlotiö nafniö Elli&anaust. „Þetta hús breytir miklu fyrir okkur,” sagði Einar. „Við erum þakklátir öllum þeim sem hafa veitt okkur aöstoö á einhvern hátt meö þvi að gefa efni, tæki, vinnu og peninga i hússjóöinn. Ég vil hvetja alla Snarfaramenn til aö koma á kvöldin og vinna aö bættri aðstöðu og þeirri uppbyggingu, sem hafin er á athafnasvæ&i Snarfara i Elliöaárvogi.” Meðan þjóövegaralliö mikla umhverfis landiö stendur yfir og menn biöa i ofvæni eftir úrslitum væri ekki úr vegi áð stytta sér stundir viö litiö en skemmtilegt spil, sem byggist á þessari geysi- vinsælu iþrótt. Umuppruna spils- ins veit ég ekkert, en þaö gengur undir nafninu„Stæröfræöirall”og er ekki ósvipað„sjóorrustu”,sem flestir þekkja frá skólaárum sinum. öfugt við hiö raunverulega rall er spiliö ákaflega ódýrt og hand- hægt, en krefst þó talsverörar umhugsunar, útsjónarsemi og út- reikninga^þar af nafniö. Það eina sem til þarf er rúöustrikaöur pappir og penni, gjarnan tveir, af sitthvorum lit (e&a jafn margir og keppen.dur, sem geta veriö fleiri). Keppnisbrautin er rissuö upp líkt og sýnt er á meöfylgjandi mynd, og geta keppendur komiö sér saman um högun hennar og ýmiss íkonar hindranir hverju sinni. Spiliö felst siöan i þvi, aö keppendur skiptast á um aö marka feril imyndaöra bila á brautina. 1 upphafi nær ferillinn aðeins yfir eina rtíöu, en hraðinn er aukinn meö því aö bæta viö rúðum, þ.e. að láta ferilinn næst ná yfir tvær rúöur, þarnæst þrjár, o.s.frv. Þegar kemur a& beygju eöa hindrunþarf að sjálfsögöu aö draga úr feröinni, og þaö er þá gert á sama hátt, þ.e. dregiö Ur feröinni um eina rúðu i senn. Ef ekki á aö fara illa þurfa keppendur aö vera vel vakandi, sjá út hvaö þeim er óhætt aö auka hraöann mikið, eöa hvað þeir veröa aö draga mikiö úr honum núeöahvortþeirgeta haldiöstöð- ugum hraöa um stund. Og kúnstin er ekki bara aö ná beygjunum og forðast hindranimar, heldur lika velja stystu leiöina og koma þannig fyrstur i mark. Þegar leiðin i mark fer aö styttast kemur ein þrautin enn, semsé aö stoppa nákvæmlega á endalin- unni. Til þess þarf aö byrja nógu snemma aö „telja niður”. Sá sigrar, sem fyrstur kemur heilu og höldnu á endalinuna. En jafnskjótt og einhver veröur fýrir þvi aö draga linuna, eöa feril „bils” sins út af brautinni, eða yfir hindrun, er hann Ur leik. Meöfylgjandi spil er a&eins dæmi um þaö hvernig spiliö getur litiö út, og til glöggvunar er ferill „bila” tveggja keppenda dreginn á hana. Góöa skemmtun. ____________________RÆKTUN „Byrjaði vegna misskilnings” Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri hefur sérhæft sig í ræktun alparósa „Ég hef haft áhuga fyrir gróöri siðan ég var i skóla og langaöi jafnvel til að læra eitthvað i tengslum við hann. En þaö fór nú ööru visi og ég er ánægður meö að hafa þetta sem hobbý.” Sá, sem þetta segir, er þekktari fyrir annað en ræktun. Nafn hans tengist mikiu frekar malbiki og möl, þvi hér er á ferðinni vega- málastjóri, Snæbjörn Jónasson. Snæbjörn er sérfræöingur i ræktun alparósar. Siöustu 12-14 árin hefur hann lagt sérstaka rækt við þá jurtategund, þótt hann hafi jafnhliöa komiö upp ótöldum trjátegundum og öörum blómum. Við heimili hans i Laugarásn- um má sjá fjöldann allan af blóm- um og trjám i pottum og krúsum, bæði i gróöurhúsinu og garöinum. Þegar plönturnar hafa náö nægi- legum styrkleika flytur hann þær hins vegar i gróðurreit, sem hann hefur komiö sér upp í Kjósinni. Þar byrjaöi hann aö rækta fyrir 14 árum og nú eru hæstu trén orö- in 2-3 metrar á hæö. Snæbjörn ræktar flestar slnar jurtir frá fræjum, sem hann hefur fengið viös vegar frá. Þarna má sjá birki frá Nepal, risafuru frá Kaliforniu, ameriskan reyni, þini og þallir frá Japan og svo mætti lengi telja. „Ég má helst-aldrei sjá plöntur, svo ég reyni ekki aö ná i fræ af þeim” sagöi hann. „Þetta eru eins konar minjagripir frá þeim stööum, sem ég hef komið till’ Auk þess fær hann fræ frá Alparósirnar byrja feril sinn I gróðurhúsinu, en eru svo færðar út I garðinn. Hér er Snæbjörn meö nokkrar af þeim þúsundum plantna, sem hann er að koma upp. grasagöröum og áhugamanna- félögum erlendis. Siöan athugar hann hvort þær þola loftslagiö hér. Fjölbreytilegastar eru alpa- rósirnar, en tegundir þeirra skipta tugum i gró&urhúsinu og innan um kletta, steina og tré i Kjósinni, fyrir utan kynbættu plönturnar. „Ég fór aö rækta skóginn til aö skapa skjól fyrir alparósirnar,” sagöi Snæbjörn. „Þær byrjaði ég ég aö rækta fyrir asnaskap. Ég sá þær svo fallegar i Skotlandi, þótti veöur oft lei&inlegt þar og fannst a& fyrst þær blómstruöu svona þarna, ætti aö vera hægt að rækta þær hér. En þaö var misskiln- ingur. Það eru miklu færri teg- undir sem þola loftslagiö hér. En þegar vel tekst til, geta alparósir oröið mjög fallegar og stórar. Þær geta oröiö fleiri metrar á hæö og blómstra óskap- lega mikið fyrri part sumars. Þetta er aö byrja aö skila sér hjá mér núna. Þaö tekur 5-10 ár frá þvi sáö er og þar til plönturnar fara aö blómstra. Fyrr veit maöur ekkert hvernig þær veröa,” En hvaö er það sem er svona heillandi vib ræktun, a& menn ey&a öllum sinum fristundum i hana? „Þetta er alltaf jafn skemmti- legtj’ sagöi Snæbjörn, „enda margt sem gleöur mann. Gróður- inn skapar skjól og fuglalif meö tilheyrandi fulglasöng og fegurðin i plöntum og blómum veitir ánægju. Og ánægjulegast er aö fylgjast með plöntunni frá fræi til blómgunar”. _________________________HJÓLREIDAR Hjólin renna út eins og heitar lummur — Langir biðlistar eftir dýrustu hjólunum „Þaö má segja aö viö höfum selt allt sem viö höfum komið höndum yfir að flytja inn,” sagöi Páll Bragason hjá Fálkanum, þegarHP spurðist fyrir um sölu á reiðhjólum i sumar. t Erninum hafði Sigurbjörg Bjarnadóttir sömu sögu a& segja. 1 báöum þessum helstu reiðhjóla- verslunum borgarinnar erulangir biölistar eftir 10 gira hjólunum. Þau koma aldrei fram i verslan- irnar, þvi þau eru öll seld áður en þau koma til landsins. t fyrra seldust svona hjól varla hérna. En hver er ástæöan? „Þetta er tiska,” sagði Páll. „Þessi hjól hafa verið mjög i tlsku i Bandarikjunum siöustu 2-3 árin og núna lika I Evrópu. Svo er þaö hækkandi orkuverð og áróöur fyrir útiveru og hreyfingu. Reið- hjól eru auövitaö gráupplögð i þaö. Entollabreytinginhefur lika sitt aö segja. Reiöhjól lækkuðu i fyrra um 45% og þá kom greini- legur hvellur.” Sigurbjörg sagði, a& þau i Ern- inum heföu séö fyrir þessa aukn- ingu, og heföu því pantaö rúm- lega helmingi meira en þaö sem selt var I fyrra. En hjólaverk- smiðjurnar anna ekki eftirspurn- inni og allar pantanir eru skornar niöur um helming. Hvaö kosta nú svona kjör- gripir? örninn flytur inn dönsk hjól, SCO og siöast þegar þau komu kostuðu þau 206-247 þúsund krónur. Næst koma þau seinni partinn i ágúst og hafa þá væntanlega eitthvaö hækkaö I ver&i. Fálkinn flytur inn DBS, sem eru norsk hjól, og Raleigh, ensk hjól. Af þessum hjólum má fá góöar útgáfur fyrir um 200 þús- und krónur, en finasta hjólið frá DBS og jafnframt þaö eftirsótt- asta, veröur sennilega á um 250 þúsund krónur þegar þaö kemur næst i haust. Eftirspurnaraukningin hefur oröiö mest i' dýrustu hjólunum og kvenhjólum. Jafnframt hefur selst gifurlega mikiö af barna- stólum á hjól. Fulloröna fólkiö er auösjáanlega búiö aö uppgötva hjóliö. LAND HtfOL Ef þú ætlar að leggja land undir hjól þá er ráölegt aö njóta góörar leiðsagnar. Vegahandbókin eftir Stein- dór Steindórsson vísar þér til vegar um allt land, jafnt í byggðum sem óbyggöum. Hún byggir á hinu nýja númerakerfi Vegageröarinnar og þaö er auövelt aö rata eftir henni, ef þú kynnir þér leið- beiningar um notkun hennar áður en þú leggur af stað. Þeim, sem ætla aö aka Þing- vallahringinn, ráöleggjum viö aö kynna sér þá nýjung aö njóta lifandi leiðsagnar á snældum (kassettum). Fyrsta slíka leiösögnin er einmitt um Þingvallahringinn og Þing- velli. Þingvallahringinn samdi Tómas Einarsson en sjálfa Þingvallalýsinguna geröi Jón Hnefill Aöalsteinsson. Hjörtur Pálsson er lesari á báöum snældunum. Og hvernig notar þú svo þessar lýsingar? Þaö er mjög auðvelt, eins og aö drekka vatn. Þú setur snæld- una í tækiö, bara venjulegt kassettutæki, þaö þarf alls ekki aö vera innbyggt í bílinn, og ekur af staö. Leiösögnin er meö þeim hætti aö þú líður yfir landiö og nýtur breiðrar frásagnar, sem gerir ekki kröfur til þess aö þú snúir þig af og til úr hálsliðnum til þess aö missa nú ekki af neinu. Þegar þú kemur til Þingvalla skiptir þú um snældu, setur Leiðsögn um Þingvelli í tækiö og gengur um vellina meö tækiö í hendinni, sagan streymir aö þér, atburðir sög- unnar hrannast upp, koma og hverfa. Að Þingvallagöngunni lokinni, stígur þú aftur inn í bílinn og ekur enn af staö, og nú tekur fyrri snældan viö, þar sem frá var horfið. Ef þú vilt ekki hlusta á leiösögnina um stund, þá lækkar þú bara í tækinu og hækkar svo aftur þegar hent- ar, og þá er leiðsögnin aö öllum líkindum á réttum stað. En sé svo ekki, þá er auðvelt á öllum kassettutækjum að spóla fram og til baka eftir því sem þörf krefur. Að lokinni ferð, þegar heim er komið, er ekki amalegt að hafa bókina okkar Útigrill og glóðarsteikur í þýöingu Ib Wessmanns viö hendina þeg- ar þú tekur til viö undirbúning kvöldmatarins, hvort sem þú grillar úti eða ínni. Njóttu vel ferðarinnar — já og matarins þegar heim er komið. ÍÍ ÖRLYCUR SÍÐUMÚLA 11, SÍMI 84866 SGS

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.